Stofnfjáreigendur í Húnaþingi spyrja um persónulegar ábyrgðir annarra

Vísir Innlent 17. mars 2010 18:34
Stofnfjáreigendur í Húnaþingi spyrja um persónulegar ábyrgðir annarra
Kristján Már Unnarsson skrifar:

Stofnfjáreigendur í Húnaþingi, sem bíða þess að gengið verði að eignum þeirra, leita svara við því hvort þeir sem keyptu bréf í nafni einkahlutafélaga, séu lausir undan persónulegum ábyrgðum. Meðal þeirra eru þrír starfsmenn Sparisjóðs Keflavíkur, allt fruminnherjar, sem skulda hátt í einn milljarð króna.

Um 140 einstaklingar við innanverðan Húnaflóa, að miklu leyti bændur, horfa fram á þungar búsifjar þegar þriggja milljarða króna skuldir verða innheimtar vegna kaupa þeirra á stofnfjárbréfum fyrir tveimur árum í tengslum við sameiningu Sparisjóðs Húnaþings og Stranda við Sparisjóð Keflavíkur.

Bréfin keypti fólkið undantekningalaust í eigin nafni og kröfuhafarnir, Landsbankinn og Sparisjóður Keflavíkur, líta svo á að það sé í persónulegum ábyrgðum. Fulltrúar Húnvetninga, sem sjá meðal annars fram á að missa íbúðarhús og bújarðir, hafa í viðræðum við bankana spurt hvort einnig verði gengið að persónulegum eignum þeirra einstaklinga sem keyptu stofnfjárbréf á sama tíma í nafni einkahlutafélaga, en fengið óljós svör.

Félagið Miðvörður ehf. er eitt dæmið en þrír starfsmenn sparisjóðsins í Keflavík, allt fruminnherjar, þeirra á meðal forstöðumaður fjármálasviðs, keyptu í nafni Miðvarðar stofnfjárbréf í Sparisjóði Keflavíkur og BYR fyrir um 400 milljónir króna, að mestu leyti fyrir erlent lán. Verðmæti bréfanna er hrunið en eftir situr risaskuld í félaginu, 925 milljónir króna, samkvæmt ársreikningi í fyrra.

Líklegt verður að telja að Miðvörður ehf. fari í gjaldþrot en Þröstur Leósson, sem skráður er framkvæmdastjóri Miðvarðar, vill ekki svara því hvort krafan tapast þar með og afskrifast eða hvort þeir eigendurnir séu í persónulegum ábyrgðum.

Hann vill heldur ekki upplýsa hver lánaði þeim peningana en tekur fram að það hafi ekki verið Sparisjóður Keflavíkur. Þremenningarnir eru enn allir starfandi í Sparisjóðnum.

Svo virðist sem það hafi verið regla fremur en undantekning að lán til kaupsýslumanna og lykilstarfsmanna í bönkum vegna verðbréfakaupa hafi verið veitt gegn veðum í bréfunum sjálfum án þess að krafist væri persónulegra ábyrgða.




Fleiri fréttir - Innlent

Innlent 12. feb. 2012 20:15

Fyrri stofnfundur Breiðfylkingarinnar haldinn í dag

Í dag var haldinn stofnfundur Breiðfylkingarinnar sem fulltrúar Hreyfingarinnar, Frjálslyn...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 19:45

Rúmur meirihluti vill Ólaf Ragnar áfram

Rúmur meirihluti þjóðarinnar vill að Ólafur Ragnar Grímsson gefi aftur kost á sér í forset...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 18:46

Flestir vildu að Blár Ópal myndi vinna: "Leiðinlegt fyrir sigurlagið“

"Það er skrýtið að þetta hafi ekki verið skýrara,“ segir Ingólfur Þórarinsson, eða I...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 17:26

Hundur fastur í neti - tækjabíll frá slökkviliðinu kallaður til

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var tilkynnt um hund sem væri fastur í netadræsum við Ægisg...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 13:51

Tæplega 80 þúsund atkvæði greidd í Eurovison

Alls voru greidd 79 þúsund atkvæði í Eurovision keppninni sem var sýnd á RÚV í gærkvöldi. ...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 10:53

Beit lögregluþjón

Karlmaður beit lögregluþjón til blóðs í morgun. Maðurinn var stöðaður á Laugaveginum rétt ...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 10:45

Huglausa ljónið féll niður hlera í miðri sýningu

"Samkvæmt öllum myndum og rannsóknum ætti hann að sleppa ótrúlega vel,“ segir leikar...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 10:19

Opið í Böggvistaðafjalli og í Oddsskarði

Lokað er í Bláfjöllum í dag vegna veðurs en þar er bæði hvasst og Blautt. Sömu sögu er að ...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 09:32

Settist upp í lögreglubíl og braut bílrúðu

Ölvaður og æstur maður var handtekinn við krá í Hafnarfirði eftir að hann braut rúðu í lög...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Fréttir eftir mánuði

Þú ert hér: Forsíða / Fréttir / Innlent / Stofnfjáreigendur í Húnaþingi spyrja um persónulegar ábyrgðir annarra