Fjórtán prósent samdráttur varð í áfengissölu fyrstu tvo mánuði þessa árs miðað við janúar og febrúar 2009.
„Ljóst er að verðhækkanir hafa haft þessi áhrif," segir á heimasíðu Rannsóknaseturs verslunarinnar á Bifröst. „Neysla áfengis virðist fara hratt minnkandi ef marka má þann mikla samdrátt sem orðið hefur í sölu þess að undanförnu."
Í febrúar var áfengisverð 18,2 prósent hærra en í febrúar 2009.
Rannsóknasetur verslunarinnar birti í gær upplýsingar um veltu í verslun í febrúar.
Velta dagvöruverslunar í landinu dróst saman um 1,1 prósent á föstu verðlagi miðað við sama mánuð í fyrra.
Fataverslun var 5,2 prósent minni nú en í febrúar 2009 á föstu verðlagi. Verð á fötum hafði hækkað um 12,4 prósent milli ára. Skóverslun dróst saman um 9,2 prósent og var verð á skóm 19,9 prósent hærra en í febrúar í fyrra.
Húsgagnaverslun dróst saman um 27,2 prósent á föstu verðlagi.
Hins vegar jókst raftækjasala um 2 prósent frá febrúar 2009 þrátt fyrir að verð á raftækjum hafi hækkað um 13,8 prósent á því tímabili. - pg