Níu mánaða borgi sig inn á Latabæjarhátíð

Fréttablaðið Innlent 12. mars 2010 03:30
Anna Vallý Baldursdóttir hætti við að fara á Latabæjarhátíðina með dæturnar þegar hún áttaði sig á að greiða þurfti fullt verð fyrir þá yngri sem er aðeins níu mánaða.Fréttablaðið/GVA
Anna Vallý Baldursdóttir hætti við að fara á Latabæjarhátíðina með dæturnar þegar hún áttaði sig á að greiða þurfti fullt verð fyrir þá yngri sem er aðeins níu mánaða.Fréttablaðið/GVA
„Þetta er fáránlegt. Ég er ekkert smá reið," segir Anna Vallý Baldursdóttir sem komst að því að hún þurfti að greiða fullt verð fyrir aðgöngumiða handa níu mánaða dóttur sinni á fyrirhugaða Latabæjarhátíð.

Anna segist hafa ætlað með fjögurra ára dóttur sína á Latabæjarhátíðina sem verður í Laugardalshöll síðar í þessum mánuði. Þar sem hún sjálf búi í Garðinum en foreldrar hennar á Akranesi hafi verið fyrirsjáanlegt að hún myndi lenda í vandræðum með pössun fyrir níu mánaða dóttur.
„Ég hringi til að spyrja hvort ég þyrfti nokkuð að borga fyrir þessa níu mánaða og var þá strax sagt að ég þyrfti að borga fullt gjald, 2.900 krónur. Engu máli myndi skipta þótt ég myndi hafa hana í fanginu allan tímann," segir Anna sem er ósátt og kveður fleiri á sömu skoðun. „Ég hef rætt þetta við fólk og það á enginn til orð."

Ísleifur B. Þórhallsson, framkvæmdastjóri Bravó, sem skipuleggur Latabæjarhátíðina, segir um afar vandaðan og dýran atburð að ræða og að fyrirtækið þurfi að reyna að lifa af eins og önnur fyrirtæki.
„Það þarf að borga fyrir allt í þessum heimi," segir Ísleifur. „Þetta er vara eins og önnur vara og það kostar inn á tónleikana. Þú getur ekki farið inn í Hagkaup og tekið barnamat fyrir sex mánaða barn úr hillunni án þess að borga fyrir það."

Þess utan segir Ísleifur að Latabæjarhátíðin sé alls ekki ætluð fyrir níu mánaða gömul börn. „Það verður mikið sjónarspil og mikil læti. Þetta er rangur staður fyrir börn á þessum aldri," segir hann.

Þá útskýrir Ísleifur að aðeins hafi verið gefið leyfi fyrir ákveðnum fjölda inn í Höllina. Það séu um fimm þúsund manns sem selja megi inn.
„Við værum að brjóta öll lög og reglur ef við værum að hleypa einni manneskju inn í húsið sem væri ekki með miða. Það skiptir engu máli hvort viðkomandi er sex mánaða eða sextíu ára. Ef við værum að gefa barninu þennan miða þá værum við bara að gefa henni þrjú þúsund krónur af því að við getum ekki selt miðann eitthvert annað," segir Ísleifur sem kveðst búast við að það verði „pakkuppselt" á Latabæjarhátíðina.

Að sögn Ísleifs hafa fleiri en Anna gert athugasemdir við að þurfa að borga miða fyrir svo ung börn. „En það sem er einstakt í þessu tilfelli er að þessi kona vill ekkert hlusta á það sem við erum að útskýra heldur er bara hörð á því að hún eigi fullan rétt á að fá vöru frá okkur ókeypis."
gar@frettabladid.is

Ísleifur B. Þórhallsson
Ísleifur B. Þórhallsson

Fleiri fréttir - Innlent

Innlent 11. feb. 2012 22:32

Mundu eftir mér sigraði í Evróvisjón

Það var lagið Mundu eftir mér sem sigraði í Evróvisjón í kvöld. Það var Greta Salóme Stefá...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 20:00

Rokkarar heimtuðu hættulegt rauðvín

Nokkrir aðdáendur hljómsveitarinnar Motörhead mótmæltu ákvörðun vínbúðarinnar um að leyfa ...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 19:30

Fórnarlambið á Þórshöfn með mikla höfuðáverka

Rúmlega sjötugur karlmaður liggur þungt haldinn á gjörgæsludeild sjúkrahússins á Akureyri ...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 18:30

Óvíst hvaða lög sprengjumaðurinn braut

Karlmaður á áttræðisaldri hefur játað að hafa komið sprengjunni fyrir skammt frá Stjórnarr...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 17:35

Búist við hríðarveðri seint í kvöld

Það hvessir af suðri seint í köld og hlýnar heldur. Á hæstu fjallvegum um landið vestanve...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 15:39

Fimm sagt sig af lista Kópavogsbúa vegna óánægju

Fimm hafa sagt sig úr Y-lista Kópavogsbúa eftir að Rannveig Ásgeirsdóttir myndaði meirihlu...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 16:13

Útigangsmenn hrelldu börn á Klambratúni

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk tilkynningu um að útigangsmenn hefði verið ofstopafull...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 16:06

Ætlaði að slökkva á brunaboðanum en ræsti innbrotsboðann í staðinn

Hann var óheppinn iðnaðarmaðurinn sem var að störfum á Kleppsspítala í morgun. Lögreglu bá...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 15:02

Skyndihjálparmaður Íslands bjargaði dóttur sinni

Rauði kross Íslands hefur valið Gísla Örn Gíslason sem skyndihjálparmann ársins 2011 fyrir...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 12:28

Játning í sprengjumálinu

Karlmaður á áttræðisaldri hefur játað að hafa komið sprengju fyrir skammt frá Stjórnarráði...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 10:45

Braust inn til manns á áttræðisaldri og misþyrmdi hrottalega

Rúmlega sjötugur karlmaður liggur þungt haldinn á sjúkrahúsinu á Akureyri eftir alvarlega ...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 13:30

Aukin þyngd sjúklinga hækkar kostnað vegna lyfja

Aukin þyngd sjúklinga hefur hækkað kostnað Landspítalans vegna lyfja síðustu misseri. Muna...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 09:29

Karlmaður stunginn og svo færður í fangageymslu

Karlmaður var stunginn í nótt í Hafnarfirði og handtók lögreglan fjóra menn vegna málsins....  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 12:09

Ákvörðun um gæsluvarðhald tekin í dag

Lögreglan tekur ákvörðun um það síðar í dag hvort að krafist verði gæsluvarðahalds yfir ka...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 11:47

112-dagurinn haldinn í dag - vélmenni og sprengjubíll í Smáralindinni

112-dagurinn verður haldinn um allt land í dag. Markmið dagsins er að kynna neyðarnúmerið ...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 09:56

Færð og aðstæður: Hálka víða á Suðurlandi

Hálkublettir eru á Hellisheiði og Þrengslum en snjóþekja á Lyngdalsheiði, en hálkublettir ...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 09:45

Fíkniefnasali á Menntavegi og grillaðir unglingar í Gvendargeisla

Lögreglan hafði afskipti af fjórum unglingum við Gvendargeisla um klukkan hálf tólf í gærk...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 09:00

Bíða Alþingis og fresta innheimtu

Kristbjörg Stephensen borgarlögmaður segir í minnisblaði til borgarráðs að borgin verði að...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 08:30

Óttast að verðmætar minjar endi í bræðslu

Safnaráð tók skeiðar og skart úr silfri af breskum kaupmanni sem hugðist fara með góssið ú...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 08:00

Eftirlitsstofnun vill kröfur í lög fyrir marslok

Íslensk stjórnvöld telja að nýtt frumvarp um starfsemi Ríkisútvarpsins ohf. (RÚV) muni inn...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 07:00

Frumvarp um barnalög gamaldags

Anja Cordes, lögfræðingur á sviði fjölskylduréttar í Danmörku, segir í viðtali við Fréttab...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Fréttir eftir mánuði

Þú ert hér: Forsíða / Fréttir / Innlent / Níu mánaða borgi sig inn á Latabæjarhátíð