Skagaströnd græðir á atvinnuleysinu

Vísir Innlent 15. mars 2010 19:06
Skagaströnd græðir á atvinnuleysinu
Skagaströnd er sennilega eina byggðarlagið á Íslandi sem græðir á atvinnuleysi. Eftir því sem fleiri missa vinnuna, því fleiri störf skapast á Skagaströnd.

Þar sem áður voru höfuðstöðvar Skagstrendings er nú skrifstofan sem greiðir út bæturnar. Viðskiptavinirnir eru allir þeir sem eru atvinnulausir á Íslandi. Þarna vex starfseminni sem sagt fiskur um hrygg, Skagaströnd græðir á atvinnuleysinu, viðurkennir Líney Árnadóttir, forstöðukona Vinnumálastofnunar á Norðurlandi vestra. Starfsmönnum hafi vegna þess fjölgað úr 7 upp í 24.

Skagstrendingur var á sínum tíma eitt öflugasta útgerðarfyrirtæki landsins. Þá var milljörðunum mokað inn í samfélagið. Nú hefur hlutskipti hússins snúist við. Nú er milljörðunum mokað út. Fjárhæðirnir sem fara út um hver mánaðamót eru orðnar sláandi, tveir milljarðar um síðustu mánaðamót.

Eftir að fiskvinnsla lagðist af í sjávarplássinu er þetta orðinn stærsti vinnustaðurinn, og ígildi álvers, segir Sigríður Gestsdóttir sem áður vann hjá Skagstrendingi. Ef þetta væri ekki? "Ætli ég væri ekki bara á bótum. Eða farin í burtu," svarar hún.

Starfsmenn eru flestir frá Skagaströnd en einnig frá Blönduósi og nærsveitum, þó aðeins tveir karlmenn. Líney segir þetta vissulega störf sem henti konum vel en í minni sveitarfélögum á landsbyggðinni vanti oft góð störf fyrir konur. Þessvegna séu störf hjá opinberum stofnunum eftirsóknarverð.



Fleiri fréttir - Innlent

Innlent 12. feb. 2012 20:15

Fyrri stofnfundur Breiðfylkingarinnar haldinn í dag

Í dag var haldinn stofnfundur Breiðfylkingarinnar sem fulltrúar Hreyfingarinnar, Frjálslyn...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 19:45

Rúmur meirihluti vill Ólaf Ragnar áfram

Rúmur meirihluti þjóðarinnar vill að Ólafur Ragnar Grímsson gefi aftur kost á sér í forset...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 18:46

Flestir vildu að Blár Ópal myndi vinna: "Leiðinlegt fyrir sigurlagið“

"Það er skrýtið að þetta hafi ekki verið skýrara,“ segir Ingólfur Þórarinsson, eða I...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 17:26

Hundur fastur í neti - tækjabíll frá slökkviliðinu kallaður til

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var tilkynnt um hund sem væri fastur í netadræsum við Ægisg...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 13:51

Tæplega 80 þúsund atkvæði greidd í Eurovison

Alls voru greidd 79 þúsund atkvæði í Eurovision keppninni sem var sýnd á RÚV í gærkvöldi. ...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 10:53

Beit lögregluþjón

Karlmaður beit lögregluþjón til blóðs í morgun. Maðurinn var stöðaður á Laugaveginum rétt ...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 10:45

Huglausa ljónið féll niður hlera í miðri sýningu

"Samkvæmt öllum myndum og rannsóknum ætti hann að sleppa ótrúlega vel,“ segir leikar...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 10:19

Opið í Böggvistaðafjalli og í Oddsskarði

Lokað er í Bláfjöllum í dag vegna veðurs en þar er bæði hvasst og Blautt. Sömu sögu er að ...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 09:32

Settist upp í lögreglubíl og braut bílrúðu

Ölvaður og æstur maður var handtekinn við krá í Hafnarfirði eftir að hann braut rúðu í lög...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Fréttir eftir mánuði

Þú ert hér: Forsíða / Fréttir / Innlent / Matarspjall / Skagaströnd græðir á atvinnuleysinu