Skjögrandi á háum hælum

Fréttablaðið Fastir pennar 18. mars 2010 06:00
Þorvaldur Gylfason
Þorvaldur Gylfason
Þorvaldur Gylfason skrifar:
Ég lýsti því á þessum stað fyrir tæpu ári, þá var liðið hálft ári frá hruni, að Íslendingar hefðu á liðnum árum leyft sér ýmsan munað. Ég tók landbúnaðinn sem dæmi. Í bráðum sjötíu ár hafa margir gagnrýnt búverndarstefnuna og talið hana leggja of þungar byrðar á neytendur og skattgreiðendur. Stjórnvöld hafa þó alla tíð daufheyrzt við gagnrýninni á tveim forsendum. Önnur forsendan hvíldi á kaldri pólitískri staðreynd: bændur höfðu meiri þingstyrk en neytendur, þótt neytendur séu margfalt fleiri en bændur. Hagur neytenda er dreifður öndvert þjöppuðum hag bænda. Ójafnt vægi atkvæða eftir búsetu reið baggamuninn. Hin forsendan var hagræn og kom síðar til sögunnar: mörgum sýndist, að eitt ríkasta land heims hlyti að geta leyft sér dýra búvernd innan um alla jeppana og annan lúxus. Hvað munaði um einn blóðmörskepp í sláturtíðinni?



Kýrnar halda hópinn
Nú er síðari forsendan brostin í bili. Jeppunum hefur fækkað, meira um það að neðan. Búverndin hefur verið heilög kýr. Jafnvel Alþýðusambandið hefur ekki enn fengizt til að beita sér gegn búverndarstefnunni, ekki einu sinni eftir hrun, þótt hún komi verst niður á þeim, sem lægst hafa launin. Alþingi hefur sótt um aðild Íslands að ESB. Tilskilin áskrift að landbúnaðarstefnu ESB mun kosta neytendur og skattgreiðendur um helmingi minna fé en núgildandi skipan, og leggur landbúnaðarstefna ESB þó þungar byrðar á almenning í álfunni og einnig á bændur utan álfunnar. Aukin skuldabyrði almennings og minni kaupmáttur eftir hrun kallar á fordómalausa endurskoðun fyrri lifnaðarhátta og hugmynda.
Heilögu kýrnar eru margar og halda hópinn. Ein þeirra er skipulag Reykjavíkur og nágrennis. Dreifbýlishugsjónin að baki borgarskipulaginu hefur reynzt Reykvíkingum og landsmönnum öllum dýr á heildina litið, en henni hefur verið haldið til streitu á sömu forsendum og búverndarstefnunni. Pólitíska forsendan er, að landsbyggðarþingmönnum þykir heppilegt að hafa Reykjavíkurflugvöll í hjarta borgarlandsins hvað sem það kostar, og þeir hafa þingstyrk til að standa vörð um þá skipan. Hagræna forsendan - hvað er einn flugvöllur milli vina? - er á hinn bóginn brostin eins og í landbúnaðardæminu.



Dreifð borg

Reykjavík er miklu dreifbýlli en hún þyrfti að vera. Í evrópskum borgum búa að jafnaði 7.500 manns á hverjum ferkílómetra byggðs lands, en rösklega 2.500 manns á hverjum ferkílómetra í Reykjavík (og 1.500 á hverjum ferkílómetra á höfuðborgarsvæðinu). Þessi munur stafar einkum af því, að borgin hefur með tímanum breiðzt út yfir stórt svæði. Hjarta borgarlandsins var frátekið fyrir herflugvöllinn, sem Bretar reistu í stríðinu og samgönguyfirvöld gerðu að borgaralegum flugvelli 1946 gegn hagsmunum og andmælum Reykvíkinga. Dreifbýlisstefnan leggur þungar byrðar á borgarbúa. Hví skyldum við halda áfram að bera þær eins og ekkert hafi í skorizt?

Markaðsvirði landsins, sem borgin og ríkið eiga undir flugvellinum, fer eftir því, hversu mörgum heimilum og fyrirtækjum er ætlað húsrými á svæðinu. Með svipaðri nýtingu og í gamla miðbænum er virði landsins nú talið vera rösklega 100 milljarðar króna. Sparnaðurinn, sem fylgja myndi minni bílaeign í þéttbýlli borg, vegur þó til langs tíma litið þyngra en markaðsvirði Vatnsmýrarlandsins.
Skoðum tölurnar. Fjöldi skráðra fólksbíla á hverja þúsund íbúa í árslok 2008 var 660 á Íslandi á móti 350 og 460 í Danmörku og Svíþjóð. Bílaeign á þúsund íbúa er minni í Kaupmannahöfn og Stokkhólmi en hún er á landsvísu í Danmörku og Svíþjóð, þar eð þéttbýlið í borgunum dregur úr þörfinni fyrir bíla eins og Gísli Marteinn Baldursson borgarfulltrúi hefur bent á. Hér heima er þessu öfugt farið. Bílaeign á þúsund íbúa er meiri í Reykjavík en á Íslandi öllu, þar eð borgin er svo dreifð. Væri bílaflotinn dreginn saman til jafns við Danmörku og Svíþjóð, myndi fólksbílum fækka um 200 til 300 á hverja þúsund íbúa eða um allt að 95 þúsund bíla. Hver fólksbíll kostar að jafnaði eina milljón króna á ári í rekstri, og er þá kaupverð bílsins ekki talið með og ekki heldur tafirnar og annar kraðakskostnaður, sem of margir bílar leggja á umhverfið. Það munar um minna en 95 milljarða króna á ári. Þessi fjárhæð dygði ein sér fyrir obbanum af vaxtagreiðslum ríkisins af innlendum og erlendum skuldum mörg næstu ár, með IceSave og öllu saman.



Fleiri fréttir - Fastir pennar

Fastir pennar 11. feb. 2012 06:00

Panikk í pólitík

Niðurstöður skoðanakönnunar Fréttablaðsins og Stöðvar 2 um fylgi flokkanna, sem birtust í ...  

Meira
Fastir pennar 11. feb. 2012 06:00

Ríkisvæðing er mesta hættan

Ögmundi Jónassyni tókst með haldbærum rökum í Kastljóssþætti í vikunni að sýna fram á yfir...  

Meira
Fastir pennar 10. feb. 2012 06:00

Fleiri kostir í samgöngum

Fáar þjóðir eiga fleiri eða aflmeiri bíla miðað við fólksfjölda en Íslendingar. Það á sér ...  

Meira
Fastir pennar 10. feb. 2012 06:00

Ást á stórum byggingum

Einhverjum gæti þótt mikil eftirsjá að öllu fénu sem fer í sundlaugar hér og þar um landið...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 19:00

Tvíkynhneigð kærasta vill tilbreytingu

Öll erum við með okkar hugmyndir um kynlíf. Hugmyndunum fylgja oft vandamál sem kynfræðing...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 06:00

Samstaða um gamlar hugmyndir

Nýja stjórnmálaaflið Samstaða, undir forystu Lilju Mósesdóttur alþingismanns, gefur sig út...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 06:00

Frá trú til skynsemi

Það er undur stutt síðan málið sýndist afgreitt. Þetta með markaðina og ríkið. Markaðir vi...  

Meira
Fastir pennar 08. feb. 2012 06:00

Sameiginleg skylda

Algjör breyting hefur orðið í forsjármálum barna á 20 árum. Árið 1992 varð fyrst möguleiki...  

Meira
Fastir pennar 08. feb. 2012 14:00

Lífeyrissjóðirnir plataðir

Forsvarsmenn lífeyrissjóða keppast nú um að túlka niðurstöðu nefndar sem gerði úttekt á st...  

Meira
Fastir pennar 07. feb. 2012 06:00

Um börnin og refsilöggjöfina – dómur Hæstaréttar

Lög eiga að tryggja sanngjarna málsmeðferð, réttlæti í samskiptum fólks og velferð. Börn s...  

Meira
Fastir pennar 07. feb. 2012 06:00

Hinar orkulindirnar

Þriðjungur þingheims, þingmenn úr öllum flokkum undir forystu Skúla Helgasonar, hefur lagt...  

Meira
Fastir pennar 06. feb. 2012 08:00

Tapað af fagmennsku

Ný skýrsla um lífeyrissjóðina hefur leitt í ljós að á tveimur árum kringum bankahrunið tók...  

Meira
Fastir pennar 06. feb. 2012 06:00

Huga þarf að færum leiðum

Skuldavandi heimila á að stórum hluta rót sína í því furðulega kerfi sem landsmenn hafa hé...  

Meira
Fastir pennar 04. feb. 2012 06:00

Peningar annarra

Skýrsla sjálfstæðrar úttektarnefndar um starfsemi lífeyrissjóðanna inniheldur harða gagnrý...  

Meira
Fastir pennar 04. feb. 2012 06:00

Fóstbræðralag

Kópavogur hefur dregið að sér nokkra athygli vegna viðræðna um myndun nýs meirihluta í bæj...  

Meira
Fastir pennar 03. feb. 2012 06:00

Viðbúin nýjum hættum

Sprengjan sem sprakk fyrir framan skrifstofur ríkissaksóknara, í næsta nágrenni við Stjórn...  

Meira
Fastir pennar 03. feb. 2012 06:00

Ætlað samþykki

Nokkrir þingmenn vilja breyta lögum á þann hátt að líffæri verði tekin úr látnum mönnum ne...  

Meira
Fastir pennar 02. feb. 2012 06:00

Tómir kofar

Stutt en áhugaverð umræða fór fram um EES-samninginn á Alþingi fyrr í vikunni. Tilefnið va...  

Meira
Fastir pennar 02. feb. 2012 06:00

Vöggugjöf

Kynjamunur á námsárangri í Reykjavík er fyrst og fremst í íslensku. Munurinn kemur afdrátt...  

Meira
Fastir pennar 01. feb. 2012 06:00

Greiðari leið til lífgjafar eftir andlát

Allmörg nýru úr lifandi gjöfum eru grædd í Íslendinga ár hvert. Vegna þessarar gjafmildi á...  

Meira
Fastir pennar 31. jan. 2012 06:00

Óklárað uppgjör

Þingmenn úr að minnsta kosti þremur flokkum, auk óháðra, munu í vikunni leggja fram á Alþi...  

Meira
Fastir pennar 30. jan. 2012 08:00

Ögmundur og íhaldið

Sagnfræðingar tala um að stéttastjórnmál hafi leyst sjálfstæðisstjórnmál af hólmi árið 191...  

Meira
Fastir pennar 30. jan. 2012 06:00

Kostnaður krónu

Samkeppniseftirlitið birti í síðustu viku skýrslu sína um verðþróun og samkeppni á dagvöru...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Atvinna
  • Serblad
  • Serblad
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Fastir pennar / Skjögrandi á háum hælum