Ríkisskattstjóri: Getum ekki staðið í því að vera skattaráðgjafi bankanna

Vísir Innlent 18. mars 2010 18:43
Ríkisskattstjóri: Getum ekki staðið í því að vera skattaráðgjafi bankanna
Þorbjörn Þórðarson skrifar:

Kaupþing banki óskaði ítrekað eftir upplýsingum frá Ríkisskattstjóra um hvernig ætti að skattleggja hagnað vegna afleiðuviðskipta á gjaldeyri en fékk ekki svör. Ríkisskattstjóri segist ekki geta staðið í því að vera einhvers konar skattaráðgjafi bankanna.

Með því að senda bréf og endurákvarða skattlagningu á þúsund einstaklinga vegna afleiðuviðskipta upp á hundruð milljarða króna bætist skatturinn í hóp kröfuhafa þessara einstaklinga, en margir þeirra tóku lán fyrir þessum viðskiptum.

Stefán Skjaldarson, skattrannsóknarstjóri, segir að einn banki hafi haldið eftir staðgreiðslu vegna afleiðuviðskipta með hlutabréf að hluta til. Hann segir að þetta hafi verið sáralítill hluti af heildarviðskiptum bankanna með þessar afurðir.

Um er að ræða Kaupþing banka, en samkvæmt upplýsingum þaðan missti bankinn mikið af viðskiptavinum í afleiðuviðskiptum yfir til bæði Glitnis og Landsbankans þar sem þar var staðgreiðsla vegna þessara viðskipta ekki færð til bókar. Voru viðskiptavinir Kaupþings óhressir með að dreginn var skattur af þeim og færðu sig því annað.

Velta má fyrir sér hvers vegna skattrannsóknarstjóri lét hjá líða að rannsaka ekki hina bankana tvo þegar einn banki, Kaupþing, var að skattleggja hluta af afleiðuviðskiptum með hlutabréf. Átti það ekki að kveikja á viðvörunarbjöllum?

Stefán segir að almennt hafi ríkt traust um það að menn hafi staðið rétt að málum varðandi skattskil. E.t.v sé það ástæða þess að ekki hafi verið farið út í sérstaka rannsókn á því hvort bankarnir hafi verið að halda eftir staðgreiðslu vegna afleiðuviðskipta.

Samkvæmt upplýsingum frá Kaupþingi óskaði bankinn sérstaklega eftir því hvernig ætti að skattleggja afleiður með gjaldeyri og fékk ekki skýr svör við því.

Skúli Eggert Þórðarson, ríkisskattstjóri, kannast við þetta og segir í skriflegu svari við fyrirspurn fréttastofu: „Því miður hafa spurningar á stundum verið óskýrar eða settar þannig fram að ríkisskattstjóri væri kominn í hlutverk skattaráðgjafa. Slíkt er ekki verkefni embættisins og slíkum beiðnum er ekki ansað. Í grundvallaratriðum er skattlagning afleiðuviðskipta skýr, sbr. leiðbeiningar RSK bæði útgefnar og í bréfum."

Þessi starfsemi virðist hafa haldið áfram að einhverju leyti í bönkunum eftir hrunið. Embætti ríkisskattstjóra gerði athugasemdir við Landsbankann NBI eftir bankahrunið um skattlagningu á afleiðuviðskiptum.


Fleiri fréttir - Innlent

Innlent 12. feb. 2012 20:15

Fyrri stofnfundur Breiðfylkingarinnar haldinn í dag

Í dag var haldinn stofnfundur Breiðfylkingarinnar sem fulltrúar Hreyfingarinnar, Frjálslyn...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 19:45

Rúmur meirihluti vill Ólaf Ragnar áfram

Rúmur meirihluti þjóðarinnar vill að Ólafur Ragnar Grímsson gefi aftur kost á sér í forset...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 18:46

Flestir vildu að Blár Ópal myndi vinna: "Leiðinlegt fyrir sigurlagið“

"Það er skrýtið að þetta hafi ekki verið skýrara,“ segir Ingólfur Þórarinsson, eða I...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 17:26

Hundur fastur í neti - tækjabíll frá slökkviliðinu kallaður til

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var tilkynnt um hund sem væri fastur í netadræsum við Ægisg...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 13:51

Tæplega 80 þúsund atkvæði greidd í Eurovison

Alls voru greidd 79 þúsund atkvæði í Eurovision keppninni sem var sýnd á RÚV í gærkvöldi. ...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 10:53

Beit lögregluþjón

Karlmaður beit lögregluþjón til blóðs í morgun. Maðurinn var stöðaður á Laugaveginum rétt ...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 10:45

Huglausa ljónið féll niður hlera í miðri sýningu

"Samkvæmt öllum myndum og rannsóknum ætti hann að sleppa ótrúlega vel,“ segir leikar...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 10:19

Opið í Böggvistaðafjalli og í Oddsskarði

Lokað er í Bláfjöllum í dag vegna veðurs en þar er bæði hvasst og Blautt. Sömu sögu er að ...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 09:32

Settist upp í lögreglubíl og braut bílrúðu

Ölvaður og æstur maður var handtekinn við krá í Hafnarfirði eftir að hann braut rúðu í lög...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Fréttir eftir mánuði

Þú ert hér: Forsíða / Fréttir / Innlent / Ríkisskattstjóri: Getum ekki staðið í því að vera skattaráðgjafi bankanna