John Terry keyrđi á starfsmann Chelsea án ţess ađ vita af ţví

Vísir Meistaradeildin 17. mars 2010 14:00
John Terry, fyrirliđi Chelsea.
John Terry, fyrirliđi Chelsea. Mynd/AFP
Óskar Ófeigur Jónsson skrifar:
John Terry átti erfitt með að komast frá Stamford Bridge í gærkvöldi eftir tapleikinn á móti Inter Milan í Meistaradeildinni. Fjöldi ljósmyndara kepptust við að ná myndir af honum og konu hans Toni, þegar þau yfirgáfu leikvanginn og svo fór að Terry keyrði á öryggisvörð sem var að reyna að halda ágengum ljósmyndurum í burtu.

Öryggisvörðum Chelsea tókst að búa til braut fyrir bíl John Terry sem keyrði hægt út af vellinum í gegnum alla kösina en varð þó fyrir því óláni að keyra yfir fót eins öryggisvarðarins. Terry tók ekki eftir neinu og keyrði í burtu en hann var seinna látinn vita af því sem gerðist.

Hinn óheppni öryggisverður marðist á fæti og tognaði á ökkla en hann fékk síðar símtal frá fyrirliðanum sem bað hann afsökunar. Það er allt í góðu þeirra á milli.

Bíllinn hans John Terry slapp þó ekki því hann var allur rispaður á hliðunum eftir hina kappsömu ljósmyndara sem gerðu allt til þess að ná í hina fullkomnu mynd af hjónakornunum keyra í burtu.

Hér má sjá frétt og myndir af atvikinu á vefsíðu Daily Mail.





Fleiri fréttir - Meistaradeildin

Meistaradeildin 03. feb. 2012 23:45

Slasađist viđ tannburstun og missir af leik gegn Barcelona

Knattspyrnumenn missa stundum af mikilvćgum leikjum eđa heilum stórmótum í knattspyrnu af ...  

Meira
Meistaradeildin 03. feb. 2012 20:30

Ancelotti: Real og Barca eru langsigurstranglegust í Meistaradeildinni

Carlo Ancelotti, stjóri Paris Saint-Germain, er sannfćrđur um ađ Meistaradeildarbikarinn s...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viđskipti
  • Lífiđ

Nýjast á Vísi

Fréttir eftir mánuđi

Ţú ert hér: Forsíđa / Sport / Fótbolti / Meistaradeildin / John Terry keyrđi á starfsmann Chelsea án ţess ađ vita af ţví