Leggðu á djúpið

Fréttablaðið Fastir pennar 16. mars 2010 06:00
Páll Baldvin Baldvinsson
Páll Baldvin Baldvinsson
Páll Baldvin Baldvinsson skrifar:

Í vikunni er þess minnst að Sinfóníuhljómsveit Íslands hefur starfað í sex áratugi. Vonir brugðust um að hljómsveitin fagnaði afmæli sínu í nýju tónlistarhúsi. Því verða afmælistónleikar hljómsveitarinnar á fimmtudag í dauðum sal Háskólabíós, sal sem hefur reynst hljómsveitinni erfiður allar götur frá því húsið var reist fyrir fjármuni Sáttmálasjóðs 1961. Fyrir þann tíma var hljómsveitinni gert að leika í Austurbæjarbíói og Þjóðleikhúsinu.

Gestir og áhangendur Sinfóníunnar hafa mátt gera sér að góðu að heyra samhljóm hennar í tónleikasölum af öllu tagi til þessa, nema þeir hafi átt því láni að fagna að heyra hana í öllu sínu veldi í bestu tónleikahúsum annarra landa þar sem hún hefur spilað, þar sem hún hefur náð þeim hæðum sem henni eru færar, og uppskorið það lof sem hún á skilið á góðum degi.

Þeir sem njóta sinfónískrar tónlistar að staðaldri vita að efnisskrár stórra hljómsveita geta hljómað misvel. Hin klassíska mennt tónlistar á Íslandi á ekki að baki nema rétta öld. Við upphaf þess tíma áttu tónlistarmenn einungis völ á störfum á öldurhúsum. Salon-tónlist var í besta falli lifibrauð þeirra sem gengið höfðu hinn stranga veg þjálfunar frá blautu barnsbeini þar til ráðist var í að gera sinfóníska sveit úr Hljómsveit Reykjavíkur. Lengi vel var sveitin mönnuð af íslenskum tónlistarmönnum í hlutastarfi og erlendum farandleikurum sem sumir hverjir festu hér rætur. Af samstilltu átaki áhugamanna um tónlistarmenntun og stórri sveit tónlistarmanna hófst sú bylgja sem hefur fleytt okkur hingað: um allt íslenskt samfélag er sístarfandi menntuð og metnaðarfull sveit tónlistarmanna. Æ fleiri búa við langvinna menntun í hljóðfæraleik, kórastarf er í blóma og virk þekking á tónlist og tónlæsi færist í vöxt enn um sinn. Kórónan á því iðandi sköpunarverki er Sinfónían - besta bandið í bænum - eins og elstu menn af poppkynslóðinni kalla hljómsveitina þegar úrdrátturinn verður mönnum tiltækur af virðingu og kosið er að halda sig frá hástemmdu lofi. Því meðal tónlistariðkenda nýtur Sinfónían óskoraðrar virðingar.

En þjóðin - hlustar hún á Sinfóníuna? Víst hlustar hún áköf á sinfóníska tónlist, oftast án þess að gera sér grein fyrir því, í kvikmyndum og í sjónvarpi, hljóðvarpi og af diskum og plötum. Sinfónísk tónlist umlykur okkur í hinum alltumlykjandi tónheimi sem íbúar Vesturlanda hrærast í. Líka við.

Tónleikaflóran á Íslandi er afar fjölskrúðug, sinfónískir tónleikar eru aðeins brot af henni. Á tónleika Sinfóníunnar koma aftur á móti aðeins nokkur hundruð gestir að staðaldri. Forstöðumenn hljómsveitarinnar gera sér vonir um að úr aðsókn rætist þegar Harpan verður komin í fulla nýtingu vor og haust 2011. Gestafjöldi muni þá taka kipp. Þar ræður ekki síst fullvissan um að hið nýja hús skili frábærum hljómburði. Víst er að vistaskiptin, flutningurinn frá vikurmelunum milli Hólavalla og Grímsstaðaholts niður að rótum Arnarhóls, verða hamskipti fyrir hljómsveitina, einstakt sóknarfæri.

Kærkomin og langþráð tímamót í mörgum skilningi. Þó við stöldrum nú við afmæli, þá er ekki hreinni ósk tifandi í hugum okkar en að Sinfóníuhljómsveit Íslands haldi áfram að dafna og þroskast og hver fundur hennar við íslenska áheyrendur verði hátíð héðan í frá sem hingað til.




Fleiri fréttir - Fastir pennar

Fastir pennar 11. feb. 2012 06:00

Panikk í pólitík

Niðurstöður skoðanakönnunar Fréttablaðsins og Stöðvar 2 um fylgi flokkanna, sem birtust í ...  

Meira
Fastir pennar 11. feb. 2012 06:00

Ríkisvæðing er mesta hættan

Ögmundi Jónassyni tókst með haldbærum rökum í Kastljóssþætti í vikunni að sýna fram á yfir...  

Meira
Fastir pennar 10. feb. 2012 06:00

Fleiri kostir í samgöngum

Fáar þjóðir eiga fleiri eða aflmeiri bíla miðað við fólksfjölda en Íslendingar. Það á sér ...  

Meira
Fastir pennar 10. feb. 2012 06:00

Ást á stórum byggingum

Einhverjum gæti þótt mikil eftirsjá að öllu fénu sem fer í sundlaugar hér og þar um landið...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 19:00

Tvíkynhneigð kærasta vill tilbreytingu

Öll erum við með okkar hugmyndir um kynlíf. Hugmyndunum fylgja oft vandamál sem kynfræðing...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 06:00

Samstaða um gamlar hugmyndir

Nýja stjórnmálaaflið Samstaða, undir forystu Lilju Mósesdóttur alþingismanns, gefur sig út...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 06:00

Frá trú til skynsemi

Það er undur stutt síðan málið sýndist afgreitt. Þetta með markaðina og ríkið. Markaðir vi...  

Meira
Fastir pennar 08. feb. 2012 06:00

Sameiginleg skylda

Algjör breyting hefur orðið í forsjármálum barna á 20 árum. Árið 1992 varð fyrst möguleiki...  

Meira
Fastir pennar 08. feb. 2012 14:00

Lífeyrissjóðirnir plataðir

Forsvarsmenn lífeyrissjóða keppast nú um að túlka niðurstöðu nefndar sem gerði úttekt á st...  

Meira
Fastir pennar 07. feb. 2012 06:00

Um börnin og refsilöggjöfina – dómur Hæstaréttar

Lög eiga að tryggja sanngjarna málsmeðferð, réttlæti í samskiptum fólks og velferð. Börn s...  

Meira
Fastir pennar 07. feb. 2012 06:00

Hinar orkulindirnar

Þriðjungur þingheims, þingmenn úr öllum flokkum undir forystu Skúla Helgasonar, hefur lagt...  

Meira
Fastir pennar 06. feb. 2012 08:00

Tapað af fagmennsku

Ný skýrsla um lífeyrissjóðina hefur leitt í ljós að á tveimur árum kringum bankahrunið tók...  

Meira
Fastir pennar 06. feb. 2012 06:00

Huga þarf að færum leiðum

Skuldavandi heimila á að stórum hluta rót sína í því furðulega kerfi sem landsmenn hafa hé...  

Meira
Fastir pennar 04. feb. 2012 06:00

Peningar annarra

Skýrsla sjálfstæðrar úttektarnefndar um starfsemi lífeyrissjóðanna inniheldur harða gagnrý...  

Meira
Fastir pennar 04. feb. 2012 06:00

Fóstbræðralag

Kópavogur hefur dregið að sér nokkra athygli vegna viðræðna um myndun nýs meirihluta í bæj...  

Meira
Fastir pennar 03. feb. 2012 06:00

Viðbúin nýjum hættum

Sprengjan sem sprakk fyrir framan skrifstofur ríkissaksóknara, í næsta nágrenni við Stjórn...  

Meira
Fastir pennar 03. feb. 2012 06:00

Ætlað samþykki

Nokkrir þingmenn vilja breyta lögum á þann hátt að líffæri verði tekin úr látnum mönnum ne...  

Meira
Fastir pennar 02. feb. 2012 06:00

Tómir kofar

Stutt en áhugaverð umræða fór fram um EES-samninginn á Alþingi fyrr í vikunni. Tilefnið va...  

Meira
Fastir pennar 02. feb. 2012 06:00

Vöggugjöf

Kynjamunur á námsárangri í Reykjavík er fyrst og fremst í íslensku. Munurinn kemur afdrátt...  

Meira
Fastir pennar 01. feb. 2012 06:00

Greiðari leið til lífgjafar eftir andlát

Allmörg nýru úr lifandi gjöfum eru grædd í Íslendinga ár hvert. Vegna þessarar gjafmildi á...  

Meira
Fastir pennar 31. jan. 2012 06:00

Óklárað uppgjör

Þingmenn úr að minnsta kosti þremur flokkum, auk óháðra, munu í vikunni leggja fram á Alþi...  

Meira
Fastir pennar 30. jan. 2012 08:00

Ögmundur og íhaldið

Sagnfræðingar tala um að stéttastjórnmál hafi leyst sjálfstæðisstjórnmál af hólmi árið 191...  

Meira
Fastir pennar 30. jan. 2012 06:00

Kostnaður krónu

Samkeppniseftirlitið birti í síðustu viku skýrslu sína um verðþróun og samkeppni á dagvöru...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Atvinna
  • Serblad
  • Serblad
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Fastir pennar / / Leggðu á djúpið