Fulltrúar minnihlutans í borgarstjórn Reykjavíkur, utan Ólaf F. Magnússon, sátu hjá þegar greidd voru atkvæði um þriggja ára fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar.
Ólafur greiddi gegn tillögunni sem felur meðal annars í sér að hækka ekki skatta né hækka útsvar. Þá er stefnt að því í áætlun meirihlutans að fasteignaskattar verði ekki heldur hækkaðir. Á sama tíma vill meirihlutinn halda uppi atvinnustigi eins og kostur er í höfuðborginni.
Ólafur lét bóka á fundi bæjarstjórnar í dag, sem lauk klukkan átta í kvöld, að „ekki væri tekið með ákveðnum hætti á þeim óráðsíuframkvæmdum og lántökum sem meirihlutinn stendur fyrir," og því greiddi hann gegn áætluninni.
Samfylkingin var ósátt við að meirihlutinn féllst ekki á breytingatillögu borgarfulltrúa flokksins. Hún varðaði svokallað átak í viðhaldsverkefnum og framkvæmdir á næstu þremur árum. Þeir sátu því hjá.
Líkt og Ólafur bókaði Samfylkingin óánægju sína sem var eftirfarandi: „Ljóst er að Reykjavíkurborg getur ekki haldið uppi atvinnu- og framkvæmdastigi í borginni, ein og sér. Jafnmikilvægt er að borgin axli sína ábyrgð á að bregðast við erfiðri stöðu í atvinnumálum og sitji ekki aðgerðarlaus hjá. Að halda uppi framkvæmdastigi er eðlilegur hluti af því."
Við þessari bókun brugðust borgarfulltrúar meirihlutans. Í tilkynningu sem barst frá þeim fyrr í kvöld kom eftirfarandi fram:
„Enginn ágreiningur er uppi í borgarstjórn Reykjavíkur um mikilvægi atvinnu og framkvæmda og hafa Reykjavíkurborg og dótturfélög hennar áætlað á árinu 2010 að ráðast í arðbærar og mannaflsfrekar framkvæmdir fyrir um 26 milljarða króna á sama tíma og ríkisvaldið leggur aðeins fram um 10 milljarða á landsvísu.
Það vekur því athygli að varaformaður Samfylkingarinnar og einn helsti talsmaður ríkisstjórnarinnar, Dagur B. Eggertsson, skuli gera athugasemdir við framkvæmdir í Reykjavík þegar staðreyndir sýna að Reykjavíkurborg hefur staðið mun öflugri vörð um atvinnuástand og framkvæmdastig í núverandi efnahagsumhverfi en ríkisvaldið, sem ætti þó í ljósi stærðar sinnar, hagstjórnarhlutverks og kröfu Samfylkingarinnar í borgarstjórn, að gera miklu mun betur."