RÚV sjálfhætt læri það ekki á nýjustu tæknina

Vísir Innlent 15. mars 2010 18:38
RÚV.
RÚV.
Breki Logason skrifar:

Það verður sjálfhætt með Ríkisútvarpið innan tíðar, fylgi stofnunin ekki tækniþróun og nái til yngra fólks, að mati menntamálaráðuneytisins. Vinna við nýjan þjónustusamning stofnunarinnar við ráðuneytið er langt komin.

Þetta er meðal þess sem menntamálaráðuneytið telur mikilvægt að komi fram í nýjum þjónustusamningi sem nú er unnið að. Ráðuneytið telur að hlutverk almannaþjónustufjölmiðla í því nýja og breytta umhverfi sem nú sé til staðar sé ekki síst að vera samnefnari þjóðarinnar, það er fjölmiðill sem allir geta notað og reyni að ná til allra.

Ef Ríkisútvarpið leggi ekki áherslu á nýtt og fjölbreytt efni fyrir nýjar miðlunarleiðir verið starfseminni sjálfhætt innan tíðar þegar núverandi notendur verða horfnir á braut.

Í núverandi samningi er ekki fjallað um hvernig skuli staðið að mótun dagskrárstefnu Ríkisútvarpsins fyrir hvert tímabil. Ráðuneytið telur mikilvægt að vinna við dagskrárstefnu fari fram í breiðum hópi fólks. Hefur þar verið nefnt svokallaða Dagskrárþing, sem væri þá einskonar þjóðfundur um dagskrá RÚV, en það sé tilvalinn vettvangur til að prófa hugmyndir um dagskrá.

Þá er talað um að í nýjum þjónustusamningi verði Ríkisútvarpinu bæði skylt að upplýsa almenning um starfsemi sína og að hlusta á sjónarmið almennings áður en veigamiklar ákvarðanir séu teknar.

Þá telur ráðuneytið einnig brýnt að RÚV efli ímynd sína sem faglegur og traustur veitandi alþjónustu á sviði útvarps í almannaþágu til allra landsmanna og lögaðila.

Einnig eru uppi hugmyndir um að bókhald Ríkisútvarpsins verði að geta svarað á fullnægjandi hátt spurningum um umfang, klukkustundarfjölda og kostnað við einstaka dagskrárliði.



Fleiri fréttir - Innlent

Innlent 12. feb. 2012 20:15

Fyrri stofnfundur Breiðfylkingarinnar haldinn í dag

Í dag var haldinn stofnfundur Breiðfylkingarinnar sem fulltrúar Hreyfingarinnar, Frjálslyn...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 19:45

Rúmur meirihluti vill Ólaf Ragnar áfram

Rúmur meirihluti þjóðarinnar vill að Ólafur Ragnar Grímsson gefi aftur kost á sér í forset...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 18:46

Flestir vildu að Blár Ópal myndi vinna: "Leiðinlegt fyrir sigurlagið“

"Það er skrýtið að þetta hafi ekki verið skýrara,“ segir Ingólfur Þórarinsson, eða I...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 17:26

Hundur fastur í neti - tækjabíll frá slökkviliðinu kallaður til

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var tilkynnt um hund sem væri fastur í netadræsum við Ægisg...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 13:51

Tæplega 80 þúsund atkvæði greidd í Eurovison

Alls voru greidd 79 þúsund atkvæði í Eurovision keppninni sem var sýnd á RÚV í gærkvöldi. ...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 10:53

Beit lögregluþjón

Karlmaður beit lögregluþjón til blóðs í morgun. Maðurinn var stöðaður á Laugaveginum rétt ...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 10:45

Huglausa ljónið féll niður hlera í miðri sýningu

"Samkvæmt öllum myndum og rannsóknum ætti hann að sleppa ótrúlega vel,“ segir leikar...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 10:19

Opið í Böggvistaðafjalli og í Oddsskarði

Lokað er í Bláfjöllum í dag vegna veðurs en þar er bæði hvasst og Blautt. Sömu sögu er að ...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 09:32

Settist upp í lögreglubíl og braut bílrúðu

Ölvaður og æstur maður var handtekinn við krá í Hafnarfirði eftir að hann braut rúðu í lög...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Fréttir eftir mánuði

Þú ert hér: Forsíða / Fréttir / Innlent / RÚV sjálfhætt læri það ekki á nýjustu tæknina