Hver stingur hausnum út?

Fréttablaðið Fastir pennar 13. mars 2010 06:00
Þorsteinn Pálsson
Þorsteinn Pálsson
Þorsteinn Pálsson skrifar:
Eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna um icesave velta menn því helst fyrir sér hvenær Ögmundur Jónasson verður ráðherra að nýju. Hitt sýnist þó vera brýnna að finna þann flöt sem nota má til að leysa það viðfangsefni sem þjóðaratkvæðagreiðslan gerði ekki.

Spurningin er: Hvar liggur samningsflöturinn? Í raun er tiltölulega einfalt að finna það út. Þjóðaratkvæðagreiðslan setti í gildi lög um ríkisábyrgð sem Alþingi samþykkti í byrjun ágúst. Að þeirri niðurstöðu stóðu þingmenn stjórnarflokkanna og forsetinn. Þingmenn Sjálfstæðisflokksins sátu hjá. Framsóknarflokkurinn og Hreyfingin voru á móti.

Bretar og Hollendingar féllust ekki á þessa niðurstöðu. Ríkisstjórnin samdi að nýju um lakari kost. Þingmenn stjórnarflokkanna samþykktu þá niðustöðu í desember gegn atkvæðum stjórnarandstöðunnar. Þjóðaratkvæðagreiðslan snerist því um þennan mismun á ágúst- og desemberlögunum. Ríkisstjórnin taldi hann óverulegan. Stjórnarandstaðan og forsetinn sögðu að hann væri of mikill. Þjóðin var sammála því.

Samningsflöturinn liggur þarna á milli. Málið er einfaldlega komið á það stig að einhver verður að stinga hausnum út um gluggann og kveða upp úr um flöt sem líklegt er að viðsemjendurnir geti líka fallist á. Sá sem gerir það hirðir heiðurinn eða skömmina af niðurstöðunni. Spurningin er bara þessi: Hver á að stinga hausnum út?








Samstaða um hvað?

Bretar og Hollendingar gerðu kröfu um aðild stjórnarandstöðunnar að samningunum. Fyrir vikið er sú óvanalega staða uppi að formaður Sjálfstæðisflokksins getur í stjórnarandstöðu tekið frumkvæðið og mælt fyrir um málamiðlun.

Ríkisstjórnarflokkarnir gætu ekki annað en kyngt henni. Fáir yrðu til að andmæla. Að vísu er líklegt að Framsóknarflokkurinn og Hreyfingin leggist á þá sveif. Tillaga þeirra um að slíta samstarfinu við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn bendir til þess.

Þegar hér er komið sögu er óhjákvæmilegt að horfa á viðfangsefnið í stærra samhengi. Icesave er aðeins einn af fleiri lyklum sem þarf að snúa rétt til að ljúka upp dyrum að endurreisninni. Taka þarf tillit til þess að ríkisstjórnin er ekki tilbúin til samstarfs um það hvernig hinum lyklunum verður snúið.

Eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna áttu forystumenn hennar tveggja kosta völ. Annar var sá að færa sig nær miðjunni og leita breiðara samkomulags við Sjálfstæðisflokkinn um það hvernig öðrum helstu lyklum yrði snúið. Hinn var sá að leita sátta til vinstri við minnihlutann í þingflokki VG. Sá kostur var valinn. Hann kostar málefnalegar fórnir í þá veru.

Þær felast í slaka í ríkisfjármálum, skrefi til baka í orkunýtingarmálum og viðurkenningu á stefnu VG í sjávarútvegsmálum. Hún snýst um að víkja þjóðhagslegri hagkvæmni til hliðar fyrir félagsleg úrræði. Samstaða um raunhæfa framtíðarlausn í peningamálum er fjarlægari svo og aðild að Evrópusambandinu. Með öðrum orðum: Sáttin innan VG er keypt mjög dýru verði á mælikvarða almannahagsmuna.

Að þessu virtu er ljóst að vilji forystumanna stjórnarflokkanna til samstöðu lýtur ekki að lausn á vanda samfélagsins. Hann snýr einvörðungu að því að finna hjáleið um innri vanda VG. Ákall um samstöðu á þessum forsendum er meir í ætt við málfundaæfingu en alvöru stjórnmál.







Lykillinn að sátt er á miðjunni

VG hefur verið veiki hlekkurinn í stjórnarsamstarfinu vegna sundrungar. Sáttin sem Samfylkingin hefur gengið að mun snúa þessu við. Þegar upp verður staðið mun VG hafa styrkt stöðu sína verulega og vinstri armurinn náð málefnalegum undirtökum í stjórnarsamstarfinu.

Að sama skapi er ljóst að Samfylkingin gefur málefnalega eftir og tapar trúverðugleika. Sérstaklega á það við í ríkisfjármálum og peningamálum og þar með Evrópumálum.

Fjármálaráðherrann boðar að samkeppnisstöðu Íslands eigi að tryggja með launaskerðingum í gegnum reglubundnar gengislækkanir krónunnar. Hann fær nú sterkari stöðu með þetta viðhorf. Vonlaust er hins vegar að við náum sambærilegum lífskjörum á við hin velferðarhagkerfi Norðurlandanna ef þessari fátæktarstefnu VG í peningamálum verður ekki hrundið.

Framsóknarflokkurinn virðist í vaxandi mæli hafa hallað sér að sjónarmiðum vinstri arms VG í peningamálum. Sjálfstæðisflokkurinn hefur hins vegar ekki mótað framtíðarstefnu í þessum efnum. Flest bendir til að núverandi ríkisstjórn muni sitja þangað til Sjálfstæðisflokkurinn tekur af skarið gegn fátæktarstefnu VG í peningamálum. Þá fyrst getur hann sett gaffal á Samfylkinguna og losað um þá pólitísku bóndabeygju sem þjóðin er í.

Endurreisn efnahagslífsins snýst um málefnalegt samstarf á miðju stjórnmálanna um lykilatriði eins og ríkisfjármál og peningastefnu. Mannabreytingar í ríkisstjórn eru sjónhverfingar en ekki lausn á þeirri pólitísku kreppu sem landið er í.




Fleiri fréttir - Fastir pennar

Fastir pennar 11. feb. 2012 06:00

Panikk í pólitík

Niðurstöður skoðanakönnunar Fréttablaðsins og Stöðvar 2 um fylgi flokkanna, sem birtust í ...  

Meira
Fastir pennar 11. feb. 2012 06:00

Ríkisvæðing er mesta hættan

Ögmundi Jónassyni tókst með haldbærum rökum í Kastljóssþætti í vikunni að sýna fram á yfir...  

Meira
Fastir pennar 10. feb. 2012 06:00

Fleiri kostir í samgöngum

Fáar þjóðir eiga fleiri eða aflmeiri bíla miðað við fólksfjölda en Íslendingar. Það á sér ...  

Meira
Fastir pennar 10. feb. 2012 06:00

Ást á stórum byggingum

Einhverjum gæti þótt mikil eftirsjá að öllu fénu sem fer í sundlaugar hér og þar um landið...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 19:00

Tvíkynhneigð kærasta vill tilbreytingu

Öll erum við með okkar hugmyndir um kynlíf. Hugmyndunum fylgja oft vandamál sem kynfræðing...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 06:00

Samstaða um gamlar hugmyndir

Nýja stjórnmálaaflið Samstaða, undir forystu Lilju Mósesdóttur alþingismanns, gefur sig út...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 06:00

Frá trú til skynsemi

Það er undur stutt síðan málið sýndist afgreitt. Þetta með markaðina og ríkið. Markaðir vi...  

Meira
Fastir pennar 08. feb. 2012 06:00

Sameiginleg skylda

Algjör breyting hefur orðið í forsjármálum barna á 20 árum. Árið 1992 varð fyrst möguleiki...  

Meira
Fastir pennar 08. feb. 2012 14:00

Lífeyrissjóðirnir plataðir

Forsvarsmenn lífeyrissjóða keppast nú um að túlka niðurstöðu nefndar sem gerði úttekt á st...  

Meira
Fastir pennar 07. feb. 2012 06:00

Um börnin og refsilöggjöfina – dómur Hæstaréttar

Lög eiga að tryggja sanngjarna málsmeðferð, réttlæti í samskiptum fólks og velferð. Börn s...  

Meira
Fastir pennar 07. feb. 2012 06:00

Hinar orkulindirnar

Þriðjungur þingheims, þingmenn úr öllum flokkum undir forystu Skúla Helgasonar, hefur lagt...  

Meira
Fastir pennar 06. feb. 2012 08:00

Tapað af fagmennsku

Ný skýrsla um lífeyrissjóðina hefur leitt í ljós að á tveimur árum kringum bankahrunið tók...  

Meira
Fastir pennar 06. feb. 2012 06:00

Huga þarf að færum leiðum

Skuldavandi heimila á að stórum hluta rót sína í því furðulega kerfi sem landsmenn hafa hé...  

Meira
Fastir pennar 04. feb. 2012 06:00

Peningar annarra

Skýrsla sjálfstæðrar úttektarnefndar um starfsemi lífeyrissjóðanna inniheldur harða gagnrý...  

Meira
Fastir pennar 04. feb. 2012 06:00

Fóstbræðralag

Kópavogur hefur dregið að sér nokkra athygli vegna viðræðna um myndun nýs meirihluta í bæj...  

Meira
Fastir pennar 03. feb. 2012 06:00

Viðbúin nýjum hættum

Sprengjan sem sprakk fyrir framan skrifstofur ríkissaksóknara, í næsta nágrenni við Stjórn...  

Meira
Fastir pennar 03. feb. 2012 06:00

Ætlað samþykki

Nokkrir þingmenn vilja breyta lögum á þann hátt að líffæri verði tekin úr látnum mönnum ne...  

Meira
Fastir pennar 02. feb. 2012 06:00

Tómir kofar

Stutt en áhugaverð umræða fór fram um EES-samninginn á Alþingi fyrr í vikunni. Tilefnið va...  

Meira
Fastir pennar 02. feb. 2012 06:00

Vöggugjöf

Kynjamunur á námsárangri í Reykjavík er fyrst og fremst í íslensku. Munurinn kemur afdrátt...  

Meira
Fastir pennar 01. feb. 2012 06:00

Greiðari leið til lífgjafar eftir andlát

Allmörg nýru úr lifandi gjöfum eru grædd í Íslendinga ár hvert. Vegna þessarar gjafmildi á...  

Meira
Fastir pennar 31. jan. 2012 06:00

Óklárað uppgjör

Þingmenn úr að minnsta kosti þremur flokkum, auk óháðra, munu í vikunni leggja fram á Alþi...  

Meira
Fastir pennar 30. jan. 2012 08:00

Ögmundur og íhaldið

Sagnfræðingar tala um að stéttastjórnmál hafi leyst sjálfstæðisstjórnmál af hólmi árið 191...  

Meira
Fastir pennar 30. jan. 2012 06:00

Kostnaður krónu

Samkeppniseftirlitið birti í síðustu viku skýrslu sína um verðþróun og samkeppni á dagvöru...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Atvinna
  • Serblad
  • Serblad
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir

Kvöldfréttir

Horfa í Beinni
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Fastir pennar / Hver stingur hausnum út?