Bensínlítrinn er nú sumstaðar kominn yfir 212 krónur í sjálfsafgreiðslu en ekki eru liðnar nema þrjár vikur síðan eldsneytisverð rauf tvö hundruð króna múrinn.
Frá áramótum hefur bensínlítrinn hækkað í verði um tæpar 25 krónur. Díselolía kostar tæpar 205 krónur í sjálfsafgreiðslu og hefur hækkað um tæpar 20 krónur frá áramótum.