Lýðræðissjóðir?

Fréttablaðið Fastir pennar 18. mars 2010 06:00
Ólafur Þ. Stephensen
Ólafur Þ. Stephensen
Ólafur Þ. Stephensen skrifar:

Þótt lífeyrissjóðir landsmanna hafi orðið fyrir miklu áfalli í hruninu og tapað stórlega á fjárfestingum í hlutabréfum og skuldabréfum, situr að mestu leyti sama fólkið í stjórnum þeirra og fyrir hrun. Í fréttaskýringu hér í blaðinu í gær kom fram að þrír af hverjum fjórum stjórnarmönnum í sex stærstu lífeyrissjóðunum hafa setið þar frá því fyrir hrun.

Í Fréttablaðinu var jafnframt fjallað um kröfur, sem heyrzt hafa í verkalýðshreyfingunni undanfarin ár og áratugi, um að vali í stjórnir sjóðanna verði breytt og sjóðfélögunum sjálfum leyft að kjósa þær á aðalfundum. Það á reyndar við í örfáum, litlum sjóðum. Almenna reglan er hins vegar sú að verkalýðsforingjar og fulltrúar atvinnurekenda skipta stjórnarsætum í lífeyrissjóðunum á milli sín í huggulegheitum. Kröfur um breytingar hafa ekki fengið neinn hljómgrunn hjá forystu aðila vinnumarkaðarins, hvorki hjá vinnuveitendum né verkalýðsforystunni.

Samt liggur það alveg ljóst fyrir hverjir eiga lífeyrissjóðina. Það er fólkið, sem hefur lagt hluta af launum sínum í þá. Þótt talað sé um mótframlag vinnuveitenda í sjóðina, er það auðvitað aðeins hluti af starfskjörum og eign launþegans eins og önnur laun. Atvinnurekendur og verkalýðsforysta þurfa ekki að hafa vit fyrir fólki um hvernig það fer með þessa peninga. Við þurfum ekki að hafa forystusveit aðila vinnumarkaðarins með okkur í bankann eða búðina til að hafa eftirlit með því hvernig við verzlum eða ráðstöfum sparifénu okkar. Hún þarf ekki heldur að hafa vit fyrir okkur á vettvangi lífeyrissjóðanna.

Líklegasta skýringin á tregðu verkalýðs- og vinnuveitendaforystunnar til að verða við kröfum um lýðræði í lífeyrissjóðunum er að stjórnarsetan þar hefur tryggt þessum hópi bæði völd og hlunnindi. Í krafti peninga sjóðfélaganna hafa fulltrúar hans setið í stjórnum fyrirtækja og átt ýmis önnur ítök í viðskiptalífinu. Þátttaka þeirra í ákvörðunum þar hefur samt ekki verið tóm snilld, eins og dæmin sanna.

Nú hafa þingmenn úr þremur flokkum lagt fram frumvarp á þingi, þar sem lagt er til að tekið verði upp lýðræði í lífeyrissjóðunum. Stjórnir þeirra verði kosnar á ársfundi af sjóðfélögunum. Atvinnurekendum yrði samkvæmt frumvarpinu heimilt að bjóða sig fram til stjórnarsetu, en þeir mættu þó ekki vera í meirihluta í stjórninni, eðli málsins samkvæmt.

Full ástæða er til að þetta frumvarp fái umræðu og skoðun. Krafan um aukið lýðræði er sterk í samfélaginu og það er eðlilegt að hún komi fram á vettvangi lífeyrissjóðanna eins og annars staðar. Ef sjóðfélagar velja sjálfir fólkið, sem tekur ákvarðanir um hvernig fé þeirra er ávaxtað, má gera ráð fyrir að meiri endurnýjun verði í stjórnum lífeyrissjóðanna. Það gæti jafnvel hugsazt að kynjahlutföllin í stjórnunum jöfnuðust, en nú er aðeins um þriðjungur stjórnarmanna í stóru sjóðunum konur.

Kjarni málsins er þessi: Sjóðfélagar lífeyrissjóðanna eiga þá og eiga að ráða því hvernig þeim er stjórnað.



Fleiri fréttir - Fastir pennar

Fastir pennar 11. feb. 2012 06:00

Panikk í pólitík

Niðurstöður skoðanakönnunar Fréttablaðsins og Stöðvar 2 um fylgi flokkanna, sem birtust í ...  

Meira
Fastir pennar 11. feb. 2012 06:00

Ríkisvæðing er mesta hættan

Ögmundi Jónassyni tókst með haldbærum rökum í Kastljóssþætti í vikunni að sýna fram á yfir...  

Meira
Fastir pennar 10. feb. 2012 06:00

Fleiri kostir í samgöngum

Fáar þjóðir eiga fleiri eða aflmeiri bíla miðað við fólksfjölda en Íslendingar. Það á sér ...  

Meira
Fastir pennar 10. feb. 2012 06:00

Ást á stórum byggingum

Einhverjum gæti þótt mikil eftirsjá að öllu fénu sem fer í sundlaugar hér og þar um landið...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 19:00

Tvíkynhneigð kærasta vill tilbreytingu

Öll erum við með okkar hugmyndir um kynlíf. Hugmyndunum fylgja oft vandamál sem kynfræðing...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 06:00

Samstaða um gamlar hugmyndir

Nýja stjórnmálaaflið Samstaða, undir forystu Lilju Mósesdóttur alþingismanns, gefur sig út...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 06:00

Frá trú til skynsemi

Það er undur stutt síðan málið sýndist afgreitt. Þetta með markaðina og ríkið. Markaðir vi...  

Meira
Fastir pennar 08. feb. 2012 06:00

Sameiginleg skylda

Algjör breyting hefur orðið í forsjármálum barna á 20 árum. Árið 1992 varð fyrst möguleiki...  

Meira
Fastir pennar 08. feb. 2012 14:00

Lífeyrissjóðirnir plataðir

Forsvarsmenn lífeyrissjóða keppast nú um að túlka niðurstöðu nefndar sem gerði úttekt á st...  

Meira
Fastir pennar 07. feb. 2012 06:00

Um börnin og refsilöggjöfina – dómur Hæstaréttar

Lög eiga að tryggja sanngjarna málsmeðferð, réttlæti í samskiptum fólks og velferð. Börn s...  

Meira
Fastir pennar 07. feb. 2012 06:00

Hinar orkulindirnar

Þriðjungur þingheims, þingmenn úr öllum flokkum undir forystu Skúla Helgasonar, hefur lagt...  

Meira
Fastir pennar 06. feb. 2012 08:00

Tapað af fagmennsku

Ný skýrsla um lífeyrissjóðina hefur leitt í ljós að á tveimur árum kringum bankahrunið tók...  

Meira
Fastir pennar 06. feb. 2012 06:00

Huga þarf að færum leiðum

Skuldavandi heimila á að stórum hluta rót sína í því furðulega kerfi sem landsmenn hafa hé...  

Meira
Fastir pennar 04. feb. 2012 06:00

Peningar annarra

Skýrsla sjálfstæðrar úttektarnefndar um starfsemi lífeyrissjóðanna inniheldur harða gagnrý...  

Meira
Fastir pennar 04. feb. 2012 06:00

Fóstbræðralag

Kópavogur hefur dregið að sér nokkra athygli vegna viðræðna um myndun nýs meirihluta í bæj...  

Meira
Fastir pennar 03. feb. 2012 06:00

Viðbúin nýjum hættum

Sprengjan sem sprakk fyrir framan skrifstofur ríkissaksóknara, í næsta nágrenni við Stjórn...  

Meira
Fastir pennar 03. feb. 2012 06:00

Ætlað samþykki

Nokkrir þingmenn vilja breyta lögum á þann hátt að líffæri verði tekin úr látnum mönnum ne...  

Meira
Fastir pennar 02. feb. 2012 06:00

Tómir kofar

Stutt en áhugaverð umræða fór fram um EES-samninginn á Alþingi fyrr í vikunni. Tilefnið va...  

Meira
Fastir pennar 02. feb. 2012 06:00

Vöggugjöf

Kynjamunur á námsárangri í Reykjavík er fyrst og fremst í íslensku. Munurinn kemur afdrátt...  

Meira
Fastir pennar 01. feb. 2012 06:00

Greiðari leið til lífgjafar eftir andlát

Allmörg nýru úr lifandi gjöfum eru grædd í Íslendinga ár hvert. Vegna þessarar gjafmildi á...  

Meira
Fastir pennar 31. jan. 2012 06:00

Óklárað uppgjör

Þingmenn úr að minnsta kosti þremur flokkum, auk óháðra, munu í vikunni leggja fram á Alþi...  

Meira
Fastir pennar 30. jan. 2012 08:00

Ögmundur og íhaldið

Sagnfræðingar tala um að stéttastjórnmál hafi leyst sjálfstæðisstjórnmál af hólmi árið 191...  

Meira
Fastir pennar 30. jan. 2012 06:00

Kostnaður krónu

Samkeppniseftirlitið birti í síðustu viku skýrslu sína um verðþróun og samkeppni á dagvöru...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Atvinna
  • Serblad
  • Serblad
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Fastir pennar / Lýðræðissjóðir?