Stofnfjáreigendur í Húnaþingi, sem bíða þess að gengið verði að eignum þeirra, leita svara við því hvort þeir sem keyptu bréf í nafni einkahlutafélaga, séu lausir undan persónulegum ábyrgðum. Meðal þeirra eru þrír starfsmenn Sparisjóðs Keflavíkur, allt fruminnherjar, sem skulda hátt í einn milljarð króna.
Um 140 einstaklingar við innanverðan Húnaflóa, að miklu leyti bændur, horfa fram á þungar búsifjar þegar þriggja milljarða króna skuldir verða innheimtar vegna kaupa þeirra á stofnfjárbréfum fyrir tveimur árum í tengslum við sameiningu Sparisjóðs Húnaþings og Stranda við Sparisjóð Keflavíkur.
Bréfin keypti fólkið undantekningalaust í eigin nafni og kröfuhafarnir, Landsbankinn og Sparisjóður Keflavíkur, líta svo á að það sé í persónulegum ábyrgðum. Fulltrúar Húnvetninga, sem sjá meðal annars fram á að missa íbúðarhús og bújarðir, hafa í viðræðum við bankana spurt hvort einnig verði gengið að persónulegum eignum þeirra einstaklinga sem keyptu stofnfjárbréf á sama tíma í nafni einkahlutafélaga, en fengið óljós svör.
Félagið Miðvörður ehf. er eitt dæmið en þrír starfsmenn sparisjóðsins í Keflavík, allt fruminnherjar, þeirra á meðal forstöðumaður fjármálasviðs, keyptu í nafni Miðvarðar stofnfjárbréf í Sparisjóði Keflavíkur og BYR fyrir um 400 milljónir króna, að mestu leyti fyrir erlent lán. Verðmæti bréfanna er hrunið en eftir situr risaskuld í félaginu, 925 milljónir króna, samkvæmt ársreikningi í fyrra.
Líklegt verður að telja að Miðvörður ehf. fari í gjaldþrot en Þröstur Leósson, sem skráður er framkvæmdastjóri Miðvarðar, vill ekki svara því hvort krafan tapast þar með og afskrifast eða hvort þeir eigendurnir séu í persónulegum ábyrgðum.
Hann vill heldur ekki upplýsa hver lánaði þeim peningana en tekur fram að það hafi ekki verið Sparisjóður Keflavíkur. Þremenningarnir eru enn allir starfandi í Sparisjóðnum.
Svo virðist sem það hafi verið regla fremur en undantekning að lán til kaupsýslumanna og lykilstarfsmanna í bönkum vegna verðbréfakaupa hafi verið veitt gegn veðum í bréfunum sjálfum án þess að krafist væri persónulegra ábyrgða.