Góðum verkum haldið á lofti

Fréttablaðið Fastir pennar 12. mars 2010 06:00
Steinunn Stefánsdóttir
Steinunn Stefánsdóttir
Steinunn Stefánsdóttir skrifar:
Oft er því haldið fram að í hraða nútímasamfélagsins gefist lítill tími til að huga að náunganum. Vissulega er samfélagið gerbreytt frá því sem var, jafnvel fyrir aðeins hálfri öld þegar mun stærri hluti daglegs lífs kvenna og barna fór fram inni á heimilinu. Stuðningur við þá samborgara sem á liðsinni þurfti að halda var þá að langstærstum hluta í höndum heimavinnandi kvenna.

Margt er nú breytt. Þorri kvenna er á vinnumarkaði og margt af því sem áður var í höndum húsmæðra er nú hluti heilbrigðis- og tryggingakerfis. Því fer þó fjarri að hver og einn lifi bara í sínum kassa og láti sig engu varða um samborgarana. Allt í kringum okkur er fólk sem notar frítíma sinn til þess að leggja eitthvað af mörkum til þess að bæta líf meðborgara sinna.

Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins voru veitt í fimmta sinn í gær. Markmiðið með veitingu verðlaunanna er einmitt að beina kastljósinu að verkum þessa fólks, öllum þeim góðu og kærleiksríku verkum sem unnin eru víða í samfélaginu.

Samfélagsverðlaununum er ætlað að vera hvatning til allra þeirra fjöldamörgu sem leggja aðeins meira af mörkum til samfélagsins en við gerum vel flest. Sömuleiðis er þeim ætlað að beina kastljósinu að þessum verkum meðal annars með það fyrir augum að þau verði öðrum til eftirbreytni.

Frá upphafi hefur verið leitað til lesenda Fréttablaðsins og óskað eftir tilnefningum. Þeir hafa brugðist vel við og sent inn mikinn fjölda tilnefninga. Hafi þeir þökk fyrir.

Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins eru veitt í fjórum flokkum. Fimm samtök og einstaklingar eru útnefnd af dómnefnd í hverjum þessara flokka. Auk þess eru veitt heiðursverðlaun. Í gær var því 21 aðili, einstaklingar, samtök og stofnanir, heiðraður í Þjóðmenningarhúsinu.

Sjálf Samfélagsverðlaunin féllu í skaut Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Meirihluti starfs björgunarsveitanna fer fram innanlands en Íslenska alþjóðabjörgunarsveitin er þó til taks þegar neyðarástand skapast í öðrum löndum. Sú sveit uppskar aðdáun ekki bara hér á landi heldur víða um lönd þegar hún brást skjótt við eftir jarðskjálftana á Haítí í janúar síðastliðnum.

Hvunndagshetjan í ár er André Bachmann sem glatt hefur samferðafólk sitt í áratugi. Einkum er hann heiðraður fyrir framgöngu sína við að halda á hverju ári jólaskemmtun fyrir fatlaða þar sem vinsælustu skemmtikraftar þjóðarinnar koma fram.

Verðlaun í flokknum Frá kynslóð til kynslóðar féllu í skaut Gauraflokksins í Vatnaskógi en drengjum með ADHD býðst sumarbúðadvöl í sérstökum flokki fyrir kraftmikla stráka.

Í flokknum Til atlögu gegn fordómum hlaut Hugarafl verðlaunin. Í Hugarafli starfa saman á jafnréttisgrundvelli notendur geðheilbrigðisþjónustunnar sem eru í bata og fagfólk.

Heiðursverðlaunin hlaut Jón Böðvarsson sagnfræðingur, kennari og sögumaður fyrir ómetanlegt framlag sitt við að kynna Íslendingasögur fyrir samborgurum sínum.

Í hraða nútímans er mikilvægt að staldra við og skoða það sem vel er gert. Samfélagsverðlaunin eru vettvangur til þess.


Fleiri fréttir - Fastir pennar

Fastir pennar 11. feb. 2012 06:00

Panikk í pólitík

Niðurstöður skoðanakönnunar Fréttablaðsins og Stöðvar 2 um fylgi flokkanna, sem birtust í ...  

Meira
Fastir pennar 11. feb. 2012 06:00

Ríkisvæðing er mesta hættan

Ögmundi Jónassyni tókst með haldbærum rökum í Kastljóssþætti í vikunni að sýna fram á yfir...  

Meira
Fastir pennar 10. feb. 2012 06:00

Fleiri kostir í samgöngum

Fáar þjóðir eiga fleiri eða aflmeiri bíla miðað við fólksfjölda en Íslendingar. Það á sér ...  

Meira
Fastir pennar 10. feb. 2012 06:00

Ást á stórum byggingum

Einhverjum gæti þótt mikil eftirsjá að öllu fénu sem fer í sundlaugar hér og þar um landið...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 19:00

Tvíkynhneigð kærasta vill tilbreytingu

Öll erum við með okkar hugmyndir um kynlíf. Hugmyndunum fylgja oft vandamál sem kynfræðing...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 06:00

Samstaða um gamlar hugmyndir

Nýja stjórnmálaaflið Samstaða, undir forystu Lilju Mósesdóttur alþingismanns, gefur sig út...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 06:00

Frá trú til skynsemi

Það er undur stutt síðan málið sýndist afgreitt. Þetta með markaðina og ríkið. Markaðir vi...  

Meira
Fastir pennar 08. feb. 2012 06:00

Sameiginleg skylda

Algjör breyting hefur orðið í forsjármálum barna á 20 árum. Árið 1992 varð fyrst möguleiki...  

Meira
Fastir pennar 08. feb. 2012 14:00

Lífeyrissjóðirnir plataðir

Forsvarsmenn lífeyrissjóða keppast nú um að túlka niðurstöðu nefndar sem gerði úttekt á st...  

Meira
Fastir pennar 07. feb. 2012 06:00

Um börnin og refsilöggjöfina – dómur Hæstaréttar

Lög eiga að tryggja sanngjarna málsmeðferð, réttlæti í samskiptum fólks og velferð. Börn s...  

Meira
Fastir pennar 07. feb. 2012 06:00

Hinar orkulindirnar

Þriðjungur þingheims, þingmenn úr öllum flokkum undir forystu Skúla Helgasonar, hefur lagt...  

Meira
Fastir pennar 06. feb. 2012 08:00

Tapað af fagmennsku

Ný skýrsla um lífeyrissjóðina hefur leitt í ljós að á tveimur árum kringum bankahrunið tók...  

Meira
Fastir pennar 06. feb. 2012 06:00

Huga þarf að færum leiðum

Skuldavandi heimila á að stórum hluta rót sína í því furðulega kerfi sem landsmenn hafa hé...  

Meira
Fastir pennar 04. feb. 2012 06:00

Peningar annarra

Skýrsla sjálfstæðrar úttektarnefndar um starfsemi lífeyrissjóðanna inniheldur harða gagnrý...  

Meira
Fastir pennar 04. feb. 2012 06:00

Fóstbræðralag

Kópavogur hefur dregið að sér nokkra athygli vegna viðræðna um myndun nýs meirihluta í bæj...  

Meira
Fastir pennar 03. feb. 2012 06:00

Viðbúin nýjum hættum

Sprengjan sem sprakk fyrir framan skrifstofur ríkissaksóknara, í næsta nágrenni við Stjórn...  

Meira
Fastir pennar 03. feb. 2012 06:00

Ætlað samþykki

Nokkrir þingmenn vilja breyta lögum á þann hátt að líffæri verði tekin úr látnum mönnum ne...  

Meira
Fastir pennar 02. feb. 2012 06:00

Tómir kofar

Stutt en áhugaverð umræða fór fram um EES-samninginn á Alþingi fyrr í vikunni. Tilefnið va...  

Meira
Fastir pennar 02. feb. 2012 06:00

Vöggugjöf

Kynjamunur á námsárangri í Reykjavík er fyrst og fremst í íslensku. Munurinn kemur afdrátt...  

Meira
Fastir pennar 01. feb. 2012 06:00

Greiðari leið til lífgjafar eftir andlát

Allmörg nýru úr lifandi gjöfum eru grædd í Íslendinga ár hvert. Vegna þessarar gjafmildi á...  

Meira
Fastir pennar 31. jan. 2012 06:00

Óklárað uppgjör

Þingmenn úr að minnsta kosti þremur flokkum, auk óháðra, munu í vikunni leggja fram á Alþi...  

Meira
Fastir pennar 30. jan. 2012 08:00

Ögmundur og íhaldið

Sagnfræðingar tala um að stéttastjórnmál hafi leyst sjálfstæðisstjórnmál af hólmi árið 191...  

Meira
Fastir pennar 30. jan. 2012 06:00

Kostnaður krónu

Samkeppniseftirlitið birti í síðustu viku skýrslu sína um verðþróun og samkeppni á dagvöru...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Atvinna
  • Serblad
  • Serblad
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Fastir pennar / Góðum verkum haldið á lofti