Tók tíu mínútur að segja þvert nei - flugumferðastjórar harðorðir

Vísir Innlent 16. mars 2010 17:38
Frá samningafundi.
Frá samningafundi.

Flugumferðastjórar eru harðorðir í yfirlýsingu sem þeir sendu frá sér. Þar segir að það hafi tekið Samtök atvinnulífsins og ríkisins heilar tíu mínútur að meta nýtt tilboð frá flugumferðastjórum. Og svarið var þvert nei.

Þá segja þeir hótanir um lögbann á verkfall flugumferðastjóra tvíeggja sverð.

Yfirlýsingin er svohljóðandi:

Það tók samninganefnd Samtaka atvinnulífsins/ríkisins heilar tíu mínútur að meta nýtt tilboð sem Félag íslenskra flugumferðarstjóra lagði fram á fundi ríkissáttasemjara eftir hádegið í dag og svara síðan með því að segja þvert nei.

Ekki urðu önnur viðbrögð við útspili flugumferðarstjóra. Ekkert gagntilboð og yfirleitt engin hreyfing sem benti til samningsvilja. Þetta gerðist þrátt fyrir að flugumferðarstjórar hefðu í tvígang aflýst boðuðum verkföllum, í fyrra skiptið í ljósi fyrirheits um að menn með skýrt samningsumboð ríkisins kæmu að samningaborði og reynt yrði að ljúka málinu þar.

Eftir á að hyggja bendir flest til þess að ríkisstjórnin hafi frá upphafi verið ákveðin í að „leysa" kjaradeiluna með lögum en ekki samningum.

Enginn sáttafundur hefur verið boðaður í deilunni og reyndar er vandséð hvaða tilgangi frekari fundahöld þjóna ef viðsemjandinn hefur ekki annað fram að færa en að sveifla sverði yfir höfðum flugumferðarstjóra og hóta valdbeitingu með lögum. Það sverð kann að reynast tvíeggjað.



Fleiri fréttir - Innlent

Innlent 12. feb. 2012 20:15

Fyrri stofnfundur Breiðfylkingarinnar haldinn í dag

Í dag var haldinn stofnfundur Breiðfylkingarinnar sem fulltrúar Hreyfingarinnar, Frjálslyn...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 19:45

Rúmur meirihluti vill Ólaf Ragnar áfram

Rúmur meirihluti þjóðarinnar vill að Ólafur Ragnar Grímsson gefi aftur kost á sér í forset...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 18:46

Flestir vildu að Blár Ópal myndi vinna: "Leiðinlegt fyrir sigurlagið“

"Það er skrýtið að þetta hafi ekki verið skýrara,“ segir Ingólfur Þórarinsson, eða I...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 17:26

Hundur fastur í neti - tækjabíll frá slökkviliðinu kallaður til

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var tilkynnt um hund sem væri fastur í netadræsum við Ægisg...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 13:51

Tæplega 80 þúsund atkvæði greidd í Eurovison

Alls voru greidd 79 þúsund atkvæði í Eurovision keppninni sem var sýnd á RÚV í gærkvöldi. ...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 10:53

Beit lögregluþjón

Karlmaður beit lögregluþjón til blóðs í morgun. Maðurinn var stöðaður á Laugaveginum rétt ...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 10:45

Huglausa ljónið féll niður hlera í miðri sýningu

"Samkvæmt öllum myndum og rannsóknum ætti hann að sleppa ótrúlega vel,“ segir leikar...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 10:19

Opið í Böggvistaðafjalli og í Oddsskarði

Lokað er í Bláfjöllum í dag vegna veðurs en þar er bæði hvasst og Blautt. Sömu sögu er að ...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 09:32

Settist upp í lögreglubíl og braut bílrúðu

Ölvaður og æstur maður var handtekinn við krá í Hafnarfirði eftir að hann braut rúðu í lög...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Fréttir eftir mánuði

Þú ert hér: Forsíða / Fréttir / Innlent / / Tók tíu mínútur að segja þvert nei - flugumferðastjórar harðorðir