Þrotabú Baugs vill „miskabætur“ til baka vegna fjársvikamáls

Vísir Innlent 12. mars 2010 12:50
Karl Georg Sigurbjörnsson að ræða við blaðamann í Héraðsdómi Reykjavíkur.
Karl Georg Sigurbjörnsson að ræða við blaðamann í Héraðsdómi Reykjavíkur.

Þrotabú Baugs hefur höfðað riftunarmál gegn lögfræðingnum Karli Georg Sigurbjörnssyni vegna starfa hans fyrir A Holding, dótturfélag Baugs. Fyrirtaka fór fram í málinu í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun.

Samkvæmt heimildum Vísis fékk Karl Georg um tíu milljónir greiddar í nokkurskonar miskabætur eftir að hann var ákærður fyrir fjársvik á síðasta ári en því var haldið fram að hefði blekkt Sigurð Þórðarson, fyrrverandi ríkisendurskoðanda til að selja stofnfjárbréf í Sparisjóði Hafnarfjarðar á 25 milljónir hvert í stað 45 milljóna. Karl Georg var svo sýknaður í Héraðsdómi Reykjavíkur.

Samkvæmt heimildum Vísis er litið á greiðsluna sem gjafagjörning af hálfu þrotabús Baugs og farið fram á riftun þess vegna. Rökin eru helst þau að Baugur hafi ekki haft neina skyldu til þess að greiða Karli Georg þessa upphæð. Sjálfur á Karl Georg að hafa farið fram á þennan pening sem miskabætur fyrir þær hremmingar sem hann taldi sig hafa lent í vegna stofnfjárkaupanna.

Dómsmálið vakti gríðarlega athygli en það fór fram í febrúar á síðasta ári. Meðal þeirra sem báru vitni voru athafnamennirnir Pálmi Haraldsson og Magnús Ármann.

Þeir sögðust báðir hafa litið á kaup sín á stofnfjárhlutum í Sparisjóði Hafnarfjarðar sem gott viðskiptatækifæri enda hafi sameining sjóðsins við aðra sparisjóði legið fyrir. Pálmi sagðist ekki hafa vitað af því að hann væri að kaupa bréfin af A Holding.

Það voru Karl Georg ásamt Sigurði G. Guðjónssyni sem höfðu milligöngu um að kaupa stofnfjárhluti í Sparisjóði Hafnarfjarðar árið 2006 fyrir A Holding, dótturfélag Baugs. Félagið var staðsett í Lúxemborg og fóru kaupin í gegnum útibú þess í Sviss.

Málinu var svo áfrýjað til Hæstaréttar í mars á síðasta ári.


Fleiri fréttir - Innlent

Innlent 11. feb. 2012 22:32

Mundu eftir mér sigraði í Evróvisjón

Það var lagið Mundu eftir mér sem sigraði í Evróvisjón í kvöld. Það var Greta Salóme Stefá...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 20:00

Rokkarar heimtuðu hættulegt rauðvín

Nokkrir aðdáendur hljómsveitarinnar Motörhead mótmæltu ákvörðun vínbúðarinnar um að leyfa ...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 19:30

Fórnarlambið á Þórshöfn með mikla höfuðáverka

Rúmlega sjötugur karlmaður liggur þungt haldinn á gjörgæsludeild sjúkrahússins á Akureyri ...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 18:30

Óvíst hvaða lög sprengjumaðurinn braut

Karlmaður á áttræðisaldri hefur játað að hafa komið sprengjunni fyrir skammt frá Stjórnarr...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 17:35

Búist við hríðarveðri seint í kvöld

Það hvessir af suðri seint í köld og hlýnar heldur. Á hæstu fjallvegum um landið vestanve...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 15:39

Fimm sagt sig af lista Kópavogsbúa vegna óánægju

Fimm hafa sagt sig úr Y-lista Kópavogsbúa eftir að Rannveig Ásgeirsdóttir myndaði meirihlu...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 16:13

Útigangsmenn hrelldu börn á Klambratúni

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk tilkynningu um að útigangsmenn hefði verið ofstopafull...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 16:06

Ætlaði að slökkva á brunaboðanum en ræsti innbrotsboðann í staðinn

Hann var óheppinn iðnaðarmaðurinn sem var að störfum á Kleppsspítala í morgun. Lögreglu bá...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 15:02

Skyndihjálparmaður Íslands bjargaði dóttur sinni

Rauði kross Íslands hefur valið Gísla Örn Gíslason sem skyndihjálparmann ársins 2011 fyrir...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 12:28

Játning í sprengjumálinu

Karlmaður á áttræðisaldri hefur játað að hafa komið sprengju fyrir skammt frá Stjórnarráði...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 10:45

Braust inn til manns á áttræðisaldri og misþyrmdi hrottalega

Rúmlega sjötugur karlmaður liggur þungt haldinn á sjúkrahúsinu á Akureyri eftir alvarlega ...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 13:30

Aukin þyngd sjúklinga hækkar kostnað vegna lyfja

Aukin þyngd sjúklinga hefur hækkað kostnað Landspítalans vegna lyfja síðustu misseri. Muna...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 09:29

Karlmaður stunginn og svo færður í fangageymslu

Karlmaður var stunginn í nótt í Hafnarfirði og handtók lögreglan fjóra menn vegna málsins....  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 12:09

Ákvörðun um gæsluvarðhald tekin í dag

Lögreglan tekur ákvörðun um það síðar í dag hvort að krafist verði gæsluvarðahalds yfir ka...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 11:47

112-dagurinn haldinn í dag - vélmenni og sprengjubíll í Smáralindinni

112-dagurinn verður haldinn um allt land í dag. Markmið dagsins er að kynna neyðarnúmerið ...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 09:56

Færð og aðstæður: Hálka víða á Suðurlandi

Hálkublettir eru á Hellisheiði og Þrengslum en snjóþekja á Lyngdalsheiði, en hálkublettir ...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 09:45

Fíkniefnasali á Menntavegi og grillaðir unglingar í Gvendargeisla

Lögreglan hafði afskipti af fjórum unglingum við Gvendargeisla um klukkan hálf tólf í gærk...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 09:00

Bíða Alþingis og fresta innheimtu

Kristbjörg Stephensen borgarlögmaður segir í minnisblaði til borgarráðs að borgin verði að...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 08:30

Óttast að verðmætar minjar endi í bræðslu

Safnaráð tók skeiðar og skart úr silfri af breskum kaupmanni sem hugðist fara með góssið ú...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 08:00

Eftirlitsstofnun vill kröfur í lög fyrir marslok

Íslensk stjórnvöld telja að nýtt frumvarp um starfsemi Ríkisútvarpsins ohf. (RÚV) muni inn...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 07:00

Frumvarp um barnalög gamaldags

Anja Cordes, lögfræðingur á sviði fjölskylduréttar í Danmörku, segir í viðtali við Fréttab...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Fréttir eftir mánuði

Þú ert hér: Forsíða / Fréttir / Innlent / Þrotabú Baugs vill „miskabætur“ til baka vegna fjársvikamáls