VG alfarið á móti einkaher- Suðurnesjamönnum til skelfingar

Vísir Innlent 17. mars 2010 18:44
VG alfarið á móti einkaher- Suðurnesjamönnum til skelfingar
Andri Ólafsson skrifar:

Litlar líkur eru á því að hugmyndir um einkarekinn flugher á Íslandi verði að veruleika ef þingmenn Vinstri Grænna hafa eitthvað um það að segja. Hollenska fyrirtækið á bakvið hugmyndina talar 200 milljarða fjárfestingu hér á landi, en litlar upplýsingar fást um fyrirtækið.

Þær eru ekki smáar sniðum hugmyndir hollenska fyrirtækisins ECA programs sem kynntar voru í Fréttablaðinu í morgun.

Fyrirtækið ætlar að leigja úr þotur til heræfinga og talar um fjárfestingar upp á 200 milljarða og þrjú hundruð ný störf hér á landi. Einmitt það sem vantar á Reykjanesið þar sem atvinnuleysið er hvað skæðast. Í fréttum RÚV í haust var raunar rætt um fjögurra milljarða króna fjárfestingu og öllu færri störf.

Hvort sem fjárfestingin verður fjórir eða tvö hundruð milljarðar gæti það reynst atvinnulausum suðurnesjamönnum erfitt að heyra álit þingmanna VG. Björgvin Valur Gíslason, Atli Gíslason og Árni Þór Sigurðsson eru allir efins um að hernaðarstarfsemi sem þessi eigi erindi á íslandi.

Árni Þór er beinlínis á móti því að fyrirtækið fá að starfa hér.

En upplýsingar um ECA programs og stjórnendur þess eru af skornum skammti. Samtök hernaðarandstæðinga benda á að heimilisfang fyrirtækisins sé pósthólf í smábæ einum í Hollandi og ekkert símanúmer sé að finna á heimsíðu þess. Tengiliður fyrirtækisins á Íslandi og forstjóri þess segja að fyrirtækið hafi komið að verkefnum í Darfur og Afganistan en fréttastofa hefur ekki fengið það staðfest.



Fleiri fréttir - Innlent

Innlent 12. feb. 2012 20:15

Fyrri stofnfundur Breiðfylkingarinnar haldinn í dag

Í dag var haldinn stofnfundur Breiðfylkingarinnar sem fulltrúar Hreyfingarinnar, Frjálslyn...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 19:45

Rúmur meirihluti vill Ólaf Ragnar áfram

Rúmur meirihluti þjóðarinnar vill að Ólafur Ragnar Grímsson gefi aftur kost á sér í forset...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 18:46

Flestir vildu að Blár Ópal myndi vinna: "Leiðinlegt fyrir sigurlagið“

"Það er skrýtið að þetta hafi ekki verið skýrara,“ segir Ingólfur Þórarinsson, eða I...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 17:26

Hundur fastur í neti - tækjabíll frá slökkviliðinu kallaður til

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var tilkynnt um hund sem væri fastur í netadræsum við Ægisg...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 13:51

Tæplega 80 þúsund atkvæði greidd í Eurovison

Alls voru greidd 79 þúsund atkvæði í Eurovision keppninni sem var sýnd á RÚV í gærkvöldi. ...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 10:53

Beit lögregluþjón

Karlmaður beit lögregluþjón til blóðs í morgun. Maðurinn var stöðaður á Laugaveginum rétt ...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 10:45

Huglausa ljónið féll niður hlera í miðri sýningu

"Samkvæmt öllum myndum og rannsóknum ætti hann að sleppa ótrúlega vel,“ segir leikar...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 10:19

Opið í Böggvistaðafjalli og í Oddsskarði

Lokað er í Bláfjöllum í dag vegna veðurs en þar er bæði hvasst og Blautt. Sömu sögu er að ...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 09:32

Settist upp í lögreglubíl og braut bílrúðu

Ölvaður og æstur maður var handtekinn við krá í Hafnarfirði eftir að hann braut rúðu í lög...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Fréttir eftir mánuði

Þú ert hér: Forsíða / Fréttir / Innlent / Ísland / VG alfarið á móti einkaher- Suðurnesjamönnum til skelfingar