Aðlögun þjóðarbúsins gengið vonum framar

Vísir Innlent 13. mars 2010 11:36
Stefán Ólafsson.
Stefán Ólafsson.

Samdráttur í þjóðarframleiðslu Finna og Dana var meiri en hjá Íslendingum á árunum 2008 og 2009. Þetta kemur fram í nýju fréttabréfi Þjóðmálastofnunar Háskóla Íslands en þar er fjallað um samdrátt efnahagslífsins hér á landi í samanburði við hinar Norðurlandaþjóðirnar og aðrar vestrænar þjóðir. Aðlögun íslenska þjóðarbúsins í kjölfar hrunsins virðist hafa gengið vonum framar.

Í greininni sem skrifuð er af Stefáni Ólafssyni prófessor við HÍ er stuðst við nýjar tölur frá Eurostat, hagstofu Evrópusambandsins og nýlegar tölur frá Hagstofa Íslands um þróun þjóðarframleiðslunnar á Íslandi á árinu 2009. „Niðurstaðan er að samdráttur þjóðarframleiðslu á Íslandi var 6,5% á árinu 2009, en á árinu 2008 jókst þjóðarframleiðslan um 1,0%. Samanlagður er samdráttur þjóðarframleiðslu á Íslandi árin 2008 og 2009 því 5,5%," segir í í greininni.

Mikill samdráttur hjá Finnum

Mjög mikill samdráttur varð í þjóðarframleiðslu Finna á árinu 2009, eða um 7,8%. Ísland var með 6,5%, Danmörk 5,1%, Svíþjóð 4,9% og loks varð aðeins um 1,5% samdráttur í Noregi á árinu 2009 að því er fram kemur í greininni. „Ef litið er á bæði árin, 2008 og 2009 saman, þá er heildarsamdráttur þjóðarframleiðslu í kreppunni mestur í Finnlandi (6,6%) og næst mestur í Danmörku (6,0%). Ísland er í þriðja sæti með samtals 5,5% samdrátt, litlu meira en Svíþjóð (5,1%). Hagvöxtur í Danmörku hefur verið talsvert minni en á Íslandi á síðustu árum og almennt er Dönum ekki spáð miklum hagvexti á næstu árum af bæði OECD og Eurostat," segir ennfremur.

Þá segir að athygli veki í ljósi hins mikla áfalls er varð með fjármálahruninu á Íslandi að samdráttur þjóðarframleiðslu skuli ekki vera meiri en raun ber vitni. „Áður hafði verið spáð allt að 10% samdrætti þjóðarframleiðslu á árinu 2009 (bæði af AGS, OECD og Seðlabanka Íslands). Spáð er frekari samdrætti hér á landi á árinu 2010 og Seðlabanki Íslands hefur í janúar fært spá sína niður frá því sem áður var, m.a. vegna óvissu er tengist töfum við afgreiðslu Icesave-málsins."

Atvinnuleysið mest í Svíþjóð og Finnlandi

Í fréttabréfinu er einnig fjallað um umfang atvinnuleysis á Norðurlöndunum í fyrra og kemur fram að atvinnuleysi var mest í Finnlandi og Svíþjóð, en Ísland telst vera í þriðja sæti með 7,8% fyrir fjórða ársfjórðung, samkvæmt umreikningi OECD á tölum Hagstofu Íslands. „Hagstofa Íslands mældi atvinnuleysið á fjórða ársfjórðungi sem 6,7% en með stöðlunaraðferð OECD hækkar það í 7,8%. Skráð atvinnuleysi eins og Vinnumálastofnun mælir það er almennt hærra, sem nemur rúmlega 1 %-stigi. Tölur OECD eru hins vegar sambærilegastar við tölur annarra landa."

Stefán segir að samdráttur efnahagslífs og tengdur atvinnuleysisvandi á Íslandi undir lok ársins 2009 sé því í meðallagi í hópi norrænu þjóðanna. „Má telja það nokkurt undrunarefni í ljósi hrunsins," segir hann í greininni.

Þegar litið er til fleiri þjóða kemur í ljós að Ísland er í 10. sæti af 35 löndum, þegar samdráttur þjóðarframleiðslu er metinn. „Af þeim 9 þjóðum sem eru með meiri samdrátt þjóðarframleiðslu en Íslendingar standa Eystrasaltsþjóðirnar (Lettland, Eistland og Litháen) áberandi verst og samdráttur í Írlandi var einnig mikill (10,5%), eða nærri helmingi meiri en hjá Íslendingum. Finnar eru svo í 5. sæti á þessum ófaralista. Að meðaltali dróst þjóðarframleiðsla aðildarríkja Evrópusambandsins saman um samtals 3,4% á árunum 2008 og 2009."

Eykur bjartsýni

Þá voru 20 þjóðir með meiri atvinnuleysisvanda en Íslendingar undir lok ársins 2009 af þessum 35 vestrænu þjóðum. Stefán segir að þjóðirnar við Eystrasalt standi verst, auk Spánverja, Íra og ýmissa þjóða í Austur-Evrópu. Meðaltal Bandaríkjanna og Evrópusambandsins er nærri 10%, eða talsvert meira en atvinnuleysi Íslendinga.

Að lokum segir Stefán að aðlögun íslenska þjóðarbúsins í kjölfar hrunsins virðist því hafa „gengið vonum framar, enn sem komið er, þ.e. hvað þjóðarframleiðslu og atvinnuleysi snertir. Þessi staðreynd ætti að auka Íslendingum bjartsýni um möguleika á öflugri endurreisn þjóðarbúskaparins."

Fréttabréfið má sjá hér.




Fleiri fréttir - Innlent

Innlent 12. feb. 2012 20:15

Fyrri stofnfundur Breiðfylkingarinnar haldinn í dag

Í dag var haldinn stofnfundur Breiðfylkingarinnar sem fulltrúar Hreyfingarinnar, Frjálslyn...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 19:45

Rúmur meirihluti vill Ólaf Ragnar áfram

Rúmur meirihluti þjóðarinnar vill að Ólafur Ragnar Grímsson gefi aftur kost á sér í forset...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 18:46

Flestir vildu að Blár Ópal myndi vinna: "Leiðinlegt fyrir sigurlagið“

"Það er skrýtið að þetta hafi ekki verið skýrara,“ segir Ingólfur Þórarinsson, eða I...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 17:26

Hundur fastur í neti - tækjabíll frá slökkviliðinu kallaður til

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var tilkynnt um hund sem væri fastur í netadræsum við Ægisg...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 13:51

Tæplega 80 þúsund atkvæði greidd í Eurovison

Alls voru greidd 79 þúsund atkvæði í Eurovision keppninni sem var sýnd á RÚV í gærkvöldi. ...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 10:53

Beit lögregluþjón

Karlmaður beit lögregluþjón til blóðs í morgun. Maðurinn var stöðaður á Laugaveginum rétt ...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 10:45

Huglausa ljónið féll niður hlera í miðri sýningu

"Samkvæmt öllum myndum og rannsóknum ætti hann að sleppa ótrúlega vel,“ segir leikar...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 10:19

Opið í Böggvistaðafjalli og í Oddsskarði

Lokað er í Bláfjöllum í dag vegna veðurs en þar er bæði hvasst og Blautt. Sömu sögu er að ...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 09:32

Settist upp í lögreglubíl og braut bílrúðu

Ölvaður og æstur maður var handtekinn við krá í Hafnarfirði eftir að hann braut rúðu í lög...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 22:32

Mundu eftir mér sigraði í Evróvisjón

Það var lagið Mundu eftir mér sem sigraði í Evróvisjón í kvöld. Það var Greta Salóme Stefá...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 20:00

Rokkarar heimtuðu hættulegt rauðvín

Nokkrir aðdáendur hljómsveitarinnar Motörhead mótmæltu ákvörðun vínbúðarinnar um að leyfa ...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 19:30

Fórnarlambið á Þórshöfn með mikla höfuðáverka

Rúmlega sjötugur karlmaður liggur þungt haldinn á gjörgæsludeild sjúkrahússins á Akureyri ...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 18:30

Óvíst hvaða lög sprengjumaðurinn braut

Karlmaður á áttræðisaldri hefur játað að hafa komið sprengjunni fyrir skammt frá Stjórnarr...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 17:35

Búist við hríðarveðri seint í kvöld

Það hvessir af suðri seint í köld og hlýnar heldur. Á hæstu fjallvegum um landið vestanve...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 15:39

Fimm sagt sig af lista Kópavogsbúa vegna óánægju

Fimm hafa sagt sig úr Y-lista Kópavogsbúa eftir að Rannveig Ásgeirsdóttir myndaði meirihlu...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 16:13

Útigangsmenn hrelldu börn á Klambratúni

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk tilkynningu um að útigangsmenn hefði verið ofstopafull...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 16:06

Ætlaði að slökkva á brunaboðanum en ræsti innbrotsboðann í staðinn

Hann var óheppinn iðnaðarmaðurinn sem var að störfum á Kleppsspítala í morgun. Lögreglu bá...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 15:02

Skyndihjálparmaður Íslands bjargaði dóttur sinni

Rauði kross Íslands hefur valið Gísla Örn Gíslason sem skyndihjálparmann ársins 2011 fyrir...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 12:28

Játning í sprengjumálinu

Karlmaður á áttræðisaldri hefur játað að hafa komið sprengju fyrir skammt frá Stjórnarráði...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 10:45

Braust inn til manns á áttræðisaldri og misþyrmdi hrottalega

Rúmlega sjötugur karlmaður liggur þungt haldinn á sjúkrahúsinu á Akureyri eftir alvarlega ...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 13:30

Aukin þyngd sjúklinga hækkar kostnað vegna lyfja

Aukin þyngd sjúklinga hefur hækkað kostnað Landspítalans vegna lyfja síðustu misseri. Muna...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 09:29

Karlmaður stunginn og svo færður í fangageymslu

Karlmaður var stunginn í nótt í Hafnarfirði og handtók lögreglan fjóra menn vegna málsins....  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 12:09

Ákvörðun um gæsluvarðhald tekin í dag

Lögreglan tekur ákvörðun um það síðar í dag hvort að krafist verði gæsluvarðahalds yfir ka...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 11:47

112-dagurinn haldinn í dag - vélmenni og sprengjubíll í Smáralindinni

112-dagurinn verður haldinn um allt land í dag. Markmið dagsins er að kynna neyðarnúmerið ...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 09:56

Færð og aðstæður: Hálka víða á Suðurlandi

Hálkublettir eru á Hellisheiði og Þrengslum en snjóþekja á Lyngdalsheiði, en hálkublettir ...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 09:45

Fíkniefnasali á Menntavegi og grillaðir unglingar í Gvendargeisla

Lögreglan hafði afskipti af fjórum unglingum við Gvendargeisla um klukkan hálf tólf í gærk...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 09:00

Bíða Alþingis og fresta innheimtu

Kristbjörg Stephensen borgarlögmaður segir í minnisblaði til borgarráðs að borgin verði að...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 08:30

Óttast að verðmætar minjar endi í bræðslu

Safnaráð tók skeiðar og skart úr silfri af breskum kaupmanni sem hugðist fara með góssið ú...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 08:00

Eftirlitsstofnun vill kröfur í lög fyrir marslok

Íslensk stjórnvöld telja að nýtt frumvarp um starfsemi Ríkisútvarpsins ohf. (RÚV) muni inn...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 07:00

Frumvarp um barnalög gamaldags

Anja Cordes, lögfræðingur á sviði fjölskylduréttar í Danmörku, segir í viðtali við Fréttab...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Fréttir eftir mánuði

Þú ert hér: Forsíða / Fréttir / Innlent / Aðlögun þjóðarbúsins gengið vonum framar