Ný stjórn Arion banka kosin í dag - sænskur stjórnarformaður

Vísir Viðskipti innlent 18. mars 2010 17:37
Ný stjórn Arion banka kosin í dag - sænskur stjórnarformaður

Ný stjórn Arion banka var kosin á hluthafafundi bankans í dag, fimmtudaginn 18. mars. Á stjórnarfundi Arion banka sem var haldinn í kjölfarið var Monica Caneman kjörin stjórnarformaður en aðrir stjórnarmenn eru Guðrún Johnsen, varaformaður, Kristján Jóhannsson, Steen Hemmingsen og Theodór S. Sigurbergsson. Varamenn stjórnar eru: Agnar Kofoed-Hansen, Jóhannes R. Jóhannesson, Ólafur Helgi Ólafsson, María Grétarsdóttir og Guðrún Björnsdóttir.

Skipan stjórnar er samkvæmt skilyrðum Fjármálaeftirlitsins um eignarhald Kaupskila á Arion banka, en þau kveða m.a. á um að meirihluti stjórnarmanna, þar á meðal stjórnarformaður, skuli vera óháður Kaupþingi og einstökum kröfuhöfum. Auk þess er heimilt að einn stjórnarmaður komi úr röðum skilanefndar. Bankasýsla ríkisins skipar einn stjórnarmann samkvæmt tillögum valnefndar. Í kjölfar
skipunar stjórnarinnar mun FME meta stjórnarmenn Arion banka með tilliti til þess hvort þeir uppfylli kröfur, m.a. um þekkingu og reynslu af fjármálastarfsemi.

Hér má lesa um stjórnarmennina:

Monica Caneman, stjórnarformaður.

Monica er sænsk og býr í Svíþjóð. Hún útskrifaðist sem hagfræðingur frá Stockholm School of Economics 1976. Hún starfaði hjá Skandinaviska Enskilda Banken (nú SEB) frá 1977 til 2001 og gegndi ýmsum störfum innan viðskiptabankahlutans. Árið 1995 tók hún sæti í framkvæmdastjórn bankans og varð aðstoðarforstjóri 1997. Samtímis varð hún varamaður í stjórn bankans. Monica lét af störfum í bankanum 2001. Síðan hefur hún helgað sig setu í stjórnum fyrirtækja. Um þessar mundir situr hún í stjórnum margra fyrirtækja og félagasamtaka og er formaður nokkurra þeirra, að Arion banka meðtöldum.

Guðrún Johnsen, varaformaður.

Guðrún lauk BA-prófi í hagfræði frá Háskóla Íslands 1999. Árið 2002 lauk hún MA-prófi í hagnýtri hagfræði frá University of Michigan, Ann Arbor í Bandaríkjunum og ári síðar MA-prófi í tölfræði frá sama háskóla. Guðrún starfaði sem verðbréfamiðlari hjá Fjárfestingarbanka atvinnulífsins (FBA) 1999-2001, sem aðstoðarkennari og aðstoðarmaður í rannsóknum hjá University of Michigan, Ann Arbor 2002-2003 og sem sérfræðingur hjá RAND Corporation í Bandaríkjunum 2004. Á árunum 2004-2006 starfaði hún sem
sérfræðingur í fjármálakerfis- og peningamáladeild Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Guðrún hefur verið lektor við viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík frá 2006. Hún hefur setið í stjórn Rekstrarfélags MP Fjárfestingarbanka, er stjórnarformaður ÞOR (Þróunar og rannsókna) og situr í ráðgjafarráði
Talsmanns neytenda.

Kristján Jóhannsson, stjórnarmaður.

Kristján nam viðskiptafræði og hagfræði við Copenhagen Business School og útskrifaðist með MSc-gráðu 1981. Sérgreinar hans í námi voru fjármálafræði,
mat á fjárfestingum og stefnumótun fyrirtækja. Kristján var hagfræðingur Félags íslenskra iðnrekenda 1981-1983 og framkvæmdastjóri Almenna bókafélagsins 1983-1990. Árin 1990-1992 starfaði hann sem rekstrarráðgjafi og varð lektor við viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands 1992. Kristján hefur setið í stjórnum fjölmargra fyrirtækja og félagasamtaka, þar á meðal sem formaður Félags viðskiptafræðinga og hagfræðinga 1986-1990 og forstöðumaður Viðskiptafræðistofnunar við Háskóla Íslands.

Steen Hemmingsen, stjórnarmaður.

Steen er danskur og býr í Danmörku. Hann lauk MSc-prófi 1969 og hlaut Ph.D.-gráðu frá Copenhagen Business School 1973. Doktorsverkefni hans fjallaði um fjárfestingarhegðun danskra fyrirtækja. Steen starfaði sem ráðgjafi í Privatbanken 1972-1975, fjármálastjóri stálframleiðandans Det Danske Staalvalseværk 1975-1983, sparisjóðsstjóri Sparekassen Sydjylland 1983-1986, forstjóri tryggingafélagsins Baltica Forsikring 1986-1993 og
fjármálastjóri í Det Östasiatiske Kompagni 1993-1997. Frá 1999 hefur hann verið forstjóri Lundbeck-sjóðsins og fjárfestingarfélags hans, LFI, sem er stærsti eigandi lyfjaframleiðendanna H. Lundbeck og Alk-Abello, auk þess að styðja myndarlega við bakið á rannsóknum í lífvísindum og raunvísindum. Steen situr í stjórnum ýmissa fyrirtækja og félagasamtaka, auk þess sem hann er prófdómari við Copenhagen Business School.

Theodór S. Sigurbergsson, stjórnarmaður.

Theodór lauk Cand.Oecon.-prófi við viðskiptadeild Háskóla Íslands árið 1982 af endurskoðunarsviði. Hann varð löggiltur endurskoðandi árið 1989 og
varð einn eigenda endurskoðunarfyrirtækisins Grant Thornton síðar það ár. Hann hefur verið virkur meðlimur í Félagi löggiltra endurskoðenda á Íslandi og átt sæti í nefndum á vegum félagsins. Theodór hefur víðtæka reynslu á vettvangi endurskoðunar og reikningsskila. Hann hefur verið í
skilanefnd Kaupþings frá október 2008.



Fleiri fréttir - Viðskipti innlent

Viðskipti innlent 11. feb. 2012 19:00

Þjóðin klofin í afstöðu sinni til Landsdómsmálsins

Þjóðin virðist klofin í afstöðu sinni til þess hvort draga eigi til baka ákæru á hendur Ge...  

Meira
Viðskipti innlent 11. feb. 2012 09:00

Stefnir í tugmilljarðatap Seðlabanka vegna FIH

FIH hefur afskrifað 48 milljarða síðan Seðlabankinn seldi hann. Virði hlutar í Pandoru fór...  

Meira
Viðskipti innlent 11. feb. 2012 08:10

Helga Björk Eiríksdóttir ráðin til Marel

Helga Björk Eiríksdóttir hefur verið ráðin fjárfesta- og almannatengill hjá Marel hf. og t...  

Meira
Viðskipti innlent 10. feb. 2012 16:24

Söluferli Iceland Foods framlengt

Félögin tvö sem sögð eru hafa átt hæsta boð í Iceland verslunarkeðjuna hafa bæði farið fra...  

Meira
Viðskipti innlent 10. feb. 2012 15:36

Skammtímareddingar með lánum úr styrktarsjóðum

Í bókhaldi Baugs Group eru færð lán frá Hugverkasjóði, Sólarsjóði og Styrktarsjóði í árslo...  

Meira
Viðskipti innlent 10. feb. 2012 13:02

Flogið til þriggja nýrra áfangastaða

Iceland Express verður með áætlunarflug til þriggja nýrra áfangastaða og höfuðborga næsta ...  

Meira
Viðskipti innlent 10. feb. 2012 10:45

Gengisfall krónunnar hefur stöðvast

Eftir umtalsverða veikingu á gengi krónunnar í janúarmánuði hefur lítil breyting verið á þ...  

Meira
Viðskipti innlent 10. feb. 2012 10:17

Yfir 23.500 einstaklingar á bannskránni

Alls eru 23.510 einstaklingar nú á svokallaðri bannskrá Þjóðskrár Íslands. Séu menn skráði...  

Meira
Viðskipti innlent 10. feb. 2012 10:00

Hóta Arion banka sektum

Breyti Arion banki ekki verklagi sínu við skráningu kennitalna við gjaldeyrisviðskipti hyg...  

Meira
Viðskipti innlent 10. feb. 2012 08:00

Auglýsingatekjur RÚV minnka um 200 milljónir

Í drögum að frumvarpi um starfsemi RÚV eru lagðar ýmiss konar takmarkanir á þátttöku fyrir...  

Meira
Viðskipti innlent 10. feb. 2012 07:00

Hagnaður Icelandair 4,5 milljarðar í fyrra

Hagnaður Icelandair á síðasta ári nam 4,5 milljörðum króna sem var í samræmi við væntingar...  

Meira
Viðskipti innlent 10. feb. 2012 06:53

Buðu 75 milljónir í hlut Borgarbyggðar í Faxaflóahöfnum

Borgarráð Reykjavíkur hefur samþykkt að gera 75 milljóna króna tilboð í hlut Borgarbyggðar...  

Meira
Viðskipti innlent 09. feb. 2012 23:49

Fólk vill nálgast gögnin óháð stað og stund

Gert er ráð fyrir að um 300 milljónir spjaldtölva seljist árið 2015 og á sama tíma er gert...  

Meira
Viðskipti innlent 09. feb. 2012 14:55

100 milljóna króna kröfu Baugs í SPRON hafnað

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur hafnað 109 milljóna króna kröfu sem þrotabú Baugs Group lýst...  

Meira
Viðskipti innlent 09. feb. 2012 14:34

Dótturfyrirtæki Actavis stóð sig best

Medis ehf, sem er dótturfyrirtæki Actavis, er það fyrirtæki sem sýndi hvað mesta árangur í...  

Meira
Viðskipti innlent 09. feb. 2012 14:19

10-11 gerir samning við Advania

Rekstrarfélag Tíu ellefu ehf. hefur samið við Advania um heildarlausn í hugbúnaði, rekstri...  

Meira
Viðskipti innlent 09. feb. 2012 14:10

Arion banka hótað dagssektum

Arion banki hefur frest til morgundagsins til þess að breyta skráningu á kennitölum við gj...  

Meira
Viðskipti innlent 09. feb. 2012 13:13

Rauðar tölur á íslenska hlutabréfamarkaðnum

Gengi hlutabréfa í Icelandair Group, Marel og Össuri hefur lækkað skarplega í viðskiptum d...  

Meira
Viðskipti innlent 09. feb. 2012 07:47

Víða pottur brotinn í samningum menntamálaráðuneytisins

Ríkisendurskoðun hefur gert ýmsar athugasemdir við saminga á vegum menntamálaráðuneytisins...  

Meira
Viðskipti innlent 09. feb. 2012 07:38

Olís og N-1 hækkuðu líka bensínverðið

Olís og N-1 hækkuðu verð á bensínlítra um þrjár krónur í gær, eftir að Skeljugnur hækkaði ...  

Meira
Viðskipti innlent 09. feb. 2012 07:03

Össur hf. hagnaðist um 4,5 milljarða í fyrra

Stoðtækjaframleiðandinn Össur hf. hagnaðist um 37 milljónir dollara eða um 4,5 milljarðar ...  

Meira
Viðskipti innlent 09. feb. 2012 06:58

Verðbólgan er innbyggð í íslenska hagkerfið

Stöðugleiki er ekki til í íslenska hagkerfinu þar sem verðbólgan er innbyggð í kerfið....  

Meira
Viðskipti innlent 08. feb. 2012 21:30

Pétur Einarsson: Offramboð af viðskiptabankastarfsemi

Pétur Einarsson, forstjóri Straums sem er í viðtali í nýjasta þætti Klinksins á viðskiptav...  

Meira
Viðskipti innlent 08. feb. 2012 20:00

Pétur Einarsson: Mikilvægt að koma meiru fé í vinnu

Pétur Einarsson, forstjóri Straums, eina sérhæfða fjárfestingarbankans á Íslandi, segir að...  

Meira
Viðskipti innlent 08. feb. 2012 18:41

Yfir 8 þúsund miðar hafa selst

Breska lággjaldaflugfélagið Easy Jet ætlar að fljúga til og frá Íslandi allan ársins hring...  

Meira
Viðskipti innlent 08. feb. 2012 13:52

Gagnaverið Verne Global opnar í dag

Gagnaver Verne Global opnar í dag að Ásbrú í Reykjanesbæ. Það eru nú liðin tæp fjögur ár s...  

Meira
Viðskipti innlent 08. feb. 2012 13:21

Búast við stýrivaxtahækkun næst

Greining Íslandsbanka gerir ráð fyrir að peningastefnunefnd Seðlabankans ákveði að hækka s...  

Meira
Viðskipti innlent 08. feb. 2012 11:31

Einn stjórnenda IBM heldur fyrirlestur í HR

Einn af leiðtogum IBM, Sandy Carter, heldur fyrirlestur í Háskóla Reykjavíkur í hádeginu í...  

Meira
Viðskipti innlent 08. feb. 2012 11:00

Fréttaviðtal: Greina orsakir til að læra af þeim

Danski hagfræðingurinn Jesper Rangvid var staddur hér á landi nýverið þar sem hann var ges...  

Meira
Viðskipti innlent 08. feb. 2012 11:00

Hefja samstarf um greiðslufallstryggingar

Arion banki hóf nýlega samstarf við tryggingafélagið Euler Hermes um að bjóða viðskiptamön...  

Meira
Viðskipti innlent 08. feb. 2012 11:00

Gæti falið í sér milljarða ávinning fyrir sjóðina

Lífeyrissjóðirnir munu fara fram á að dómskvaddir matsmenn verði fengnir til að leggja mat...  

Meira
Viðskipti innlent 08. feb. 2012 11:00

Óformlegar viðræður um fjármögnun og verð

Formlegar söluviðræður við einn af bjóðendum í 77% hlut þrotabúa Landsbankans og Glitnis í...  

Meira
Viðskipti innlent 08. feb. 2012 11:00

Gamla Sjóvá skilar litlu til kröfuhafa

Kröfuhafar SJ Eignarhaldsfélag, sem áður hét Sjóvá, hafa samþykkt nauðasamning félagsins. ...  

Meira
Viðskipti innlent 08. feb. 2012 11:00

Mikil gróska í bjórframleiðslu á Íslandi

Bjórmenning á Íslandi hefur tekið stakkaskiptum á síðustu árum. Fjöldi og fjölbreytileiki ...  

Meira
Viðskipti innlent 08. feb. 2012 11:00

Telur að hagur heimilanna muni vænkast

Hagkerfið á Íslandi er að taka við sér. Hagvöxtur er að aukast, atvinnuleysið fer hægt min...  

Meira
Viðskipti innlent 08. feb. 2012 10:55

Veltan á fasteignamarkaði jókst um 74% milli ára

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í...  

Meira
Viðskipti innlent 08. feb. 2012 10:51

Meiri óvissa um verðbólgu

Meiri óvissa er um verðbólgu núna en áður var, segir Már Guðmundsson seðlabankastjóri. Han...  

Meira
Viðskipti innlent 08. feb. 2012 10:47

Seðlabankinn spáir 2,5% hagvexti í ár

Á þessu ári er spáð 2,5% hagvexti, einkum fyrir tilstuðlan aukinnar fjárfestingar. Framlag...  

Meira
Viðskipti innlent 08. feb. 2012 10:19

Lán heimila niður um 196 milljarða árið 2011 - 33 milljarðar í frosti

Lán heimila höfðu í lok árs 2011 verið færð niður um rúma 196 milljarða króna frá stofnun ...  

Meira
Viðskipti innlent 08. feb. 2012 09:23

Creditinfo veitir fyrirtækjum viðurkenningu

Creditinfo mun veita fimm íslenskum fyrirtækjum viðurkenningu fyrir framúrskarandi árangur...  

Meira
Viðskipti innlent 08. feb. 2012 09:02

Seðlabankinn heldur stýrivöxtum óbreyttum

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda stýrivöxtum bankans óbreyttum...  

Meira
Viðskipti innlent 08. feb. 2012 08:52

Mikil fjölgun íslenskra ferðamanna í Danmörku

Ferðum Íslendinga til Danmerkur fjölgaði um nærri fimmtung á síðasta ári ef mið er tekið a...  

Meira
Viðskipti innlent 08. feb. 2012 06:40

Rífandi gangur hjá Icelandair í ársbyrjun

Fjöldi farþega hjá Icelandair jókst um 13% í janúar miðað við sama mánuð í fyrra.. Í tilky...  

Meira
Viðskipti innlent 08. feb. 2012 06:39

Gullforði Seðlabankans jókst um tæpa 1,4 milljarða

Verðmæti gullforða Seðlabankans jókst um tæplega 1,4 milljarða króna í janúar. Þetta kemur...  

Meira
Viðskipti innlent 08. feb. 2012 06:36

Bensínverðið rýfur 250 króna múrinn

Skeljungur hækkaði bensínverð um fimm krónur á lítrann í gærkvöldi og kostar hann nú tæple...  

Meira
Viðskipti innlent 07. feb. 2012 18:40

Stjórnendur Iceland Foods ekki spenntir fyrir eignastýringarsjóðum

Lykilstjórnendur Iceland Foods hafa ekki áhuga á að vinna hjá fyrirtækinu verði það í eigu...  

Meira
Viðskipti innlent 07. feb. 2012 22:39

Hugsmiðjan með tvær bestu vefsíðurnar

Tvær bestu vefsíður síðasta árs að mati fagfólks í greininni komu úr smiðju sama aðila, ve...  

Meira
Viðskipti innlent 07. feb. 2012 14:47

Búast við að staða heimilanna batni

ASÍ gerir ráð fyrir að hagvöxtur á nýliðnu ári hafi verið 3,1% eða nokkuð meiri en búist v...  

Meira
Viðskipti innlent 07. feb. 2012 14:05

Enn hækkar gengi bréfa í Icelandair

Gengi bréfa í Icelandair Group í kauphöllinni heldur áfram að hækka en gengið hefur hækka...  

Meira
Viðskipti innlent 07. feb. 2012 13:45

Útsvarið í toppi á þrettán stöðum af fimmtán

Reykjavíkurborg er eina sveitarfélagið af fimmtán stærstu sveitarfélögum landsins sem hækk...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Nýjast á Vísi

Fréttir eftir mánuði

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Atvinna
  • Serblad
  • Serblad
  • Allt

Skoðun

Ríkisvæðing er mesta hættan

Ríkisvæðing er mesta hættan

Þorsteinn Pálsson
Ögmundi Jónassyni tókst með haldbærum rökum í Kastljóssþætti í vikunni að sýna fram á yfirborðsmennsku í ...

Skoðun

Panikk í pólitík

Panikk í pólitík

Ólafur Þ. Stephensen
Niðurstöður skoðanakönnunar Fréttablaðsins og Stöðvar 2 um fylgi flokkanna, sem birtust í gær, sýna að mi...

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Viðskipti / Viðskipti innlent / Ný stjórn Arion banka kosin í dag - sænskur stjórnarformaður