Alex Jurshevski og þingmenn Íslands

Vísir Aðsendar greinar 18. mars 2010 09:27
Alex Jurshevski og þingmenn Íslands
Mynd/GVA
Þór Saari skrifar:

Alex Jurshevski, skeleggi Kanadamaðurinn sem hræddi líftóruna úr
Samfylkingunni og helftinni af Vinstri Grænum í Silfri Egils á sunnudaginn mætti fyrir tveim nefndum Alþingis í gær, en hann hefur verið hér á landi í nokkra daga að kynna sig og fyrirtæki sitt.

Þetta var nefndardagur sem lengi verður í minnum hafður. Þessa vikuna eru nefndardagar á dagskrá miðvikudag, fimmtudag og föstudag og gert ráð fyrir með sæmilegum fyrirvara hvenær hvaða nefndir eiga að funda. Ekki vantaði það að Kanadamaðurinn væri boðaður á skipulögðum nefndartímum en skyndilega voru allir fulltrúar VG í fjárlaganefnd og allir fulltrúar Samfylkingar nema formaður nefndarinnar, Guðbjartur Hannesson, orðnir bókaðir á fundi annars staðar. Fundurinn var "valkvæður" sagði formaðurinn, eitthvað sem fyrirfinnst ekki í þingsköpum Alþingis, en sýnir til hvaða ráða menn eru tilbúnir að grípa til að losna við eitthvað sem er ekki í samræmi við AGS trúarjátninguna. Fundurinn í efnahags- og skattanefnd var einnig frekar þunnskipaður stjórnarliðum.

Það má vafalaust segja sitt hvað um títt nefndan Kanadamann eins og aðra dauðlega menn og skrímsladeild Samfylkingarinnar hefur verið ötul við það. Fékk meira í viðskiptaráðherra í liðið sem úthlutaði manninum meiri auri en hann sjálfur fékk frá skrímsladeild Sjálfstæðisflokksins þegar hann vogaði sér að gagnrýna brothætt bankakerfi um mitt ár 2008. Skjótt skipast veður í lofti er stundum sagt. Gylfi Magnússon orðinn að Þorgerði Katrínu á nánast augabragði.

Kanadamaðurinn er hins vegar að selja þjónustu og hefur aldrei farið dult með það. Þjónustu sem byggir á sérfræðiþekkingu í skuldastýringu ríkissjóða sem íslenskt stjórnsýsla býr ekki yfir nema að litlu leiti. Sú þekking sem hann miðlaði til nefndanna hvað umgjörð skuldastýringar varðar, er almennt í anda þess sem kallast "best practices" hjá OECD (Efnahags- og þróunarsamvinnustofnunni) og er stefna sem aðildarríkin hafa meira og minna náð saman um eftir margra ára samstarf og samvinnu, nema Ísland að sjálfsögðu.

Ísland sagði sig úr samstarfinu árið 2007, lagði niður Lánasýslu ríkisins og flutti skuldastýringu ríkissjóðs til Seðlabankans á þeim forsendum að við skulduðum ekki neitt og myndum sennilega ekki gera framar. „Við færum okkur nær skipulagi í nágrannalöndum" sagði þáverandi fjármálaráðherra Árni Mathiesen. „Eins og í Danmörku" sagði hann en „gleymdi" að geta þess að Danmörk er einmitt dæmið sem er notað um hvernig skuldastýring á EKKI að vera. Seðlabanki Íslands tapaði síðan nær 400 milljörðum króna.

Hafandi unnið sjálfur í Lánasýslu ríkisins og síðar sem ráðgjafi hjá OECD hef ég sem þingmaður talað fyrir betra fyrirkomulagi á skuldastýringu ríkissjóðs Íslands enda er „best practices" við skuldastýringu eitt af þeim grundvallaratriðum (ásamt háu lánshæfismati) sem erlendir fjárfestar líta til þegar þeir eru að fara að lána ríkisstjórnum fé. Þótt leitt sé frá að segja þá er ekki líklegt að Íslandi bjóðist viðunandi lánskjör (ef þeir þá fá lán) á erlendum mörkuðum ef skuldastýring ríkissjóðs er ekki í bestu mögulegu umgjörð. Í því samhengi skiptir meira að segja Icesave litlu máli. Þess vegna er mikilvægt að hlýtt sé á erlenda sérfræðinga og það verður að gera þá kröfu til þingmanna að þeir geti skilið á milli söluræðu og innihalds, því allir (eða flestir alla vega) sem koma fyrir þingnefndir eru í rauninni, í einhverri merkingu að selja eitthvað.

Hvað um það. Vegna þess að Kanadamaðurinn hafði einnig skoðanir á AGS og þeim lánum sem íslensk stjórnvöld vilja fá þar, skoðanir sem ekki eru í samræmi við „ríkjandi viðhorf" í stjórnsýslu og stjórnkerfi, en hann telur eins og margir aðrir að þau muni bara gera slæma stöðu enn verri. Þá vildu þingmenn meirihlutans ekki hitta manninn og sá undir iljarnar á þeim í bæði fjárlaganefnd (nema formanninum) og einnig í efnahags- og skattanefnd þar sem Lilja Mósesdóttir (VG) og Sigríður Ingibjörg Ingadóttir (Samfó) voru þau einu stjórnarmegin sem sátu allan fundinn.

Fundirnir voru á margan hátt upplýsandi og hefðu gagnast öllum þingmönnum vel þótt söluræðan sjálf færi stundum fram úr hófi. Kanadamaðurinn benti á marga gagnlega þætti sem þarf að gaumgæfa en því miður komst það ekki til skila til þeirra sem mestu ábyrgðina bera. Hann talaði líka oft eins og hann væri að tala niður til barna og um íslendinga eins og þeir vissu hreint ekkert hvernig staðan raunverulega væri. Þetta er hins vegar talandi sem ég sjálfur hef talsvert orðið vitni að hjá embættis- og ráðamönnum erlendis og ætti að vekja fólk til alvarlegrar umhugsunar um hvers vegna talað er um og til Íslands með þessum hætti. Hann vildi líka „selja bílinn" líkt og allir bílasalar, en það verður að hafa í huga að þó menn séu bílasalar er ekki þar með sagt að þeir búi ekki yfir mikilvægri þekkingu um bíla almennt sem og um sérstakar tegundir.

Það væri gagnlegt og fullorðið ef þingmönnum bæri gæfa til að vinna betur saman og líta á lausn verkefnanna framundan sem flókin og erfið verkefni sem krefjast hugsanlega margháttaðra lausna, frekar en að lúta algerlega framkvæmdavaldinu og tilskipunum þess og fylgja þeim sem trúarbrögðum sem má ekki hrófla við. Miðað við reynslu mína af þessu þingi er hins vegar ekki líklegt að þingmönnum þess takist það, alla vega ekki hvað efnahagsmálin varðar.

Þór Saari
Höfundur er þingmaður Hreyfingarinnar



Fleiri fréttir - Aðsendar greinar

Aðsendar greinar 11. feb. 2012 06:00

Menntun má tæta

Tilraunir sveitarfélaga til að treysta fjárhagsstöðu sína og draga úr útgjöldum hafa falis...  

Meira
Aðsendar greinar 11. feb. 2012 06:00

Meirihlutinn ræður

Fimmtudaginn 12. jan. sl. varð áhugaverð uppákoma í bæjarráði Kópavogs. Þá ákvað bæjarráð ...  

Meira
Aðsendar greinar 11. feb. 2012 06:00

Brotin fjölskylda eða betra líf?

Að gifta sig er hamingja en að skilja er óhamingja. Eða hvað?...  

Meira
Aðsendar greinar 11. feb. 2012 06:00

Vernd barna gegn kynferðislegum glæpum

Það er dapurleg staðreynd að fjöldi barna í heiminum í dag verður fyrir kynferðislegu ofbe...  

Meira
Aðsendar greinar 11. feb. 2012 06:00

Hrunið 2016

Það er haustið 2016 og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn er aftur kominn til Íslands. Í þetta sin...  

Meira
Aðsendar greinar 10. feb. 2012 14:00

Vísindi, veiðar og mannréttindi

Hvernig kerfi eiga Íslendingar að nota við fiskveiðar? Á undanförnum árum hafa verið gerða...  

Meira
Aðsendar greinar 10. feb. 2012 06:00

Ruglið og reikningsgetan

Fjórði hver drengur, sem útskrifast úr grunnskóla, er sagður ekki kunna að lesa. Enn stærr...  

Meira
Aðsendar greinar 10. feb. 2012 06:00

Má gera okkur öllum upp skoðanir?

Hæfileikafólk á Íslandi er álíka margt og í þrjú hundruð þúsund manna borg annars staðar í...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 03:13

Motörhead gegn íslenska ríkisbákninu

Á hverjum degi flytja fimm manns frá Íslandi til þess að hefja nýtt líf í öðru landi. Efti...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Opið bréf til Ögmundar Jónassonar

Á Íslandi er skilnaðartíðni há en lagaumhverfið hefur ekki tekið mið af því á Íslandi í sa...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Það er ljótt að skilja útundan herra borgarstjóri

Ég skora á borgarstjórann í Reykjavík að draga til baka ákvörðun varðandi niðurfellingu ne...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Breytt framtíðarsýn lesblindra

Flestar skólabyggingar á Íslandi í dag eru með þeim hætti að fatlaðir eiga auðvelt með að ...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Til of mikils mælst?

Þegar ógnvekjandi tölur um treglæsi unglinga birtust sl. haust tók ég mig til og skrifaði ...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Arðurinn – 44:2 fyrir LÍÚ

Hagstofa Íslands birti fyrir nokkrum dögum nákvæm gögn um afkomu sjávarútvegsins árið 2010...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Lendandi á Hólmsheiði í 96-98% tilvika – 95% er nóg

Háskólinn í Reykjavík (HR) og talsmenn flugvallar í Vatnsmýri (flugvallarsinnar) stóðu fyr...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Sæll Sighvatur Björgvinsson

Við eigum sameiginlegt áhugamál sem eru íslenskir grunnskólar. Af skrifum þínum má þó ætla...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Heggur sá er hlífa skyldi

Ekki alls fyrir löngu stóð Skóla- og frístundaráð Reykjavíkur (áður Menntaráð) frammi fyri...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Hvað hefur komið fyrir litla Ísland?

Ég var agndofa í lok vinnudags í byrjun árs....  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Ávöxtun (tap) lífeyrissjóða

Nýlega er komin út skýrsla rannsóknarnefndar um lífeyrissjóði. Mikið hefur verið rætt um h...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 06:00

PIP brjóstapúðamálið – um staðreyndir og villandi málflutning

Liðlega 400 íslenskar konur fengu brjóstafyllingar frá franska framleiðandanaum Poly Impla...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 14:30

Hvað með ristilkrabbamein?

Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra ritar grein í Fréttablaðið þann 4. febrúar sl. Þar ...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 09:21

Umræða um tap lífeyrissjóðanna á villigötum

Í nýútkominni rannsóknarskýrslu er fjallað um hvernig íslensku lífeyrissjóðunum vegnaði í...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 06:00

Endurskoðun stjórnarskrárinnar

Nú liggja fyrir tillögur stjórnlagaráðs um breytingar á stjórnarskrá íslenska lýðveldisins...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 06:00

Menntun ábyrgra stjórnenda – ábyrgð háskóla

Leiðtogar dagsins í dag, hvort sem er í stjórnmálum eða viðskiptalífi, standa frammi fyrir...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 06:00

Velferð barna í forsjárdeilum

Karvel Aðalsteinn Jónsson skrifar grein í Fréttablaðið 7. febrúar þar sem hann spyr mig í ...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 06:00

Slys aldarinnar við Hringbraut eða sóun í Fossvogi?

Guðjón Baldursson læknir skrifaði í Fbl. og rökstuddi að Háskólasjúkrahús (HSH) við Hringb...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 06:00

Val um skólastefnu – já takk!

Tilefni þessarar greinar er að vekja athygli foreldra 6 ára barna, sem nú eru að innrita b...  

Meira
Aðsendar greinar 07. feb. 2012 13:00

Konur og samkeppnishæfni Evrópu

Efnahagssamdráttur, einkum í Evrópu, hefur verið efst á baugi nær allra alþjóðlegra funda ...  

Meira
Aðsendar greinar 07. feb. 2012 06:00

Sagan um neysluhléið

Á góðæristímum Íslands voru miklir erfiðleikar við að manna leikskólana. Það var næga vinn...  

Meira
Aðsendar greinar 07. feb. 2012 06:00

Veist þú betur Ögmundur ?

Þann 10. febrúar n.k. mun Félag um foreldrajafnrétti standa fyrir ráðstefnu um fyrirhugaða...  

Meira
Aðsendar greinar 07. feb. 2012 06:00

Borgin mismunar í framlögum til félagsstarfs

Borgaryfirvöld styðja að mörgu leyti vel við bakið á frjálsri félagastarfsemi barna og ung...  

Meira
Aðsendar greinar 07. feb. 2012 06:00

Að fermast upp á Faðirvorið

Þær fréttir berast úr íslenska grunnskólakerfinu að fjórði hver drengur sem útskrifast get...  

Meira
Aðsendar greinar 07. feb. 2012 06:00

Endurskoðun eða uppstokkun?

Eftir að hafa unnið að endurskoðun stjórnarskrár lýðveldisins í tæpa fjóra mánuði skilaði ...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 15:00

Áskorun réttarkerfis og samfélags

Virðingin sem mér var sýnd! Ég bar ekki virðingu fyrir sjálfri mér og að mér skyldi sýnd þ...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 12:54

Dagur leikskólans

Í dag er haldinn hátíðlegur í fimmta sinn Dagur leikskólans. Fyrir rúmum 60 árum síðan eða...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 06:00

Já á landsbyggðinni

Löng hefð er fyrir því að þjónustuver Já og forvera fyrirtækisins séu staðsett bæði á land...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 12:57

Stjórnvöld biðjist afsökunar

Það verður að teljast sigur þegar umboðsmaður skuldara tók málstað lánþega í útvarpsþætti ...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 06:00

Sujud er orðin þriggja ára

Hún fæddist í Zeitun á Gazaströndinni og tilheyrir Samuni ættinni. Fyrir þremur árum fæddi...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 06:00

Erum við verri en annað fólk?

Ég hef fengið tækifæri til að búa í nokkrum ólíkum löndum og kynnast öðrum þjóðum. Í grófu...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 06:00

Skýrslu Hagfræðistofnunar verulega ábótavant

Nýverið birti Hagfræðistofnun Háskólans skýrslu sína um tillögur Hagsmunasamtaka heimilann...  

Meira
Aðsendar greinar 05. feb. 2012 12:09

Yfirlýsing frá Jóni Ásgeiri Jóhannessyni

Í tilefni þess sem kemur fram í lífeyrissjóðaskýrslunni að Baugur Group hf. hafi borið áby...  

Meira
Aðsendar greinar 05. feb. 2012 06:00

Æskilegt að velja heilkornavörur

Nýlega voru birtar niðurstöður úr landskönnun á mataræði sem fram fór á árunum 2010-2011. ...  

Meira
Aðsendar greinar 04. feb. 2012 11:00

Spornum við útbreiðslu krabbameina

Alþjóðlegur dagur baráttu gegn krabbameinum er í dag, 4. febrúar, haldinn ár hvert samkvæm...  

Meira
Aðsendar greinar 04. feb. 2012 06:00

Hvers vegna er verið að halda upplýsingum um alvarlegar aukaverkanir HPV –bóluefnanna frá fólki?

Það er greinilegt á öllu að það þarf fleiri menn en þetta umdeilda lið þarna frá Landlækni...  

Meira
Aðsendar greinar 04. feb. 2012 06:00

Perlu í Perluna

Þegar Perlan var byggð efst á Öskjuhlíðinni um 1990 voru aðrir tímar. Hitaveitan var ekki ...  

Meira
Aðsendar greinar 04. feb. 2012 06:00

Hvað er „Liberal Democrats“ og hvað mundi það þýða fyrir íslenskt samfélag

Ég heyrði talað um „Liberal Democrats“ og velti fyrir mér hvað þetta væri á ís...  

Meira
Aðsendar greinar 04. feb. 2012 06:00

Eru konur konum verstar?

Fimmtudaginn 26. janúar sl. veitti Félag kvenna í atvinnurekstri (FKA) Katrínu Olgu Jóhann...  

Meira
Aðsendar greinar 03. feb. 2012 23:08

Harður árekstur

Einn eftirminnilegasti kennari sem ég hef haft í gegnum tíðina er Þorsteinn Gylfason heiti...  

Meira
Aðsendar greinar 03. feb. 2012 14:45

Áætlun um efnahagslegt öryggi

Við forsvarsmenn sex vinstriflokka á Norðurlöndunum krefjumst þess að reglur verði settar ...  

Meira
Aðsendar greinar 03. feb. 2012 08:00

Nýr Landspítali við Hringbraut: Nei, takk!

Þegar músin tísti vöknuðu ljónin í skóginum. Annar höfundur þessarar greinar skrifaði tvær...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Atvinna
  • Serblad
  • Serblad
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Aðsendar greinar / Alex Jurshevski og þingmenn Íslands