Verkaskipting og samstarf FME og Seðlabankans

Fréttablaðið Aðsendar greinar 18. mars 2010 06:00
Gunnar Axel Axelsson
Gunnar Axel Axelsson

Gunnar Axel Axelsson skrifar um ábyrgð á fjármálastöðugleika og fall fjármálakerfisins.

Bæði lagaákvæði og sérstakur samstarfssamningur Seðlabankans og Fjármálaeftirlitisins á að tryggja skýra verkaskiptingu og gagnkvæma upplýsingaskyldu þessara lykilstofnana við viðhald fjármálastöðugleika. Alþingi þarf að rýna í niðurstöður skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis um framkvæmdina og búa sig undir að skerpa enn á lögum ef þörf krefur.

Orð sem þáverandi formaður bankastjórnar Seðlabanka Íslands lét falla á fundi Viðskiptaráðs 18. nóvember 2008 vöktu nokkra athygli og viðbrögð hagfræðinga. Þar vísaði formaðurinn til laganna um opinbert eftirlit með fjármálafyrirtækjum frá 1998 og sagði m.a.

„[B]ankaeftirlit var undan Seðlabanka Íslands tekið og með því fóru nær allar heimildir bankans og skyldur til að fylgjast með því sem var að gerast innan bankakerfisins." Síðan vék formaðurinn að víðtækum heimildum FME til innra eftirlits hjá fjármálastofnunum og bætti við „Seðlabankinn hefur engin þess háttar úrræði lengur, enda hlutverki hans breytt."

Síðar verður vikið að þeim öflugu stjórntækjum gagnvart fjármálafyrirtækjum sem Seðlabankinn ræður yfir sem sjálfstætt stjórnvald og hefur heimild til að beita án samráðs við ráðherra, en í bili er staldrað við þá mynd sem í þessum orðum birtist af tveimur stofnunum með ólík verksvið þar sem önnur hefur tækin til afla upplýsinga um stöðu einstakra stofnana. Hún er beinlínis í mótsögn við þá áherslu á samfellu í starfi, gagnkvæma upplýsingaskyldu og samræmd viðbrögð sem kemur fram bæði í lögum og gildandi samstarfssamningi aðila.

Þess er að vænta að skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis varpi ljósi á hvernig báðar stofnanir sinntu þessu samstarfi, upplýsingamiðlun og viðbrögðum. Komi í ljós að þar hafi einhver misbrestur orðið í samstarfinu eða á skilningi aðila á ætlan löggjafans hlýtur Alþingi að taka til rækilegrar skoðunar hvernig hægt er að skýra verkaskiptinguna og samstarfið enn frekar.



Skýr verkaskipting og upplýsingaskylda
Allt frá stofnun Fjármálaeftirlitsins með lögum um opinbert eftirlit með fjármálafyrirtækjum árið 1998 hefur megináherslan verið lögð á náið samstarf og upplýsingamiðlun við Seðlabankann þannig að báðir aðilar byggi á sömu upplýsingunum, hvor á sínu ábyrgðarsviði. Seðlabankinn lítur til bankakerfisins í heild, greiðslumiðlunar og starfsumhverfis fjármálafyrirtækja á meðan Fjármálaeftirlitið fylgist með einstökum fyrirtækjum og stöðu þeirra. Um verkaskiptingu og eftirlitshlutverk Seðlabankans vegna fjármálastöðugleika segir m.a. í greinargerð með frumvarpi til laga um bankann frá 2001: „ Seðlabankinn beinir fyrst og fremst sjónum að hinu þjóðhagslega umhverfi fjármálakerfisins og að fjármálakerfinu í heild, styrk þess og veikleikum. Bankinn leitast við að stuðla að öryggi fjármálakerfisins."
Þessari verkaskiptingu fylgir svo líka samráðsskylda og upplýsingamiðlun. Í greinargerð með frumvarpinu um opinbert eftirlit með fjármálafyrirtækjum frá 1998 segir orðrétt: „ Lögð er áhersla á að huga sérstaklega að starfstengslum stofnunarinnar við Seðlabanka Íslands. Nauðsynlegt sé að tryggja að Seðlabankinn geti í starfsemi sinni nýtt sér þær upplýsingar sem aflað er innan eftirlitsstofnunarinnar og öfugt."
Þessu var m.a. fylgt eftir í 14. grein laganna um FME með eftirfarandi hætti: „Fjármálaeftirlitið skal veita Seðlabankanum allar upplýsingar sem stofnunin býr yfir og nýtast í starfsemi bankans. Komi í ljós grunsemdir um bresti í fjárhagslegri stöðu eftirlitsskyldra aðila, sem eru í viðskiptum við Seðlabankann, skal Fjármálaeftirlitið tafarlaust gera bankastjórn Seðlabankans viðvart." Til viðbótar var svo kveðið á um gerð samstarfssamning þessara stofnana og að einn af bankastjórum Seðlabankans sitji í stjórn FME og stjórnarformaður FME í bankaráði Seðlabankans.
Í samræmi við þetta hefur bankastjórn Seðlabankans gert sérstaka samþykkt um hlutverk sitt og aðerðir vegna tryggingar fjámálastöðugleika en að henni verður vikið sérstaklega í næstu grein.


Samstarfssamningur SÍ og FME
Nýjasti samstarfssamningur Seðlabankans og FME er frá því í október 2006. Þar eru ákveðnir reglubundnir upplýsingafundir. Á fundum forstjóra FME og bankastjórnar SÍ skal „fjallað um mat Seðlabankans á þróun rekstrarumhverfis fyrirtækja á fjármálamarkaði og hugsanleg áhrif á afkomu þeirra. Jafnframt skal fjallað um mat Fjármálaeftirlitsins á fjárhagsstöðu helstu eftirlitsskyldra aðila, einkum þeirra sem eru í viðskiptum við Seðlabankann." Þessu til viðbótar segir að sérfræðingar „sem fjalla um vísbendingar um kerfisáhættu á fjármálamarkaði og starfandi eru innan Fjármálaeftirlitsins og Seðlabankans skulu halda fundi eigi sjaldnar en ársþriðjungslega."
Grein 5.2. í samningnum tekur svo af öll tvímæli um samstarf aðila og frumkvæðisskyldu ef þeir verða þess áskynja að eitthvað sé í ólagi:
„Leiði athuganir Fjármálaeftirlitsins í ljós grunsemdir um bresti í fjárhagslegri stöðu eftirlitsskyldra aðila sem eru í viðskiptum við Seðlabankann eða eru umsvifamiklir á markaði, eða alvarlega kerfislæga hættu á fjármálamarkaði að öðru leyti, skal Fjármálaeftirlitið tafarlaust gera bankastjórn Seðlabankans viðvart. Leiði athuganir Seðlabankans í ljós grunsemdir um bresti í fjárhagslegri stöðu fyrirtækja á fjármálamarkaði eða alvarlega erfiðleika á fjármálamarkaði að öðru leyti, skal Seðlabankinn tafarlaust gera forstjóra Fjármálaeftirlitsins viðvart. Í þessum tilvikum bregðast forstjóri Fjármálaeftirlitsins og bankastjórn Seðlabankans við í samræmi við innri reglur hvorrar stofnunar."


Sjálfstæði stofnana frá fagráðherrum
Bæði Seðlabankinn og FME hafa talsverða sérstöðu meðal stofnana hins opinbera vegna þess formlega sjálfstæðis sem þær njóta. Í þeirri skýrslu um opinbert eftirlit með fjármálafyrirtækjum sem lá til grundvallar lögunum frá 1998 voru skoðaðar fjórar mögulegar staðsetningar fjármálaeftirlits í stjórnsýslunni: Eftirlit tilheyri seðlabanka eða viðskiptaráðuneyti, sé sjálfstæð stofnun eða blanda af tveimur eða þremur ofangreindra leiða. Eins og fram kemur í lögum um Fjármálaeftirlitið varð niðurstaðan sú að FME væri sjálfstæð stofnun á sviði viðskiptaráðuneytis. Hlutverk ráðherra takmarkast við að skipa stjórn sem síðan ræður forstjóra. FME skal upplýsa ráðherra um störf stofnunarinnar með árlegri skýrslu en eins og fram kemur í lögum og greinargerðum frá 1998 er beinlínis gert ráð fyrir að ráðherra hafi engin afskipti af störfum FME. Þegar lögunum um fjármálaeftirlit var breytt 2006 var þetta sjálfstæði ítrekað með því að taka fram að ákvörðunum FME verði ekki skotið til ráðherra. Þessu er lýsta þannig í greinargerð: „Þótt enginn vafi hafi leikið á sjálfstæði Fjármálaeftirlitsins í störfum sínum gagnvart ráðherra er talið rétt að hnykkja á sjálfstæði þess með tillögu þessari."
Árið 1999 kom út skýrsla nefndar um starfsskilyrði stjórnvalda, eftirlit með starfsemi þeirra og viðurlög við réttarbrotum í stjórnsýslu, undir forystu dr. Páls Hreinssonar. Þar er lýst stjórnsýslulegum afleiðingum þess að hafa FME svo sjálfstætt stjórnvald. Orðrétt segir í skýrslunni:
„Þegar komið er á fót slíku sjálfstæðu stjórnvaldi sviptir löggjafinn ráðherra almennum stjórnunar- og eftirlitsheimildum yfir stjórnvaldinu og afléttir um leið þinglegri ábyrgð og ráðherraábyrgð af hlutaðeigandi ráðherra að því er snertir meðferð þessara valdheimilda. Þetta leiðir til þess að ráðherra getur ekki gefið slíku sjálfstæðu stjórnvaldi almenn eða sérstök tilmæli um úrlausn mála, nema hafa til þess lagaheimild. Ráðherra hefur heldur ekki eftirlit með störfum slíkra stjórnvalda, nema svo sé fyrir mælt í lögum."


Er vilji til að auka beina ráðherraábyrgð?
Í kjölfar hruns fjármálakerfisins hefur ítrekað komið fram sú skoðun að stjórnvöld hefðu átt að beita sér mun ákveðnar en gert var. Þá er ekki aðeins vísað í hagstjórnartækin og breytingar á lögum og reglum í samræmi við tillögur eftirlitsstofnana heldur að einstakir fagráðherrar hefðu átt að beita sér með einhverjum tilteknum hætti gagnvart sínum stofnunum eða ganga í verkefni á þeirra sviði. Sama umræða er uppi nú varðandi störf og starfskjör skilanefnda gömlu bankanna sem starfa samkvæmt skipan FME.
Í þessari umræðu allri eru valdmörk ráðherra og stofnana óskýr og því afar mikilvægt að skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis varpi ekki aðeins skýru ljósi á þau heldur sé þar að finna leiðarvísi að fyrirkomulagi til framtíðar. Komi fram sterk krafa um auknar valdheimildir beint til fagráðherra eða sterkari tengsl ráðuneyta og eftirlitsstofnana gæti það verið tilefni sjálfstæðrar skoðunar löggjafans þótt ávallt verði að gæta fyllstu varúðar í því að tengja pólitískt vald og eftirlitsstofnanir með víðtækar heimildir til upplýsingaöflunar og beitingu viðurlaga.


Lærdómar til framtíðar
Mikilvægt er að niðurstöður rannsóknarnefndar Alþingis nýtist okkur í raun til að draga lærdóma af því sem gerðist síðustu áratugina í íslensku hagkerfi og leiddi til hruns fjármálakerfisins. Til að geta gripið til ráðstafana sem koma í veg fyrir að sú saga endurtaki sig þurfum við að greina stöðuna eins og hún var, skilja hvernig hún leiddi til hrunsins og finna hvar bæta þarf úr. Benda orð formanns bankastjórnar Seðlabankans á fundi viðskiptaráðs til þess að einhver vafi hafi leikið á gagnkvæmri upplýsinga- og samstarfsskyldu Seðlabanka og FME eða að framkvæmdin hafi ekki verið sem skyldi? Því þarf að svara. Í næstu grein mun ég víkja sérstaklega að þeirri ríku frumkvæðisskyldu sem hvílir á Seðlabanka Íslands sem sjálfstæðu stjórnvaldi. Í umræðu dagsins virðist þetta mikilvæga hlutverk hafa dregist saman í einhvers konar viðvörunarhlutverk sem er órafjarri markmiði laga um Seðlabankann, samþykkt bankastjórnar um hlutverk sitt við varðveislu fjármálastöðugleika, greinargerðum og ræðum um málið. Er mögulegt að lykilaðilar í aðdraganda fjármálahrunsins hafi haft aðrar hugmyndir um hlutverk sitt og tiltæk verkfæri en lög gerðu ráð fyrir og gengið hefur verið út frá?
Höfundur er viðskiptafræðingur og áhugamaður um málefni banka og sparisjóða

Fleiri fréttir - Aðsendar greinar

Aðsendar greinar 11. feb. 2012 06:00

Menntun má tæta

Tilraunir sveitarfélaga til að treysta fjárhagsstöðu sína og draga úr útgjöldum hafa falis...  

Meira
Aðsendar greinar 11. feb. 2012 06:00

Meirihlutinn ræður

Fimmtudaginn 12. jan. sl. varð áhugaverð uppákoma í bæjarráði Kópavogs. Þá ákvað bæjarráð ...  

Meira
Aðsendar greinar 11. feb. 2012 06:00

Brotin fjölskylda eða betra líf?

Að gifta sig er hamingja en að skilja er óhamingja. Eða hvað?...  

Meira
Aðsendar greinar 11. feb. 2012 06:00

Vernd barna gegn kynferðislegum glæpum

Það er dapurleg staðreynd að fjöldi barna í heiminum í dag verður fyrir kynferðislegu ofbe...  

Meira
Aðsendar greinar 11. feb. 2012 06:00

Hrunið 2016

Það er haustið 2016 og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn er aftur kominn til Íslands. Í þetta sin...  

Meira
Aðsendar greinar 10. feb. 2012 14:00

Vísindi, veiðar og mannréttindi

Hvernig kerfi eiga Íslendingar að nota við fiskveiðar? Á undanförnum árum hafa verið gerða...  

Meira
Aðsendar greinar 10. feb. 2012 06:00

Ruglið og reikningsgetan

Fjórði hver drengur, sem útskrifast úr grunnskóla, er sagður ekki kunna að lesa. Enn stærr...  

Meira
Aðsendar greinar 10. feb. 2012 06:00

Má gera okkur öllum upp skoðanir?

Hæfileikafólk á Íslandi er álíka margt og í þrjú hundruð þúsund manna borg annars staðar í...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 03:13

Motörhead gegn íslenska ríkisbákninu

Á hverjum degi flytja fimm manns frá Íslandi til þess að hefja nýtt líf í öðru landi. Efti...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Opið bréf til Ögmundar Jónassonar

Á Íslandi er skilnaðartíðni há en lagaumhverfið hefur ekki tekið mið af því á Íslandi í sa...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Það er ljótt að skilja útundan herra borgarstjóri

Ég skora á borgarstjórann í Reykjavík að draga til baka ákvörðun varðandi niðurfellingu ne...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Breytt framtíðarsýn lesblindra

Flestar skólabyggingar á Íslandi í dag eru með þeim hætti að fatlaðir eiga auðvelt með að ...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Til of mikils mælst?

Þegar ógnvekjandi tölur um treglæsi unglinga birtust sl. haust tók ég mig til og skrifaði ...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Arðurinn – 44:2 fyrir LÍÚ

Hagstofa Íslands birti fyrir nokkrum dögum nákvæm gögn um afkomu sjávarútvegsins árið 2010...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Lendandi á Hólmsheiði í 96-98% tilvika – 95% er nóg

Háskólinn í Reykjavík (HR) og talsmenn flugvallar í Vatnsmýri (flugvallarsinnar) stóðu fyr...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Sæll Sighvatur Björgvinsson

Við eigum sameiginlegt áhugamál sem eru íslenskir grunnskólar. Af skrifum þínum má þó ætla...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Heggur sá er hlífa skyldi

Ekki alls fyrir löngu stóð Skóla- og frístundaráð Reykjavíkur (áður Menntaráð) frammi fyri...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Hvað hefur komið fyrir litla Ísland?

Ég var agndofa í lok vinnudags í byrjun árs....  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Ávöxtun (tap) lífeyrissjóða

Nýlega er komin út skýrsla rannsóknarnefndar um lífeyrissjóði. Mikið hefur verið rætt um h...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 06:00

PIP brjóstapúðamálið – um staðreyndir og villandi málflutning

Liðlega 400 íslenskar konur fengu brjóstafyllingar frá franska framleiðandanaum Poly Impla...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 14:30

Hvað með ristilkrabbamein?

Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra ritar grein í Fréttablaðið þann 4. febrúar sl. Þar ...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 09:21

Umræða um tap lífeyrissjóðanna á villigötum

Í nýútkominni rannsóknarskýrslu er fjallað um hvernig íslensku lífeyrissjóðunum vegnaði í...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 06:00

Endurskoðun stjórnarskrárinnar

Nú liggja fyrir tillögur stjórnlagaráðs um breytingar á stjórnarskrá íslenska lýðveldisins...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 06:00

Menntun ábyrgra stjórnenda – ábyrgð háskóla

Leiðtogar dagsins í dag, hvort sem er í stjórnmálum eða viðskiptalífi, standa frammi fyrir...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 06:00

Velferð barna í forsjárdeilum

Karvel Aðalsteinn Jónsson skrifar grein í Fréttablaðið 7. febrúar þar sem hann spyr mig í ...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 06:00

Slys aldarinnar við Hringbraut eða sóun í Fossvogi?

Guðjón Baldursson læknir skrifaði í Fbl. og rökstuddi að Háskólasjúkrahús (HSH) við Hringb...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 06:00

Val um skólastefnu – já takk!

Tilefni þessarar greinar er að vekja athygli foreldra 6 ára barna, sem nú eru að innrita b...  

Meira
Aðsendar greinar 07. feb. 2012 13:00

Konur og samkeppnishæfni Evrópu

Efnahagssamdráttur, einkum í Evrópu, hefur verið efst á baugi nær allra alþjóðlegra funda ...  

Meira
Aðsendar greinar 07. feb. 2012 06:00

Sagan um neysluhléið

Á góðæristímum Íslands voru miklir erfiðleikar við að manna leikskólana. Það var næga vinn...  

Meira
Aðsendar greinar 07. feb. 2012 06:00

Veist þú betur Ögmundur ?

Þann 10. febrúar n.k. mun Félag um foreldrajafnrétti standa fyrir ráðstefnu um fyrirhugaða...  

Meira
Aðsendar greinar 07. feb. 2012 06:00

Borgin mismunar í framlögum til félagsstarfs

Borgaryfirvöld styðja að mörgu leyti vel við bakið á frjálsri félagastarfsemi barna og ung...  

Meira
Aðsendar greinar 07. feb. 2012 06:00

Að fermast upp á Faðirvorið

Þær fréttir berast úr íslenska grunnskólakerfinu að fjórði hver drengur sem útskrifast get...  

Meira
Aðsendar greinar 07. feb. 2012 06:00

Endurskoðun eða uppstokkun?

Eftir að hafa unnið að endurskoðun stjórnarskrár lýðveldisins í tæpa fjóra mánuði skilaði ...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 15:00

Áskorun réttarkerfis og samfélags

Virðingin sem mér var sýnd! Ég bar ekki virðingu fyrir sjálfri mér og að mér skyldi sýnd þ...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 12:54

Dagur leikskólans

Í dag er haldinn hátíðlegur í fimmta sinn Dagur leikskólans. Fyrir rúmum 60 árum síðan eða...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 06:00

Já á landsbyggðinni

Löng hefð er fyrir því að þjónustuver Já og forvera fyrirtækisins séu staðsett bæði á land...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 12:57

Stjórnvöld biðjist afsökunar

Það verður að teljast sigur þegar umboðsmaður skuldara tók málstað lánþega í útvarpsþætti ...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 06:00

Sujud er orðin þriggja ára

Hún fæddist í Zeitun á Gazaströndinni og tilheyrir Samuni ættinni. Fyrir þremur árum fæddi...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 06:00

Erum við verri en annað fólk?

Ég hef fengið tækifæri til að búa í nokkrum ólíkum löndum og kynnast öðrum þjóðum. Í grófu...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 06:00

Skýrslu Hagfræðistofnunar verulega ábótavant

Nýverið birti Hagfræðistofnun Háskólans skýrslu sína um tillögur Hagsmunasamtaka heimilann...  

Meira
Aðsendar greinar 05. feb. 2012 12:09

Yfirlýsing frá Jóni Ásgeiri Jóhannessyni

Í tilefni þess sem kemur fram í lífeyrissjóðaskýrslunni að Baugur Group hf. hafi borið áby...  

Meira
Aðsendar greinar 05. feb. 2012 06:00

Æskilegt að velja heilkornavörur

Nýlega voru birtar niðurstöður úr landskönnun á mataræði sem fram fór á árunum 2010-2011. ...  

Meira
Aðsendar greinar 04. feb. 2012 11:00

Spornum við útbreiðslu krabbameina

Alþjóðlegur dagur baráttu gegn krabbameinum er í dag, 4. febrúar, haldinn ár hvert samkvæm...  

Meira
Aðsendar greinar 04. feb. 2012 06:00

Hvers vegna er verið að halda upplýsingum um alvarlegar aukaverkanir HPV –bóluefnanna frá fólki?

Það er greinilegt á öllu að það þarf fleiri menn en þetta umdeilda lið þarna frá Landlækni...  

Meira
Aðsendar greinar 04. feb. 2012 06:00

Perlu í Perluna

Þegar Perlan var byggð efst á Öskjuhlíðinni um 1990 voru aðrir tímar. Hitaveitan var ekki ...  

Meira
Aðsendar greinar 04. feb. 2012 06:00

Hvað er „Liberal Democrats“ og hvað mundi það þýða fyrir íslenskt samfélag

Ég heyrði talað um „Liberal Democrats“ og velti fyrir mér hvað þetta væri á ís...  

Meira
Aðsendar greinar 04. feb. 2012 06:00

Eru konur konum verstar?

Fimmtudaginn 26. janúar sl. veitti Félag kvenna í atvinnurekstri (FKA) Katrínu Olgu Jóhann...  

Meira
Aðsendar greinar 03. feb. 2012 23:08

Harður árekstur

Einn eftirminnilegasti kennari sem ég hef haft í gegnum tíðina er Þorsteinn Gylfason heiti...  

Meira
Aðsendar greinar 03. feb. 2012 14:45

Áætlun um efnahagslegt öryggi

Við forsvarsmenn sex vinstriflokka á Norðurlöndunum krefjumst þess að reglur verði settar ...  

Meira
Aðsendar greinar 03. feb. 2012 08:00

Nýr Landspítali við Hringbraut: Nei, takk!

Þegar músin tísti vöknuðu ljónin í skóginum. Annar höfundur þessarar greinar skrifaði tvær...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Atvinna
  • Serblad
  • Serblad
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Aðsendar greinar / Úkraína / Verkaskipting og samstarf FME og Seðlabankans