Velferð Voga

www.vf.is Víkurfréttir 15. mars 2010 09:46
Velferð Voga
Það er óhætt að staldra við á þessum tímamótum og fara yfir það sem gerst hefur á yfirstandandi kjörtímabili í Sveitarfélaginu Vogum. E-listinn, listi Strandar og Voga hefur stýrt sveitarfélaginu á líðandi kjörtímabili. Þetta er fyrsta kjörtímabil E- listans í meirihluta í Vogum. E-listinn var myndaður úr tveimur fyrri framboðum í Vogum, þ.e. T og V – lista. Sú sameining gekk vel og síðan hefur E-listinn bætt við sig fólki úr öllum áttum. E-listinn er því samblanda af fólki úr öllum stjórnmálaflokkum og einnig fólki sem stendur fyrir utan hin hefðbundnu pólitísku framboð. Innan raða hans er fólk sem hefur metnað fyrir því að þjóna íbúum sveitarfélagsins og leggja sitt af mörkum til að bæta samfélagið. E-listinn markaði nýja stefnu fyrir kjörtímabilið og er rétt að rifja hana upp með íbúum Voga. Opin og gagnsæ stjórnsýsla E-listinn fór í gagngera endurskoðun á stjórnsýslu sveitarfélagsins þar sem nefndir, skipulag og innri verkferlar voru teknir til endurskoðunar. Nefndir voru sameinaðar, ný heimasíða leit dagsins ljós, ábyrgð forstöðumanna við fjárhagsáætlun var aukin og vinnubrögðum við fjárhagsáætlunargerð var breytt. E-listinn hefur haldið fjölmarga íbúafundi á kjörtímabilinu um ýmis málefni s.s. fjárhagsáætlun, öryggismál, skipulagsmál, málefni eldri borgara og íþrótta- og æskulýðsmál svo eitthvað sé nefnt. Ýmis fagleg stefnumótunarvinna hefur farið fram. Skólastefna sveitarfélagsins hefur litið dagsins ljós og nú stendur yfir vinna við atvinnustefnu sveitarfélagsins. Gjaldfrjálsar skólamáltíðir E-listinn markaði sér þá stefnu að viðhalda fjölskylduvænu umhverfi og setti sitt fyrsta kosningaloforð með “Gjaldfrjálsum skólamáltíðum” Þar var farin leið sem á sér enga hliðstæðu en stefnunni er meðal annars ætlað að skapa frekara svigrúm fyrir auknu íþrótta- og tómstundastarfi barna og unglinga. E-listinn hefur staðið fyrir því að kom á fót samstarfssamningum við flest félagasamtök í sveitarfélaginu þar sem skerpt er á samskiptum og samvinnu sveitarfélagsins og félagasamtaka. Þessi samvinna hefur skilað sér í auknu barna- og unglingastarfi, m.a. í íþróttafélaginu, björgunarsveitinni, golfklúbbnum og nú síðast skátafélaginu Vogabúum. Fjölskyldudagurinn hefur verið efldur og fleiri viðburðir bæst við. E-listinn hefur staðið þétt við bak barna- og unglingastarfs í Vogum. Einnig hefur aðstaðan í skóla og leikskóla verið bætt til muna. Stutt við frumkvæði í menningarmálum E-listinn hefur beitt sér fyrir auknum menningartengdum verkefnum sem sjá má t.d. á sameiginlegu verkefni með einkaaðilum við uppsetningu fyrsta opinbera listaverksins í Vogum sem ber nafnið “Íslands Hrafnistumenn” og er eftir Erling Jónsson. Auk þess hefur sveitarfélagið tekið þátt í ýmsum uppákomum ásamt félagasamtökum og einstaklingum og stuðlað þannig í samvinnu við íbúa að betra samfélagi. Mikið menningarsamstarf er milli sveitarfélaga á Suðurnesjum þar sem menningarsamningur Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum og ríkisins er í forgrunni. Fjöldi menningartengdra verkefna hafa fengið styrk úr þeim sjóð, s.s. Hlaðan, Stóru-Vogaskóli, ofl. Fyrsti vinabær sveitarfélagsins mun vonandi líta dagsins ljós í haust en sú vinna er í fullum gangi. Fegrun bæjarins og umhverfismál Tekið hefur verið til hendinni í umhverfismálum. Er þar af nægu að taka enda var kominn tími á að eitthvað róttækt væri gert í þeim málum. Endurbætur á norðurbakka Vogatjarnar, endurbætur á Aragerði eru framkvæmdir sem ráðist var í á liðnu sumri. Einnig hefur mikið verið gert í almennum frágangi og snyrtingu á opnum svæðum og göngustígum, s.s. lýsingu, leiksvæðum ofl. Umhverfismál snúast þó ekki bara um fagra ásýnd heldur einnig lífsgæði. Í aðalskipulagsvinnu hefur meðal annars verið unnið að því að móta heildstæða stefnu í málefnum sem snúa að umhverfi, íbúum og atvinnulífi, öllum til hagsbóta. Nýtt vatnsból hefur verið tekið í notkun og á þessu ári er stefnt á að fara í endurbætur á frárennsliskerfi bæjarins sem hefur setið á hakanum allt of lengi. Skipulag og uppbygging mörkuð til næstu ára Mikil vinna hefur farið í aðalskipulag sveitarfélagsins sem nú er lokið sem og hin ýmsu deiliskipulög sem lokið er við eða eru í vinnslu. Nú stendur til að mynda yfir deiliskipulagsvinna við íþróttavallarsvæðið, sem og Kálfatjörn sem er sameiginlegt starfssvæði Golfklúbbs Vatnsleysustrandar, Kálfatjarnarkirkju og Minjafélags Vatnsleysustrandar. Einnig liggur fyrir deiliskipulag fyrir íbúðabyggð í Grænuborgarhverfi norðan byggðar ásamt því að unnið hefur verið að skipulagi austan byggðar sem og svokölluðu miðbæjarsvæði en þar er meiningin að miðbæjarkjarni rísi í framtíðinni. Á árinu verður ráðist í uppbyggingu og endurbætur á íþróttarvallarsvæði bæjarins og farið verður í endurbætur á leikskólalóð svo eitthvað sé nefnt. E-listinn mun á næstu árum einbeita sér að umhverfisvænum verkefnum, svokölluðum einskiptisverkefnum sem ekki munu auka rekstrarkostnað sveitarfélagsins til muna. Þannig má veita innspýtingu í mannaflsfrek verkefni en halda rekstrarkostnaði í lágmarki. E-listinn vinnur faglega enda sýnir framgangur hinna ýmsu mála síðastliðinna ára það. Öllum verkum er fundinn réttur farvegur innan stjórnkerfisins. Traustur fjárhagur Fjárhagsstaða sveitarfélagsins er sterk. Megin forsenda fyrir þeirri stöðu er sú ákvörðun E-listans að selja bréf sveitarfélagsins í Hitaveitu Suðurnesja og endurskipulagning í fjármálum sveitarfélagsins. Framfarasjóður sveitarfélagsins hefur ávaxtast vel og nýtist til góðra verka enda með eina bestu ávöxtun allra sjóða á landinu. Sveitarfélagið Vogar glímir hins vegar við ákveðinn rekstrarvanda líkt og önnur sveitarfélög, sem þarf að takast á við óháð stöðu Framfarasjóðs. Við förum ekki varhluta af stöðunni í þjóðfélaginu og hagræðum eins og aðrir þar sem það er hægt. Það er verkefni sem fulltrúar E-listans treysta sér til að takast á við, hvað svo sem líður kosningum í vor. Þessi upptalning hér að framan er engan veginn tæmandi fyrir þá vinnu sem farið hefur fram á líðandi kjörtímabili en hún ætti að vera lýsandi fyrir það sem gert hefur verið og það sem þarf að gerast til að sveitarfélagið nái árangri. Framtíð Sveitarfélagsins Voga veltur á því hversu vel er haldið á málum sveitarfélagsins fjárhagslega. Traust og ábyrg fjármálastjórnun er lykilþáttur í styrkingu stoða samfélagsins til framtíðar. Takið þátt í að móta framtíðina Undanfarnar vikur hefur E – listinn haldið opna fundi um helstu málefni sveitarfélagsins. Þar hefur meðal annars verið rætt um fræðslu-,íþrótta- og tómstundamál, umhverfis- og skipulagsmál og fjármál. Þangað hafa íbúar mætt og viðrað sínar skoðanir og komið með tillögur. Á næstu vikum heldur málefnastarf E-listans áfram og hvetjum við alla íbúa sem áhuga hafa á málefnum sveitarfélagsins að mæta og koma sínum skoðunum á framfæri og taka þátt. Stuðlum að áframhaldandi velferð í Sveitarfélaginu Vogum. Birgir Örn Ólafsson forseti bæjarstjórnar Sveitarfélagsins Voga

Fleiri fréttir - Víkurfréttir

Víkurfréttir 12. feb. 2012 12:56

Stundar mastersnám samhliða fullri vinnu

Dína María er 23ja ára Grindvíkingur sem er að gera það gott á vesturströnd Bandaríkjanna ...  

Meira
Víkurfréttir 12. feb. 2012 03:57

Lögreglan leitar að Birnu Dögg

Lögreglan á Suðurnesjum lýsir eftir Birnu Dögg Gunnarsdóttur, 14 ára, kt. 040697-4549, til...  

Meira
Víkurfréttir 11. feb. 2012 12:56

Töfrabragðasýning til styrktar Velferðarsjóði Suðurnesja í dag

Einar Mikael töframaður hefur verið duglegur að skemmta landanum að undanförnu og á dögunu...  

Meira
Víkurfréttir 11. feb. 2012 12:56

Sprengjumaðurinn handtekinn í Reykjanesbæ

Karlmaður á áttræðisaldri hefur játað að hafa komið sprengju fyrir skammt frá Stjórnarráði...  

Meira
Víkurfréttir 11. feb. 2012 12:56

Sjórinn tók vörubílinn eins og eldspýtustokk og henti honum út í sjó

Tólf bátar, smábíll og vörubíll skemmdust eða eyðilögðust í Sandgerðishöfn í óveðri fyrstu...  

Meira
Víkurfréttir 11. feb. 2012 12:56

Andremma

Líkamslykt manna er persónubundin en venjulega er engin lykt af því lofti sem fólk andar f...  

Meira
Víkurfréttir 11. feb. 2012 12:56

Upphaf nýrri og betri tíma

Nokkur hundruð grunnskólanemendur mættu í Stapann í vikunni til að kynna sér hin ýmsu stör...  

Meira
Víkurfréttir 11. feb. 2012 12:56

FISKTÆKNINÁM ? nýr kostur í framhaldsmenntun fyrir ungt fólk að loknum grunnskóla á Suðurnesjum

Nám í skóla – nám á vinnustað...  

Meira
Víkurfréttir 11. feb. 2012 12:56

Af hverju aldrei ég?

Ómar Jóhannsson, markvörður og starfsmaður í Fríhöfninni sparkar pennanum fram á ritvöllin...  

Meira
Víkurfréttir 11. feb. 2012 12:56

Keflvíkingar töpuðu eftir framlengingu í Hafnarfirði

Það var háspenna lífshætta í Schenker-höllinni í gærkvöldi þegar að Keflvíkingar sóttu Hau...  

Meira
Víkurfréttir 11. feb. 2012 11:57

Barin af buxnaherðatré!

Við þurfum að minna okkur á það að þeir sem eru með gott sjálfstraust eru ekki góðir í öll...  

Meira
Víkurfréttir 11. feb. 2012 11:57

Leikfélagið nauðsynlegt fyrir þá sem eru hræddir við boltann

Nú er lokið inntökuferli í nám á leikarabraut við Listaháskóla Íslands. Að venju var fjöld...  

Meira
Víkurfréttir 11. feb. 2012 03:13

Flottir þorratónleikar í frumleikhúsinu

Frábærir tónleikar voru haldnir í Frumleikhúsinu í gærkvöldi. Rytmíska deild Tónlistarskól...  

Meira
Víkurfréttir 10. feb. 2012 18:56

Undanúrslitaleikir Powerade-bikars kvenna settir á

Mótanefnd KKÍ hefur sett undanúrslitaleiki Powerade-bikars kvenna á næstkomandi mánudag kl...  

Meira
Víkurfréttir 10. feb. 2012 17:56

Kynntu sér fjölbreytt framtíðarstörf

Hundruð nemenda í 9. og 10. bekk grunnskóla á Suðurnesjum tóku þátt í starfskynningu í Sta...  

Meira
Víkurfréttir 10. feb. 2012 15:56

Stórlaxar í FS

Það voru sko engir smáfiskar sem mættu á karlakvöld FS-inga sem haldið var á sal skólans í...  

Meira
Víkurfréttir 10. feb. 2012 14:56

Vann bensín fyrir 50.000 kr. í lukkupotti Bernhard

Í tilefni af því að hinir sívinsælu Honda CR-V jepplingar hafa verið í sölu hjá Bernhard e...  

Meira
Víkurfréttir 10. feb. 2012 13:56

Fjármálaráðherra fundaði í Reykjanesbæ

Oddný G. Harðardóttir fjármálaráðherra hélt framsögu um atvinnu- og efnahagsmál á opnum fu...  

Meira
Víkurfréttir 10. feb. 2012 12:56

Má þetta?

Eitt helsta einkenni skóla á framhaldsstigi er gríðarlegur fjöldi af bílum og skortur á bí...  

Meira
Víkurfréttir 10. feb. 2012 10:56

Jafnréttisáætlun Sandgerðisbæjar samþykkt

Bæjarstjórn Sandgerðis samþykkti jafnréttisáætlun Sandgerðisbæjar nú í síðustu viku með ef...  

Meira
Víkurfréttir 10. feb. 2012 10:56

Watson fór mikinn í Síkinu - Sigur Grindavíkur aldrei í hættu

Topplið Grindavíkur mætti norður í land í gærkvöldi og lék gegn Tindastólsmönnum í Síkinu ...  

Meira
Víkurfréttir 10. feb. 2012 09:56

Fisktækniskóli Íslands verði til jafns við aðra skóla

Bæjarráð Grindavíkur hvetur Alþingi og menntamálaráðherra til að veita Fisktækniskóla Ísla...  

Meira
Víkurfréttir 10. feb. 2012 09:56

Siglingastofnun bæti veikleika í sjóvörnum í Garði

Árið 2010 var gerð skýrsla af Verkfræðistofu Suðurnesja og send Siglingastofnun þar sem be...  

Meira
Víkurfréttir 10. feb. 2012 09:56

Garður: Fella niður áminningu vegna brota í starfi

Á fundi bæjarstjórnar Garðs nú í síðustu viku var samþykkt samhljóða að áminning sem Pétri...  

Meira
Víkurfréttir 10. feb. 2012 09:56

Þórsarar of sterkir fyrir Njarðvíkinga

Þór Þorlákshöfn skellti Njarðvík öðru sinni í Iceland Express deild karla þetta tímabilið ...  

Meira
Víkurfréttir 10. feb. 2012 09:56

Hiti um eða yfir frostmark

Suðvestan 8-13 m/s og él. Úrkomulítið á morgun. Hiti um eða yfir frostmarki næsta sólarhri...  

Meira
Víkurfréttir 09. feb. 2012 18:56

Sýnir töfrabrögð á heimsmælikvarða til styrktar Velferðarsjóði Suðurnesja

Einar Mikael töframaður hefur verið duglegur að skemmta landanum að undanförnu og á dögunu...  

Meira
Víkurfréttir 09. feb. 2012 17:56

CCP semur við Verne gagnaver

CCP Games, framleiðandi tölvuleiksins EVE online, flytur hluta af gagnavörslu er tengist r...  

Meira
Víkurfréttir 09. feb. 2012 16:56

Njarðvíkingar sýknaðir - ekki leikið aftur

KKÍ hefur birt niðurstöðu aga- og úrskurðanefndar úr kærumáli sem upp kom í viðureign Kefl...  

Meira
Víkurfréttir 09. feb. 2012 15:56

Lærðu allt um skattamál

Fróðleiksfundur um skattamál á fer fram á morgun kl. 9:00 á skrifstofu KPMG að Krossmóa 4,...  

Meira
Víkurfréttir 09. feb. 2012 13:56

?Þarna skapast sóknarfæri fyrir Íslendinga,? segir Árni Sigfússon

Árni Sigfússon telur það vera afar áhugavert að Reykjanesbær sé risið fyrsta gagnaverið í...  

Meira
Víkurfréttir 09. feb. 2012 13:56

Selja bolluvendi á 500 krónur

Hæfingarstöðin er dagþjónusta fyrir fólk með fatlanir eldri en 16 ára á Suðurnesjum. Hún s...  

Meira
Víkurfréttir 09. feb. 2012 12:56

Fyrsta alþjóðlega gagnaverssvæðið í heiminum sem að fullu er knúið áfram af grænni orku

Fjögurra ára barátta skilar árangri Ég hef verið svo heppinn að fá að styðja við verkefni ...  

Meira
Víkurfréttir 09. feb. 2012 12:56

Matarúthlutun Fjölskylduhjálpar 23. febrúar

Fyrsta matarúthlutun Fjölskylduhjálpar Íslands á Suðurnesjum þetta árið verður þann 23. fe...  

Meira
Víkurfréttir 09. feb. 2012 10:56

Njarðvíkingar töpuðu gegn Valsstúlkum

Njarðvíkingar töpuðu frekar óvænt gegn Valsstúlkum í Iceland Express-deild kvenna í körfub...  

Meira
Víkurfréttir 09. feb. 2012 10:56

VefTV: Ýtir undir bjartsýni - segir Oddný ráðherra

„Þetta alþjóðlega gagnaver er vonandi ísbrjóturinn fyrir eitthvað enn meira á þessu...  

Meira
Víkurfréttir 09. feb. 2012 10:56

Keflavíkurvörnin sendi KR stigalausar á Reykjanesbrautina

Keflavík tók á móti KR í Iceland Express deild kvenna í gær þar sem Keflavík fór með sigur...  

Meira
Víkurfréttir 09. feb. 2012 10:56

Tónleikar á þorra - í Frumleikhúsinu á morgun kl. 20:00

Rytmíska deild Tónlistarskóla Reykjanesbæjar stendur fyrir tónleikum í Frumleikhúsinu við ...  

Meira
Víkurfréttir 09. feb. 2012 09:56

Opinn fundur með fjármálaráðherra í kvöld

Oddný G Harðardóttir, fjármálaráðherra, og Magnús Orri Schram, formaður þingflokks Samfyl...  

Meira
Víkurfréttir 09. feb. 2012 09:56

Góðar gjafir Kvenfélags Grindavíkur

Kvenfélag Grindvíkur hefur komið færandi hendi að undanförnu á heilsugæsluna, Miðgarð, gru...  

Meira
Víkurfréttir 09. feb. 2012 09:56

Sunnan gola og þurrt fram yfir hádegi

Sunnan gola og þurrt fram yfir hádegi, síðan vaxandi suðaustanátt með rigningu eða slyddu,...  

Meira
Víkurfréttir 08. feb. 2012 18:56

Nýr kafli í atvinnusögu með opnun græns gagnavers á Ásbrú

Ný kafli var skrifaður í atvinnusögu Íslendinga þegar starfsemi hófst með formlegum hætti ...  

Meira
Víkurfréttir 08. feb. 2012 16:56

Keflavík og Njarðvík komin áfram í bikarkeppni drengjaflokks

Í gærkvöldi fóru fram þrír leikir í bikarkeppni drengjaflokks í körfubolta þar sem Skallag...  

Meira
Víkurfréttir 08. feb. 2012 14:56

Formleg opnun gagnavers Verne Global

Nú stendur yfir opnunarathöfn á 500 m2 gagnaveri Verne Global á Ásbrú í Reykjanesbæ. Athö...  

Meira
Víkurfréttir 08. feb. 2012 13:56

Dýrasta pizza Íslandssögunnar?

Ingólfur Karlsson eigandi veitingastaðarins Langbest var staddur upp í Kerlingafjöllum um ...  

Meira
Víkurfréttir 08. feb. 2012 12:56

Nammiáti sagt stríð á hendur

Nammiát á diskótekum í Garði fyrir yngstu börnin kom til umfjöllunar í íþrótta- og æskulýð...  

Meira
Víkurfréttir 08. feb. 2012 12:56

Piteå vill aukin samskipti við Grindavík

Piteå, vinabær Grindavíkurbæjar í Svíþjóð, hefur sent beiðni um aukin samskipti bæjanna. F...  

Meira
Víkurfréttir 08. feb. 2012 10:56

Keflvíkingar sópuðu að sér verðlaunum

Helgina 21.-22. janúar var haldið bikarmót Taekwondosambands Íslands í Íþróttamiðstöð Brei...  

Meira
Víkurfréttir 08. feb. 2012 10:56

Fékk gullkorn frá börnunum

Á mánudag var dagur leikskólans haldinn hátíðlegur í leikskólum landsins. Í tilefni dagsi...  

Meira
Víkurfréttir 08. feb. 2012 09:56

Tíu framúrskarandi fyrirtæki á Suðurnesjum 2011

Creditinfo hefur unnið að ítarlegri greiningu sem sýnir hvaða íslensku fyrirtæki fá bestu ...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Fréttir eftir mánuði

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Atvinna
  • Serblad
  • Serblad
  • Allt

Skoðun

Ríkisvæðing er mesta hættan

Ríkisvæðing er mesta hættan

Þorsteinn Pálsson
Ögmundi Jónassyni tókst með haldbærum rökum í Kastljóssþætti í vikunni að sýna fram á yfirborðsmennsku í ...

Skoðun

Panikk í pólitík

Panikk í pólitík

Ólafur Þ. Stephensen
Niðurstöður skoðanakönnunar Fréttablaðsins og Stöðvar 2 um fylgi flokkanna, sem birtust í gær, sýna að mi...

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Fréttir / Landið / Víkurfréttir / Velferð Voga