Þrjú ungmenni svipt sig lífi í Hafnarfirði

Vísir Innlent 15. mars 2010 18:42
Þórhallur Heimisson.
Þórhallur Heimisson.

Vaxandi vanlíðunar gætir í samfélaginu. Nauðsynlegt er að fólk sýni náunga sínum hlýhug, ekki síst börnum og ungmennum, segir prestur í Hafnarfjarðarkirkju. Þrjú ungmenni úr bænum hafa svipt sig lífi á árinu.

Þórhallur Heimisson, sóknarprestur í Hafnarfjarðarkirkju, segir ástandið í Hafnarfirði hafa verið mjög erfitt frá áramótum vegna þeirra voveiflegu atburða sem þar hafa orðið. Djúp sorg ríki þar en um leið ríkur samhugur.

"Ég hef komið að þessu inn í skólunum, bæði með því að tala við börnin og við foreldrana. Við erum svo með minningarstund í kirkjunni," segir Þórhallur.

Hann segir félagsmála- og skólayfirvöld auk þess hafa reynt að vinna að því að þjappa fólki saman og reyna eftir fremsta megni að draga úr vanlíðan fólks.

Hann segir að undanfarin misseri hafi orðið margföldun í kirkjusókn í Hafnarfirði sem og annars staðar, þá bæði í messu og barnastarfi.

Þórhallur segir að hann finni vel fyrir vaxandi áhyggjum fólks.

"Ég hef fundið það undanfarið ár, og kannski aldrei meira en núna, að það er sama hvar maður kemur fólk hefur mikla þörf fyrir að tjá sig um það sem leitar á hugann. Það er mikill kvíði og áhyggjur í samfélaginu. Margir ætluðu fyrst að að reyna setja undir sig hausinn og standa erfiðleikana af sér eins og sannir Íslendingar en maður finnur að fólki þykir orðið erfitt að sjá fyrir endann á vandamálunum," segir hann og segir að þar með komi vandinn smám saman meira upp á yfirborðið.

Hann hvetur fólk sem líður illa að leita sér aðstoðar, svo sem hjá vinum, sálfræðing, lækni, presti, Hjálparsíma Rauða krossins. Þá minnir hann á mikilvægi þess að fólk gefi líðan barna og unglinga gaum og reyni að styrkja þau.



Fleiri fréttir - Innlent

Innlent 13. feb. 2012 03:13

Sammála um annað en ESB

Stofnfundur nýrrar breiðfylkingar um framboð til næstu alþingiskosninga var haldinn í gær....  

Meira
Innlent 13. feb. 2012 03:13

Vill alhliða lög gegn mismunun

Ísland þarf alhliða lög gegn mismunun og óháða jafnréttisnefnd til þess að hrinda ákvæðum ...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 20:15

Fyrri stofnfundur Breiðfylkingarinnar haldinn í dag

Í dag var haldinn stofnfundur Breiðfylkingarinnar sem fulltrúar Hreyfingarinnar, Frjálslyn...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 19:45

Rúmur meirihluti vill Ólaf Ragnar áfram

Rúmur meirihluti þjóðarinnar vill að Ólafur Ragnar Grímsson gefi aftur kost á sér í forset...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 18:46

Flestir vildu að Blár Ópal myndi vinna: "Leiðinlegt fyrir sigurlagið“

"Það er skrýtið að þetta hafi ekki verið skýrara,“ segir Ingólfur Þórarinsson, eða I...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 17:26

Hundur fastur í neti - tækjabíll frá slökkviliðinu kallaður til

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var tilkynnt um hund sem væri fastur í netadræsum við Ægisg...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 13:51

Tæplega 80 þúsund atkvæði greidd í Eurovison

Alls voru greidd 79 þúsund atkvæði í Eurovision keppninni sem var sýnd á RÚV í gærkvöldi. ...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 10:53

Beit lögregluþjón

Karlmaður beit lögregluþjón til blóðs í morgun. Maðurinn var stöðaður á Laugaveginum rétt ...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 10:45

Huglausa ljónið féll niður hlera í miðri sýningu

"Samkvæmt öllum myndum og rannsóknum ætti hann að sleppa ótrúlega vel,“ segir leikar...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 10:19

Opið í Böggvistaðafjalli og í Oddsskarði

Lokað er í Bláfjöllum í dag vegna veðurs en þar er bæði hvasst og Blautt. Sömu sögu er að ...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 09:32

Settist upp í lögreglubíl og braut bílrúðu

Ölvaður og æstur maður var handtekinn við krá í Hafnarfirði eftir að hann braut rúðu í lög...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Fréttir eftir mánuði

Þú ert hér: Forsíða / Fréttir / Innlent / Þrjú ungmenni svipt sig lífi í Hafnarfirði