Sjálfstæðisflokkur stærstur á ný með yfir 40% fylgi

Fréttablaðið Innlent 19. mars 2010 06:00
Sjálfstæðisflokkur stærstur á ný með yfir 40% fylgi

Sjálfstæðisflokkurinn bætir við sig miklu fylgi á kostnað stjórnarflokkanna samkvæmt niðurstöðu skoðanakönnunar Fréttablaðsins sem gerð var í gærkvöldi.

Alls sögðust 40,3 prósent þeirra sem afstöðu tóku í könnuninni myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn yrði kosið nú. Í síðustu könnun Fréttablaðsins naut flokkurinn stuðnings 31,1 prósents aðspurðra, og hækkar því um 9,2 prósentustig milli kannana. Flokkurinn er 16,6 prósentustigum yfir kjörfylgi sínu, sem var 23,7 prósent og á ný sá flokkur sem nýtur mests fylgis. Síðast mældist flokkurinn með sambærilegt fylgi í könnun Fréttablaðsins í febrúar 2008.

Samfylkingin nýtur nú stuðnings 23,1 prósents kjósenda samkvæmt könnun Fréttablaðsins. Í könnun blaðsins í janúar síðastliðnum sögðust 28,7 prósent styðja flokkinn, og fylgið hefur því dregist saman um tæpan fimmtung, eða 5,6 prósentustig.

Samfylkingin fékk 29,8 prósent atkvæða í síðustu alþingiskosningum, 6,7 prósentustigum meira en í könnun Fréttablaðsins nú.

Vinstri græn tapa einnig töluverðu fylgi og mælast nú með stuðning 20,6 prósenta kjósenda, fjórum prósentustigum minna en í könnun Fréttablaðsins í janúar. VG er þó ekki langt frá kjörfylgi, en flokkurinn naut stuðnings 21,7 prósenta kjósenda í kosningunum fyrir tæpu ári.

Afar litlar breytingar mælast á stuðningi við Framsóknarflokkinn. Flokkurinn fengi 13,3 prósent atkvæða samkvæmt könnun Fréttablaðsins í gær, svipað og hann mældist með í janúar síðastliðnum þegar 13,7 prósent sögðust myndu styðja flokkinn. Alls studdu 14,8 prósent Framsóknarflokkinn í síðustu kosningum.

Borgarahreyfingin mælist með 2,1 prósents fylgi í könnuninni í gær, en var með 0,4 prósent í janúar. Flokkurinn er samt langt frá 7,2 prósenta kjörfylgi sínu.

Hreyfingin, sem klofnaði úr Borgarahreyfingunni skömmu eftir kosningar, mælist með stuðning 0,6 prósenta kjósenda, samanborið við 1,6 prósent í síðustu könnun.

Yrðu þetta niðurstöður kosninga fengi Sjálfstæðisflokkurinn 27 þingmenn, en er með 16 í dag. Samfylkingin fengi 15 þingmenn, en fékk 20 í síðustu kosningum.

Vinstri græn myndu tapa þingmanni yrðu niðurstöður kosninga í takt við könnunina, fengju 13 en eru með 14 í dag. Stjórnarflokkarnir fengju samtals 28 þingmenn af 63 samkvæmt könnuninni.

Framsóknarflokkurinn myndi fá átta þingmenn samkvæmt könnun Fréttablaðsins, einum færri en hann er með nú. Hvorki Borgarahreyfingin né Hreyfingin kæmu manni að yrðu þetta niðurstöður kosninga.

Einnig var spurt um afstöðu til ríkisstjórnarinnar. Alls sögðust 38,9 prósent þeirra sem afstöðu tóku styðja ríkisstjórnina, en 61,1 prósent ekki.

Hringt var í 800 manns sem valdir voru með slembiúrtaki úr þjóðskrá fimmtudaginn 18. mars. Svarendur skiptust jafnt eftir kyni, og hlutfallslega eftir búsetu og aldri.

Spurt var: Hvaða lista myndir þú kjósa ef gengið yrði til kosninga í dag? Ef ekki fékkst svar var spurt: Hvaða flokk er líklegast að þú myndir kjósa? Ef ekki fékkst svar var að lokum spurt: Er líklegra að þú myndir kjósa Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern annan flokk? Alls tók 60,1 prósent afstöðu.

Einnig var spurt: Styður þú núverandi ríkisstjórn? Alls tóku 88,8 prósent afstöðu til þeirrar spurningar.

Skoðanakönnunin er sú fyrsta sem Fréttablaðið gerir með örlítið breyttri aðferð frá fyrri könnunum blaðsins.

Í fyrsta skipti er nú notast við úrtak valið af handahófi úr þjóðskrá, í stað þess að velja úrtak af handahófi af skráðum símnotendum.brjann@frettabladid.is




Fleiri fréttir - Innlent

Innlent 12. feb. 2012 09:32

Settist upp í lögreglubíl og braut bílrúðu

Ölvaður og æstur maður var handtekinn við krá í Hafnarfirði eftir að hann braut rúðu í lög...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 09:44

Lýst eftir Birnu Dögg

Lögreglan lýsir eftir Birnu Dögg Gunnarsdóttur til heimilis að Heiðarhvammi 7, Reykjanesbæ...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 22:32

Mundu eftir mér sigraði í Evróvisjón

Það var lagið Mundu eftir mér sem sigraði í Evróvisjón í kvöld. Það var Greta Salóme Stefá...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 20:00

Rokkarar heimtuðu hættulegt rauðvín

Nokkrir aðdáendur hljómsveitarinnar Motörhead mótmæltu ákvörðun vínbúðarinnar um að leyfa ...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 19:30

Fórnarlambið á Þórshöfn með mikla höfuðáverka

Rúmlega sjötugur karlmaður liggur þungt haldinn á gjörgæsludeild sjúkrahússins á Akureyri ...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 18:30

Óvíst hvaða lög sprengjumaðurinn braut

Karlmaður á áttræðisaldri hefur játað að hafa komið sprengjunni fyrir skammt frá Stjórnarr...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 17:35

Búist við hríðarveðri seint í kvöld

Það hvessir af suðri seint í köld og hlýnar heldur. Á hæstu fjallvegum um landið vestanve...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 15:39

Fimm sagt sig af lista Kópavogsbúa vegna óánægju

Fimm hafa sagt sig úr Y-lista Kópavogsbúa eftir að Rannveig Ásgeirsdóttir myndaði meirihlu...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 16:13

Útigangsmenn hrelldu börn á Klambratúni

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk tilkynningu um að útigangsmenn hefði verið ofstopafull...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 16:06

Ætlaði að slökkva á brunaboðanum en ræsti innbrotsboðann í staðinn

Hann var óheppinn iðnaðarmaðurinn sem var að störfum á Kleppsspítala í morgun. Lögreglu bá...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 15:02

Skyndihjálparmaður Íslands bjargaði dóttur sinni

Rauði kross Íslands hefur valið Gísla Örn Gíslason sem skyndihjálparmann ársins 2011 fyrir...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 12:28

Játning í sprengjumálinu

Karlmaður á áttræðisaldri hefur játað að hafa komið sprengju fyrir skammt frá Stjórnarráði...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 10:45

Braust inn til manns á áttræðisaldri og misþyrmdi hrottalega

Rúmlega sjötugur karlmaður liggur þungt haldinn á sjúkrahúsinu á Akureyri eftir alvarlega ...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 13:30

Aukin þyngd sjúklinga hækkar kostnað vegna lyfja

Aukin þyngd sjúklinga hefur hækkað kostnað Landspítalans vegna lyfja síðustu misseri. Muna...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 09:29

Karlmaður stunginn og svo færður í fangageymslu

Karlmaður var stunginn í nótt í Hafnarfirði og handtók lögreglan fjóra menn vegna málsins....  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 12:09

Ákvörðun um gæsluvarðhald tekin í dag

Lögreglan tekur ákvörðun um það síðar í dag hvort að krafist verði gæsluvarðahalds yfir ka...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 11:47

112-dagurinn haldinn í dag - vélmenni og sprengjubíll í Smáralindinni

112-dagurinn verður haldinn um allt land í dag. Markmið dagsins er að kynna neyðarnúmerið ...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 09:56

Færð og aðstæður: Hálka víða á Suðurlandi

Hálkublettir eru á Hellisheiði og Þrengslum en snjóþekja á Lyngdalsheiði, en hálkublettir ...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 09:45

Fíkniefnasali á Menntavegi og grillaðir unglingar í Gvendargeisla

Lögreglan hafði afskipti af fjórum unglingum við Gvendargeisla um klukkan hálf tólf í gærk...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 09:00

Bíða Alþingis og fresta innheimtu

Kristbjörg Stephensen borgarlögmaður segir í minnisblaði til borgarráðs að borgin verði að...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 08:30

Óttast að verðmætar minjar endi í bræðslu

Safnaráð tók skeiðar og skart úr silfri af breskum kaupmanni sem hugðist fara með góssið ú...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 08:00

Eftirlitsstofnun vill kröfur í lög fyrir marslok

Íslensk stjórnvöld telja að nýtt frumvarp um starfsemi Ríkisútvarpsins ohf. (RÚV) muni inn...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 07:00

Frumvarp um barnalög gamaldags

Anja Cordes, lögfræðingur á sviði fjölskylduréttar í Danmörku, segir í viðtali við Fréttab...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Fréttir eftir mánuði

Þú ert hér: Forsíða / Fréttir / Innlent / Sjálfstæðisflokkur stærstur á ný með yfir 40% fylgi