Stór hluti íbúa Húnaþings vestra og Bæjarhrepps að sökkva í skuldafen

Vísir Innlent 12. mars 2010 19:00
Stór hluti íbúa Húnaþings vestra og Bæjarhrepps að sökkva í skuldafen

Gjaldþrot blasir við fjórðungi heimila við innanverðan Húnaflóa eftir að stofnfjáraukning í sparisjóði breyttist í skelfilegt skuldafen. Áhrif á byggðina gætu orðið þungbær og langvarandi, að mati Byggðastofnunar.

Það var í tengslum við sameiningu Sparisjóðs Húnaþings og Stranda við Sparisjóð Keflavíkur, í bjartsýni góðærisins síðla árs 2007, sem um tvöhundruð stofnfjáreigendur í Bæjarhreppi og Húnaþingi vestra skrifuðu sig fyrir nærri tveggja milljarða króna stofnfjáraukningu í tveimur áföngum. Flestir tóku kúlulán, ýmist verðtryggt eða í erlendri mynt. Byggðastofnun áætlar að skuldirnar standi nú í þremur milljörðum.

Stofnféð sem var keypt fyrir lánin er svo gott sem glatað. Eftir sitja hrikalegar skuldir. 15-25 milljónir króna er algengt á heimili, en það eru líka dæmi um fjölskyldur sem skulda á annað hundrað milljóna króna.

Það á við um heimilið að Auðunnarstöðum í Víðidal, en þau Júlíus Guðni Antonsson og Kristín Lundberg keyptu stofnfjárbréf fyrir dætur sínar þrjár en sitja uppi með hreint ótrúlega skuld, um 100 milljónir króna. Þegar Júlíus er spurður hvort hann sé borgunarmaður fyrir 100 milljóna skuld er svarið: "Nei".

Áætlað er að fjórðungur heimila á svæðinu skuldi vegna stofnfjárkaupanna. Elín R. Líndal, formaður Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, segir að vissulega séu fjölskyldur og einstaklingar að lenda í miklu vandræðum hvar sem er á landinu. Það sem sé sérstakt við þetta mál er hve stór hluti samfélagsins þarna sé undir. Í samfélagslegum skilningi sé þetta mjög alvarlegt og stórt mál.

Í sumum sveitum, eins og í Bæjarhreppi við vestanverðan Hrútafjörð, snertir málið meirihluta heimila. Oddvitinn, Sigurður Kjartansson, segir að um gríðarlega háar fjárhæðir sé um að spila. Ef þetta verði allt innheimt verði það gríðarlegur skellur fyrir samfélagið í heild sinni.

Fulltrúar skuldara eiga nú í viðræðum við kröfuhafana, Sparisjóð Keflavíkur og Landsbankann, en bankarnir féllust fyrir áramót á að framlengja greiðslufrest fram í maí. Skuldadagurinn nálgast.

Elín Líndal segir fólk sjá fram á að tapa ekki aðeins húsum sínum heldur einnig bújörðum og þar með atvinnu og framfærslu. Fjárhæðirnar séu slíkar að ekkert venjulegt fólki ráði við þær. Þarna búi upp til hópa venjulegt fólk sem ekki lifi mjög hátt.

En hvernig gat það gerst að venjulegt alþýðufólk lenti í þvílíku skuldafeni? Meira um það á Stöð 2 á morgun.






Fleiri fréttir - Innlent

Innlent 12. feb. 2012 09:32

Settist upp í lögreglubíl og braut bílrúðu

Ölvaður og æstur maður var handtekinn við krá í Hafnarfirði eftir að hann braut rúðu í lög...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 09:44

Lýst eftir Birnu Dögg

Lögreglan lýsir eftir Birnu Dögg Gunnarsdóttur til heimilis að Heiðarhvammi 7, Reykjanesbæ...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 22:32

Mundu eftir mér sigraði í Evróvisjón

Það var lagið Mundu eftir mér sem sigraði í Evróvisjón í kvöld. Það var Greta Salóme Stefá...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 20:00

Rokkarar heimtuðu hættulegt rauðvín

Nokkrir aðdáendur hljómsveitarinnar Motörhead mótmæltu ákvörðun vínbúðarinnar um að leyfa ...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 19:30

Fórnarlambið á Þórshöfn með mikla höfuðáverka

Rúmlega sjötugur karlmaður liggur þungt haldinn á gjörgæsludeild sjúkrahússins á Akureyri ...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 18:30

Óvíst hvaða lög sprengjumaðurinn braut

Karlmaður á áttræðisaldri hefur játað að hafa komið sprengjunni fyrir skammt frá Stjórnarr...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 17:35

Búist við hríðarveðri seint í kvöld

Það hvessir af suðri seint í köld og hlýnar heldur. Á hæstu fjallvegum um landið vestanve...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 15:39

Fimm sagt sig af lista Kópavogsbúa vegna óánægju

Fimm hafa sagt sig úr Y-lista Kópavogsbúa eftir að Rannveig Ásgeirsdóttir myndaði meirihlu...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 16:13

Útigangsmenn hrelldu börn á Klambratúni

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk tilkynningu um að útigangsmenn hefði verið ofstopafull...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 16:06

Ætlaði að slökkva á brunaboðanum en ræsti innbrotsboðann í staðinn

Hann var óheppinn iðnaðarmaðurinn sem var að störfum á Kleppsspítala í morgun. Lögreglu bá...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 15:02

Skyndihjálparmaður Íslands bjargaði dóttur sinni

Rauði kross Íslands hefur valið Gísla Örn Gíslason sem skyndihjálparmann ársins 2011 fyrir...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 12:28

Játning í sprengjumálinu

Karlmaður á áttræðisaldri hefur játað að hafa komið sprengju fyrir skammt frá Stjórnarráði...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 10:45

Braust inn til manns á áttræðisaldri og misþyrmdi hrottalega

Rúmlega sjötugur karlmaður liggur þungt haldinn á sjúkrahúsinu á Akureyri eftir alvarlega ...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 13:30

Aukin þyngd sjúklinga hækkar kostnað vegna lyfja

Aukin þyngd sjúklinga hefur hækkað kostnað Landspítalans vegna lyfja síðustu misseri. Muna...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 09:29

Karlmaður stunginn og svo færður í fangageymslu

Karlmaður var stunginn í nótt í Hafnarfirði og handtók lögreglan fjóra menn vegna málsins....  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 12:09

Ákvörðun um gæsluvarðhald tekin í dag

Lögreglan tekur ákvörðun um það síðar í dag hvort að krafist verði gæsluvarðahalds yfir ka...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 11:47

112-dagurinn haldinn í dag - vélmenni og sprengjubíll í Smáralindinni

112-dagurinn verður haldinn um allt land í dag. Markmið dagsins er að kynna neyðarnúmerið ...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 09:56

Færð og aðstæður: Hálka víða á Suðurlandi

Hálkublettir eru á Hellisheiði og Þrengslum en snjóþekja á Lyngdalsheiði, en hálkublettir ...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 09:45

Fíkniefnasali á Menntavegi og grillaðir unglingar í Gvendargeisla

Lögreglan hafði afskipti af fjórum unglingum við Gvendargeisla um klukkan hálf tólf í gærk...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 09:00

Bíða Alþingis og fresta innheimtu

Kristbjörg Stephensen borgarlögmaður segir í minnisblaði til borgarráðs að borgin verði að...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 08:30

Óttast að verðmætar minjar endi í bræðslu

Safnaráð tók skeiðar og skart úr silfri af breskum kaupmanni sem hugðist fara með góssið ú...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 08:00

Eftirlitsstofnun vill kröfur í lög fyrir marslok

Íslensk stjórnvöld telja að nýtt frumvarp um starfsemi Ríkisútvarpsins ohf. (RÚV) muni inn...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 07:00

Frumvarp um barnalög gamaldags

Anja Cordes, lögfræðingur á sviði fjölskylduréttar í Danmörku, segir í viðtali við Fréttab...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Fréttir eftir mánuði

Þú ert hér: Forsíða / Fréttir / Innlent / Stór hluti íbúa Húnaþings vestra og Bæjarhrepps að sökkva í skuldafen