Messi einu marki frá markameti Barcelona í Meistaradeildinni - myndir

Vísir Meistaradeildin 18. mars 2010 17:00
Lionel Messi fagnar öđru marka sinna í gćr.
Lionel Messi fagnar öđru marka sinna í gćr. Mynd/Getty Images
Óskar Ófeigur Jónsson skrifar:
Lionel Messi fór á kostum í 4-0 sigri Barcelona á Stuttgart í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar í gær. Messi skoraði tvö mörk í leiknum og hefur þar með skorað 21 mark í Meistaradeildinni frá upphafi.

Hér fyrir neðan má sjá myndasafn frá eftirminnilegu kvöldi litla argentínska snillingsins á Camp Nou í gær.

Eftir þessi tvö glæsilegu mörk þá vantar Lionel Messi aðeins eitt mark upp á að jafna markamet félagsins í Meistaradeildinni en það met á Brasilíumaðurinn Rivaldo. Messi hefur skorað mörkin sín í 42 leikjum, 9 þeirra komu í fyrra en hann hefur skorað 4 mörk í átta leikjum á þessu tímabili.

Messi vantar ennfremur fjögur mörk til viðbótar til þess að jafna landa sinn Hernán Crespo sem er sá Argentínumaður sem hefur skorað flest mörk í Meistaradeildinni frá upphafi.

Fleiri fréttir - Meistaradeildin

Meistaradeildin 03. feb. 2012 23:45

Slasađist viđ tannburstun og missir af leik gegn Barcelona

Knattspyrnumenn missa stundum af mikilvćgum leikjum eđa heilum stórmótum í knattspyrnu af ...  

Meira
Meistaradeildin 03. feb. 2012 20:30

Ancelotti: Real og Barca eru langsigurstranglegust í Meistaradeildinni

Carlo Ancelotti, stjóri Paris Saint-Germain, er sannfćrđur um ađ Meistaradeildarbikarinn s...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viđskipti
  • Lífiđ

Nýjast á Vísi

Fréttir eftir mánuđi

Ţú ert hér: Forsíđa / Sport / Fótbolti / Meistaradeildin / Messi einu marki frá markameti Barcelona í Meistaradeildinni - myndir