Bótasvikasveit sparar ríkinu á fjórđa hundrađ milljónir

Vísir Innlent 16. mars 2010 18:33
Gissur Pétursson, forstjóri Vinnumálastofnunnar.
Gissur Pétursson, forstjóri Vinnumálastofnunnar.
Guđný Helga Herbertsdóttir skrifar:

Hópur sem vinnur að því að uppræta bótasvik sparaði Vinnumálastofnun útgjöld sem nema á fjórða hundrað milljónum króna á um 3 mánaða tímabili. Tugir mála vegna ofgreiddra bóta verða sendir til innheimtu á næstu vikum.

Fjögurra manna teymi á vegum Vinnumálastofnunar var sett á laggirnar síðasta haust til að hafa eftirlit með bótasvikum. Eftirlitsdeildin á gott samstarf við Ríkisskattstjóra og fleiri opinberar stofnanir. Um 16,900 manns eru atvinnulausir í dag en bæturnar nema um 150.000 krónum á mánuði. Í heild fara því um tveir og hálfur milljarður króna í atvinnuleysisbætur hvern mánuð. Gissur Pétursson, forstjóri Vinnumálastofnunar, segir starfið hafa skilað miklum árangri og sparað ríkinu umtalsverðar fjárhæðir.

„Við höfum reiknað það út að bara frá því í október, réttara sagt frá miðjum september og fram að áramótum, þá kunnum við að hafa náð um það bil á fjórða hundrað milljóna króna í sparnað í sparnað vegna útgreiðslu atvinnuleysisbóta," segir Gissur.

Þá hefur Vinnumálastofnun fengið Sýslumanninn á Blönduósi til að sjá um innheimtustörf vegna ofgreiddra bóta sem fólk hefur fengið með sviksemi. Ofan á bæturnar leggst svo 15 prósenta álag.

Aðspurður hvað hann geri ráð fyrir að mörg mál fari þessa leið á næstu vikum svarar Gissur: „Við ætlum að byrja með um 20 mál sem hafa legið hjá okkur og eru mjög skýr svikamál og síðan mun þetta samstarf þróast eitthvað í fyllingu tímans."

Spurður hversu háar fjárhæðir um er að ræða svarar Gissur: „Þetta getur að einhverju leiti orðið samningsatriði en þetta getur skipt einhverjum hundruðum þúsunda per einstakling. Þannig að þetta tekur verulega í."

Gissur Bætir svo við: „Það getur ekkert kerfi liðið það að það sé verið að greiða út framfærslutryggingu, eins og atvinnuleysistryggingar eru, til þeirra sem ekki eiga að fá þær."




Fleiri fréttir - Innlent

Innlent 12. feb. 2012 20:15

Fyrri stofnfundur Breiđfylkingarinnar haldinn í dag

Í dag var haldinn stofnfundur Breiđfylkingarinnar sem fulltrúar Hreyfingarinnar, Frjálslyn...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 19:45

Rúmur meirihluti vill Ólaf Ragnar áfram

Rúmur meirihluti ţjóđarinnar vill ađ Ólafur Ragnar Grímsson gefi aftur kost á sér í forset...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 18:46

Flestir vildu ađ Blár Ópal myndi vinna: "Leiđinlegt fyrir sigurlagiđ“

"Ţađ er skrýtiđ ađ ţetta hafi ekki veriđ skýrara,“ segir Ingólfur Ţórarinsson, eđa I...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 17:26

Hundur fastur í neti - tćkjabíll frá slökkviliđinu kallađur til

Lögreglan á höfuđborgarsvćđinu var tilkynnt um hund sem vćri fastur í netadrćsum viđ Ćgisg...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 13:51

Tćplega 80 ţúsund atkvćđi greidd í Eurovison

Alls voru greidd 79 ţúsund atkvćđi í Eurovision keppninni sem var sýnd á RÚV í gćrkvöldi. ...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 10:53

Beit lögregluţjón

Karlmađur beit lögregluţjón til blóđs í morgun. Mađurinn var stöđađur á Laugaveginum rétt ...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 10:45

Huglausa ljóniđ féll niđur hlera í miđri sýningu

"Samkvćmt öllum myndum og rannsóknum ćtti hann ađ sleppa ótrúlega vel,“ segir leikar...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 10:19

Opiđ í Böggvistađafjalli og í Oddsskarđi

Lokađ er í Bláfjöllum í dag vegna veđurs en ţar er bćđi hvasst og Blautt. Sömu sögu er ađ ...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 09:32

Settist upp í lögreglubíl og braut bílrúđu

Ölvađur og ćstur mađur var handtekinn viđ krá í Hafnarfirđi eftir ađ hann braut rúđu í lög...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viđskipti
  • Lífiđ

Fréttir eftir mánuđi

Ţú ert hér: Forsíđa / Fréttir / Innlent / Fréttir / Bótasvikasveit sparar ríkinu á fjórđa hundrađ milljónir