Fæðubót: Böl eða blessun?

Fréttablaðið Aðsendar greinar 13. mars 2010 06:00
Fæðubót: Böl eða blessun?
Jón Ótttar Ragnarsson skrifar:
Faðir minn kenndi mér ungum að gleðjast aldrei yfir óförum annarra. Ég verð þó að játa að ég átti erfitt er ég las grein dr. Magnúsar Jóhannssonar um fæðubótarefni í Læknablaðinu í fyrri viku!

Fjöregg þjóðar
Allt frá landnámstíð héldu fæðubótarefni lífinu í Íslendingum. Ástæðan var sú að kalt loftslag er óhagstætt fyrir matjurtarækt og innflutt korn var dýrt og oft skemmt. Fyrir bragðið kom fæðið að mestu úr dýraríkinu. Af þessum sökum áttu Íslendingar um aldaraðir heimsmet í prótínneyslu. Á hinn bóginn er slíkt fæði snautt afandoxurum á borð við C-vítamín, sem er helsta afeitrunarefni („detox") lifrarinnar, yngingarbrunnur líkamans omfl.Yfir sumartímann lögðu Íslendingar því allt kapp á að safna vetrarforða af fæðubótarefnum á borð við fjallagrös, blóðberg, ætihvönn, ber og söl sem gáfu þeim gnægð af C-vítamíni og öðrum mögnuðum andoxunarefnum. Mikilvægast var lýsið sem gaf þrjú dýrmæt fjörefni: ómega-3, D- og A–vitamin. Skýrir þessi einstæða blanda dýrafæðis og villijurta annálaða fegurð íslenskra kvenna og ótrúlegu lífsgleði og hreysti Íslendinga í aldanna rás þrátt fyrir hallæri og faraldra.

Náttúruperla og heilsuparadís
Fæðubótarefni og krydd voru löngum eftirsóttasta auðlind jarðar. Í dag eru fæðubótarefni, ásamt líkamsrækt og óhefðbundnum lækningaðferðum, kjölfesta hollustubyltingarinnar sem nú breiðist út um heiminn. Þessi bylting hefur nú þegar byggt nýtt heilbrigðiskerfi við hlið þess gamla. Spáir þekktasti heilsuhagfræðingur heims, Paul Zane Pilzer prófessor, að auðsköpun á þessu sviði á næstu árum verði eins hröð og gerðist í tölvugeiranum í lok 20. aldar!

Þetta er okkar tækifæri! Íslendingar eiga fegursta landið, bestu fiskimiðin og lýsið, ómengaðasta vatnið, loftið og jarðveginn auk urmul villijurta, en umfram allt heitar laugar og jarðhita sem undirstöðu stóriðju á ylræktuðum kryddum og lækningajurtum.

Andspyrnan
Þrátt fyrir áratugarannsóknir okkar fremstu vísindamanna og lækna á íslenskum fæðubótarefnum - með dr. Sigmund Guðbjarnason prófessor í fararbroddi – hefur harðsnúinn hópur afturhaldsseggja unnið markvisst gegn útbreiðslu þeirra. Þótt ótrúlegt sé hefur æðsti presturinn, dr. Magnús Jóhannsson, varðgæslumaður hins alþjóðlega lyfjaiðnaðar, einkum ráðist á það næringarfyrirtæki sem stendur fremst vísindalega og er eitt örfárra sem setur allar vörur í ströngustu skoðun yfirvalda. Er ofstækið slíkt að í meira en áratug hélt hann úti svæsnu níði um Herbalife á vefsíðu Háskóla Íslands! Er þetta þeim mun furðulegra í ljósi þess að inn í landið flæða nú fæðubótarefni af geysi misjöfnum gæðum nær eftirlitslaust!

Um árabil kenndi hann heilli kynslóð íslenskra lækna lyfjafræði og ól á andúð og þar með fáfræði þeirraá fæðubótarefnum, náttúrulækningum og öllu öðru sem gat dreift huga þeirra frá „kjarna málsins": gervilyfjunum. Áhrifin létu ekki á sér standa og árið 2002 var svo komið að yfir 75% ungra manna og 85% ungra kvenna á Íslandi voru hætt að taka lýsi með skelfilegum afleiðingum fyrir lífslíkur þeirra og lýðheilsu þjóðarinnar!

Sem betur fer sjá æ fleiri í gegnum hræðsluáróður afturhaldsaflanna. Breiðist hollustubyltingin nú hratt út, ekki síst meðal ungs fólks, á sama tíma og æ fleiri ungir læknar losa sig undan kverkataki fulltrúa gamla tímans.

„Stóra bomban!“
Eftir að hafa margtilkynnt að brátt sjái rannsóknir hans á skaðsemi fæðubótarefna dagsins ljósbirtust þær loks í Læknablaðinuí síðustu viku. Er ekki ofsögum sagt að margir hafi orðið þrumu lostnir. Í fyrsta lagi reyndist sjúklingafjöldinn ótrúlegur: 5 manns á tíu árum (af yfir 10.000 manns sem neyttu vörunnar)! Þar sem flestar Herbalife-vörur innihalda öfluga náttúrulega andoxara bendir þetta til einstaklega lágrar skaðsemisvirkni.

Staðfestir það sem áður var vitað að andoxarar eru ekki skaðvaldur, heldur besta vörn lifrarinnar gegn eitrun og bólgum af öllu tagi. Þar við bætist að Herbalife leiðir nú heimsátak gegn illvígasta lifrarbólgufaraldri allra tíma, offitulifrarbólgunni.

Strax næsta morgun viðurkenndi dr. Magnús að af 5 sjúklingum hefðu allir nema 1 (!) líka tekið inn gervilyf eða verið með undirliggjandi sjúkdóm og fullyrti um leið aðlangflestar vörur Herbalife væru vitameinlausar, enda "bara matur".
Í öðru lagi: Enda þótt grein hans sé tileinkuð Herbalife reyndust 5 af þeim 8 jurtum sem tilgreindar eru aldrei hafa verið í vörum Herbalife á Íslandi! Og hverjar voru hinar þrjár sem voru það og hljóta því að vera sökudólgarnir!
Þær voru (haldið ykkur!): (a) ein þekktasta lækningjurt heims, aloe vera, (b) eitt algengsta krydd jarðar, negull, og loks (c) þjóðardrykkur ¼ mannkyns, grænt te, sem WHO* hvetur alla fullorðna jarðarbúa til að drekka daglega í heilsuskyni!
Til að kóróna skrípaleikinn er aðalorsök lifrareitrunar vel þekkt, en það eru einmitt skjólstæðingar hans, gervilyfin (sjá t.d. grein í sama Læknablaði), en það er þeim að þakka að amk. 100 Íslendingar deyja árlega (og amk. tífalt fleiri fárveikjast)!
Hygg ég, eftir öll þessi endemi, að ekki sé of djúpt tekið í árinni þegar sagt er að ef dr. Magnús á sér ennþá einhverja fylgismenn á Íslandi er ólíklegt að þeir láti mikið sér kræla næstu áratugina, hvað þá árin!
Á meðan getum við hin aftur einbeitt okkur að því að stemma stigu við offitufárinu, bæta næringarástand þjóðarinnar, afeitra í okkur lifrina . og á sama tíma að hjálpa dr. Sigmundi og félögum að endureisa fjárhag íslensku þjóðarnnar!

Höfundur er Doktor í næringarfræði og fyrrum yfirmaður matvæla- og næringarbrautar Háskóla Íslands.

Fleiri fréttir - Aðsendar greinar

Aðsendar greinar 11. feb. 2012 06:00

Menntun má tæta

Tilraunir sveitarfélaga til að treysta fjárhagsstöðu sína og draga úr útgjöldum hafa falis...  

Meira
Aðsendar greinar 11. feb. 2012 06:00

Meirihlutinn ræður

Fimmtudaginn 12. jan. sl. varð áhugaverð uppákoma í bæjarráði Kópavogs. Þá ákvað bæjarráð ...  

Meira
Aðsendar greinar 11. feb. 2012 06:00

Brotin fjölskylda eða betra líf?

Að gifta sig er hamingja en að skilja er óhamingja. Eða hvað?...  

Meira
Aðsendar greinar 11. feb. 2012 06:00

Vernd barna gegn kynferðislegum glæpum

Það er dapurleg staðreynd að fjöldi barna í heiminum í dag verður fyrir kynferðislegu ofbe...  

Meira
Aðsendar greinar 11. feb. 2012 06:00

Hrunið 2016

Það er haustið 2016 og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn er aftur kominn til Íslands. Í þetta sin...  

Meira
Aðsendar greinar 10. feb. 2012 14:00

Vísindi, veiðar og mannréttindi

Hvernig kerfi eiga Íslendingar að nota við fiskveiðar? Á undanförnum árum hafa verið gerða...  

Meira
Aðsendar greinar 10. feb. 2012 06:00

Ruglið og reikningsgetan

Fjórði hver drengur, sem útskrifast úr grunnskóla, er sagður ekki kunna að lesa. Enn stærr...  

Meira
Aðsendar greinar 10. feb. 2012 06:00

Má gera okkur öllum upp skoðanir?

Hæfileikafólk á Íslandi er álíka margt og í þrjú hundruð þúsund manna borg annars staðar í...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 03:13

Motörhead gegn íslenska ríkisbákninu

Á hverjum degi flytja fimm manns frá Íslandi til þess að hefja nýtt líf í öðru landi. Efti...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Opið bréf til Ögmundar Jónassonar

Á Íslandi er skilnaðartíðni há en lagaumhverfið hefur ekki tekið mið af því á Íslandi í sa...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Það er ljótt að skilja útundan herra borgarstjóri

Ég skora á borgarstjórann í Reykjavík að draga til baka ákvörðun varðandi niðurfellingu ne...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Breytt framtíðarsýn lesblindra

Flestar skólabyggingar á Íslandi í dag eru með þeim hætti að fatlaðir eiga auðvelt með að ...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Til of mikils mælst?

Þegar ógnvekjandi tölur um treglæsi unglinga birtust sl. haust tók ég mig til og skrifaði ...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Arðurinn – 44:2 fyrir LÍÚ

Hagstofa Íslands birti fyrir nokkrum dögum nákvæm gögn um afkomu sjávarútvegsins árið 2010...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Lendandi á Hólmsheiði í 96-98% tilvika – 95% er nóg

Háskólinn í Reykjavík (HR) og talsmenn flugvallar í Vatnsmýri (flugvallarsinnar) stóðu fyr...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Sæll Sighvatur Björgvinsson

Við eigum sameiginlegt áhugamál sem eru íslenskir grunnskólar. Af skrifum þínum má þó ætla...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Heggur sá er hlífa skyldi

Ekki alls fyrir löngu stóð Skóla- og frístundaráð Reykjavíkur (áður Menntaráð) frammi fyri...  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Hvað hefur komið fyrir litla Ísland?

Ég var agndofa í lok vinnudags í byrjun árs....  

Meira
Aðsendar greinar 09. feb. 2012 06:00

Ávöxtun (tap) lífeyrissjóða

Nýlega er komin út skýrsla rannsóknarnefndar um lífeyrissjóði. Mikið hefur verið rætt um h...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 06:00

PIP brjóstapúðamálið – um staðreyndir og villandi málflutning

Liðlega 400 íslenskar konur fengu brjóstafyllingar frá franska framleiðandanaum Poly Impla...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 14:30

Hvað með ristilkrabbamein?

Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra ritar grein í Fréttablaðið þann 4. febrúar sl. Þar ...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 09:21

Umræða um tap lífeyrissjóðanna á villigötum

Í nýútkominni rannsóknarskýrslu er fjallað um hvernig íslensku lífeyrissjóðunum vegnaði í...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 06:00

Endurskoðun stjórnarskrárinnar

Nú liggja fyrir tillögur stjórnlagaráðs um breytingar á stjórnarskrá íslenska lýðveldisins...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 06:00

Menntun ábyrgra stjórnenda – ábyrgð háskóla

Leiðtogar dagsins í dag, hvort sem er í stjórnmálum eða viðskiptalífi, standa frammi fyrir...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 06:00

Velferð barna í forsjárdeilum

Karvel Aðalsteinn Jónsson skrifar grein í Fréttablaðið 7. febrúar þar sem hann spyr mig í ...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 06:00

Slys aldarinnar við Hringbraut eða sóun í Fossvogi?

Guðjón Baldursson læknir skrifaði í Fbl. og rökstuddi að Háskólasjúkrahús (HSH) við Hringb...  

Meira
Aðsendar greinar 08. feb. 2012 06:00

Val um skólastefnu – já takk!

Tilefni þessarar greinar er að vekja athygli foreldra 6 ára barna, sem nú eru að innrita b...  

Meira
Aðsendar greinar 07. feb. 2012 13:00

Konur og samkeppnishæfni Evrópu

Efnahagssamdráttur, einkum í Evrópu, hefur verið efst á baugi nær allra alþjóðlegra funda ...  

Meira
Aðsendar greinar 07. feb. 2012 06:00

Sagan um neysluhléið

Á góðæristímum Íslands voru miklir erfiðleikar við að manna leikskólana. Það var næga vinn...  

Meira
Aðsendar greinar 07. feb. 2012 06:00

Veist þú betur Ögmundur ?

Þann 10. febrúar n.k. mun Félag um foreldrajafnrétti standa fyrir ráðstefnu um fyrirhugaða...  

Meira
Aðsendar greinar 07. feb. 2012 06:00

Borgin mismunar í framlögum til félagsstarfs

Borgaryfirvöld styðja að mörgu leyti vel við bakið á frjálsri félagastarfsemi barna og ung...  

Meira
Aðsendar greinar 07. feb. 2012 06:00

Að fermast upp á Faðirvorið

Þær fréttir berast úr íslenska grunnskólakerfinu að fjórði hver drengur sem útskrifast get...  

Meira
Aðsendar greinar 07. feb. 2012 06:00

Endurskoðun eða uppstokkun?

Eftir að hafa unnið að endurskoðun stjórnarskrár lýðveldisins í tæpa fjóra mánuði skilaði ...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 15:00

Áskorun réttarkerfis og samfélags

Virðingin sem mér var sýnd! Ég bar ekki virðingu fyrir sjálfri mér og að mér skyldi sýnd þ...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 12:54

Dagur leikskólans

Í dag er haldinn hátíðlegur í fimmta sinn Dagur leikskólans. Fyrir rúmum 60 árum síðan eða...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 06:00

Já á landsbyggðinni

Löng hefð er fyrir því að þjónustuver Já og forvera fyrirtækisins séu staðsett bæði á land...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 12:57

Stjórnvöld biðjist afsökunar

Það verður að teljast sigur þegar umboðsmaður skuldara tók málstað lánþega í útvarpsþætti ...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 06:00

Sujud er orðin þriggja ára

Hún fæddist í Zeitun á Gazaströndinni og tilheyrir Samuni ættinni. Fyrir þremur árum fæddi...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 06:00

Erum við verri en annað fólk?

Ég hef fengið tækifæri til að búa í nokkrum ólíkum löndum og kynnast öðrum þjóðum. Í grófu...  

Meira
Aðsendar greinar 06. feb. 2012 06:00

Skýrslu Hagfræðistofnunar verulega ábótavant

Nýverið birti Hagfræðistofnun Háskólans skýrslu sína um tillögur Hagsmunasamtaka heimilann...  

Meira
Aðsendar greinar 05. feb. 2012 12:09

Yfirlýsing frá Jóni Ásgeiri Jóhannessyni

Í tilefni þess sem kemur fram í lífeyrissjóðaskýrslunni að Baugur Group hf. hafi borið áby...  

Meira
Aðsendar greinar 05. feb. 2012 06:00

Æskilegt að velja heilkornavörur

Nýlega voru birtar niðurstöður úr landskönnun á mataræði sem fram fór á árunum 2010-2011. ...  

Meira
Aðsendar greinar 04. feb. 2012 11:00

Spornum við útbreiðslu krabbameina

Alþjóðlegur dagur baráttu gegn krabbameinum er í dag, 4. febrúar, haldinn ár hvert samkvæm...  

Meira
Aðsendar greinar 04. feb. 2012 06:00

Hvers vegna er verið að halda upplýsingum um alvarlegar aukaverkanir HPV –bóluefnanna frá fólki?

Það er greinilegt á öllu að það þarf fleiri menn en þetta umdeilda lið þarna frá Landlækni...  

Meira
Aðsendar greinar 04. feb. 2012 06:00

Perlu í Perluna

Þegar Perlan var byggð efst á Öskjuhlíðinni um 1990 voru aðrir tímar. Hitaveitan var ekki ...  

Meira
Aðsendar greinar 04. feb. 2012 06:00

Hvað er „Liberal Democrats“ og hvað mundi það þýða fyrir íslenskt samfélag

Ég heyrði talað um „Liberal Democrats“ og velti fyrir mér hvað þetta væri á ís...  

Meira
Aðsendar greinar 04. feb. 2012 06:00

Eru konur konum verstar?

Fimmtudaginn 26. janúar sl. veitti Félag kvenna í atvinnurekstri (FKA) Katrínu Olgu Jóhann...  

Meira
Aðsendar greinar 03. feb. 2012 23:08

Harður árekstur

Einn eftirminnilegasti kennari sem ég hef haft í gegnum tíðina er Þorsteinn Gylfason heiti...  

Meira
Aðsendar greinar 03. feb. 2012 14:45

Áætlun um efnahagslegt öryggi

Við forsvarsmenn sex vinstriflokka á Norðurlöndunum krefjumst þess að reglur verði settar ...  

Meira
Aðsendar greinar 03. feb. 2012 08:00

Nýr Landspítali við Hringbraut: Nei, takk!

Þegar músin tísti vöknuðu ljónin í skóginum. Annar höfundur þessarar greinar skrifaði tvær...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Atvinna
  • Serblad
  • Serblad
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Aðsendar greinar / Fæðubót: Böl eða blessun?