Grætur sig í svefn á hverri nóttu Ingimar Karl Helgason skrifar 18. mars 2010 14:29 „
Ég er að verða matarlaus. Ég veit ekki hvernig ég á að gefa börnunum mínum að borða" segir grátklökk einstæð tveggja barna móðir á þrítugsaldri. Hún gagnrýnir að hún þurfi nú að framvísa launaseðlum og reikningum til að geta fengið mataraðstoð hjá Hjálparstarfi kirkjunnar. „Nógu þung eru skrefin samt, þótt ég þurfi ekki að taka með mér heimilsbókhaldið. Hvað veit ég hvað verður um þessar upplýsingar. Get ég treyst því að þetta verði aldrei opinbert?" spyr konan, sem ekki vill láta nafns síns getið. Ákvörðun Hjálparstarfsins að biðja fólk sem þiggur mataraðstoð að skila yfirliti um tekjur og útgjöld hefur verið kærð til Persónuverndar. „Ég græt mig í svefn á hverri nóttu, því ég á ekki fyrir mat. Ég er búin að missa húsnæðið og bílinn. Ég er á svörtum lista, fæ enga hjálp í bankanum og ég get hreinlega ekki gert neitt," segir konan. Hún segist hafa fengið 10 þúsund krónur hjá Hvítasunnukirkjunni til að kaupa í matinn. Hún býr í sveitarfélaginu Árborg, en segist ekki hafa áunnið sér fullan rétt til bóta, eins og sérstakra húsaleigubóta, í sveitarfélaginu, því til þess þurfi hún að hafa búið þar í ár. Konan segist vera 75% öryrki. Hún fær um það bil 157 þúsund krónur eftir skatt á mánuði. Þar af fari 117 þúsund í húsaleigu. Hún eigi 40 þúsund eftir fyrir öllu öðru. „Ég get ekki keypt skó, eða stígvél eða regnföt handa börnunum, ekki neitt," segir konan, en börnin hennar eru 7 og 9 ára. Hún hafi reynt að komast í ódýrara húsnæði, en ekki haft erindi sem erfiði. Fram kom í fréttum Stöðvar 2, snemma í mánuðinum að við fyrstu matarúthlutun hjálparstofnana hafi myndast langar raðir. Það sé óvenjulegt svo snemma í mánuði. Þær reyni að bregðast við með því að forgangsraða skjólstæðingum sínum eftir því hvar þörfin sé mest.
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Erlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent Ekkert lát á árásum Ísraelsmanna í suðurhluta Líbanon Erlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent Marius látinn laus Erlent Fleiri fréttir „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi Sjá meira