Beita þurfti klippum á bifreið til að ná manni lausum eftir harðan árekstur sem varð á Kringlumýrabraut rétt eftir klukkan níu í morgun. Samkvæmt upplýsingum frá sjúkraflutningamönnum var einn maður fluttur á slysadeild. Ekki er vitað um tildrög slyssins að öðru leyti en því að um aftanákeyrslu var að ræða.