KSÍ lét dótturfélag sitt sem sá um samninga vegna sjónvarpsútsendinga frá knattspyrnuleikjum taka á sig skuldir vegna endurbóta á stúku Laugardalsvallar. Fyrirtækið skuldaði einn milljarð króna í lok árs 2008, en KSÍ færði tekjur vegna útsendinga í nýtt félag.
Bygging nýju stúkunnar á Laugardalsvelli reyndist Knattspyrnusambandi Íslands þungbær fjárhagslega en heildarkostnaður við bygginguna endaði í 1600 milljónum króna, um tvö hundruð milljónir króna voru greiddar af íslenska ríkinu og 850 milljónir króna af reykvískum skattgreiðendum.
KSÍ stofnaði á sínum tíma sérstakt dótturfélag, KSÍ ehf. og var tilgangurinn kaup og sala sjónvarpsréttar á knattspyrnuleikjum, markaðsmál og fleira, samkvæmt stofnsamningi félagsins frá árinu 2002. Þetta félag tók jafnframt á sig skuldbindingar vegna byggingar nýju stúkunnar.
Í lok árs 2008 skuldaði KSÍ ehf. rúmlega einn milljarð króna og eigið fé félagsins var neikvætt um 373 milljónir, samkvæmt ársreikningi.
Á árinu 2007 stofnaði KSÍ nýtt félag, KSÍ íslensk knattspyrna ehf. Það félag gerir nú sjónvarpssamninga í nafni KSÍ, sér um markaðsmál og fleira og tók við hlutverki eldra félagsins.
Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, sem staddur er erlendis, segir að hlutverki KSÍ ehf. hafi verið breytt og það fengið þann tilgang að reka húsnæði sambandsins, nýju stúkuna við Laugardalsvöll. Hann segir að þetta hafi verið gert vegna ábendinga endurskoðenda sambandsins, Deloitte og m.a hafi skattalegt hagræði ráðið för.
Geir segir jafnframt að framkvæmdalán sem hafi hvílt á KSÍ ehf. hafi verið greitt að fullu á síðasta ári. Fjárhagsstaða knattspyrnusambandsins sé góð og engin lán hvíli á samstæðunni í dag.