Óvissuferð

Fréttablaðið Fastir pennar 11. mars 2010 06:00
Óli Kristján Ármannsson.
Óli Kristján Ármannsson.
Óli Kristján Ármannsson skrifar:
Átök verða styrkist krónan ekki um fjórðung til fimmtung. Þetta voru skilaboð Alþýðusambandsins þegar nýverið var kynnt fremur dökk hagspá. Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, sagði að stjórnvöld og Seðlabanki þyrftu að skilja að án slíkrar styrkingar yrðu horfur á atvinnumarkaði ekki bjartar.

Seðlabankinn hefur spáð veikri krónu í höftum um næstu framtíð og því virðist fremur stefna í átök. Meðan óvissa er enn um afdrif Icesave-samninga stjórnvalda við Breta og Hollendinga stendur efnahagsáætlun stjórnvalda og AGS í stað og gjaldeyrishöftum verður viðhaldið. Kostnaðinn bera almenningur og fyrirtæki landsins. Og þótt menn kunni að fagna veikri stöðu krónunnar í sjávarútvegi og öðrum útflutningsiðnaði þá bera aðrir skarðan hlut frá borði.

Samdóma álit flestra virðist þó að krónan sé of veik og langt frá jafnvægisgildi. Skiptar skoðanir um kjörstöðu krónunnar sýna hins vegar í hnotskurn mikilvægi þess að vita hvert er stefnt, en áköll um endurskoðun peningastefnunnar hafa enn sem komið er lítinn ávöxt borið. Vert er að rifja upp að margir hafa orðið til þess að benda á krónuna sem orsakavald efnahagssveiflna í hagkerfinu fremur en tæki til að bregðast við þeim. Má þar nefna rannsókn Þórarins G. Péturssonar, nú aðalhagfræðings Seðlabankans, og breska hagfræðingsins Francis Breedon í árslok 2004.

Á þessu var einnig haft orð í niðurstöðum nefndar forsætisráðherra um alþjóðlega fjármálastarfsemi á Íslandi í október 2006. Þar var „efnahagslegur óstöðugleiki vegna sveiflna í gengi íslensku krónunnar" nefndur sem ein þeirra ógna sem grófu undan möguleikum þess að koma hér upp alþjóðlegri fjármálamiðstöð.

Kannski er skýrslan um Ísland sem alþjóðlega fjármálamiðstöð samt ekki gott dæmi, svona í ljósi þess hvernig fyrir íslenskum fjármálafyrirtækjum er komið. Hefðu þau átt að eiga von um að halda lífi í lausafjárkreppunni sem lagðist á alþjóðlega fjármálamarkaði þá hefði sú leiðarlýsing líkast til þurft að hafa verið komin fram fyrir löngu og búið að fara eftir þeim tilmælum sem í henni voru. Og er þá ekki litið til þess vanda sem í því var falinn að hverfa frá faglegu einkavæðingarferli og handvelja eigendur að Búnaðarbankanum og Landsbankanum.

Hafi reynslan eitthvað kennt okkur ætti það að vera að það borgar sig að vanda til áætlanagerðar og reyna svo að halda kúrsinum. Núna virðist sem velkst sé um í stormi án þess að stefnan sé skýr. Framtíðarskipan peningamála er þó lykilatriði í endurreisn efnahagslífsins.
Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra hafði á nýafstöðnu Iðnþingi orð á mikilvægi góðra áætlana. Hún benti með réttu á að í nýrri skýrslu framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins vegna aðildarumsóknar Íslands væri að finna ábendingar um úrbætur sem vinna ætti að, hvort sem til aðildar kæmi eður ei. „Skortur á heildarstefnu hefur oft komið okkur í koll og er vafalítið helsti Akkilesarhæll okkar þjóðfélags. Hugsanlega hefði okkur gengið betur að hemja útrás íslenskra fjármálafyrirtækja, sem endaði með ósköpum, ef við hefðum fylgt skýrari stefnu með geirnegldum heildarmarkmiðum," sagði hún.







Fleiri fréttir - Fastir pennar

Fastir pennar 11. feb. 2012 06:00

Panikk í pólitík

Niðurstöður skoðanakönnunar Fréttablaðsins og Stöðvar 2 um fylgi flokkanna, sem birtust í ...  

Meira
Fastir pennar 11. feb. 2012 06:00

Ríkisvæðing er mesta hættan

Ögmundi Jónassyni tókst með haldbærum rökum í Kastljóssþætti í vikunni að sýna fram á yfir...  

Meira
Fastir pennar 10. feb. 2012 06:00

Fleiri kostir í samgöngum

Fáar þjóðir eiga fleiri eða aflmeiri bíla miðað við fólksfjölda en Íslendingar. Það á sér ...  

Meira
Fastir pennar 10. feb. 2012 06:00

Ást á stórum byggingum

Einhverjum gæti þótt mikil eftirsjá að öllu fénu sem fer í sundlaugar hér og þar um landið...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 19:00

Tvíkynhneigð kærasta vill tilbreytingu

Öll erum við með okkar hugmyndir um kynlíf. Hugmyndunum fylgja oft vandamál sem kynfræðing...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 06:00

Samstaða um gamlar hugmyndir

Nýja stjórnmálaaflið Samstaða, undir forystu Lilju Mósesdóttur alþingismanns, gefur sig út...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 06:00

Frá trú til skynsemi

Það er undur stutt síðan málið sýndist afgreitt. Þetta með markaðina og ríkið. Markaðir vi...  

Meira
Fastir pennar 08. feb. 2012 06:00

Sameiginleg skylda

Algjör breyting hefur orðið í forsjármálum barna á 20 árum. Árið 1992 varð fyrst möguleiki...  

Meira
Fastir pennar 08. feb. 2012 14:00

Lífeyrissjóðirnir plataðir

Forsvarsmenn lífeyrissjóða keppast nú um að túlka niðurstöðu nefndar sem gerði úttekt á st...  

Meira
Fastir pennar 07. feb. 2012 06:00

Um börnin og refsilöggjöfina – dómur Hæstaréttar

Lög eiga að tryggja sanngjarna málsmeðferð, réttlæti í samskiptum fólks og velferð. Börn s...  

Meira
Fastir pennar 07. feb. 2012 06:00

Hinar orkulindirnar

Þriðjungur þingheims, þingmenn úr öllum flokkum undir forystu Skúla Helgasonar, hefur lagt...  

Meira
Fastir pennar 06. feb. 2012 08:00

Tapað af fagmennsku

Ný skýrsla um lífeyrissjóðina hefur leitt í ljós að á tveimur árum kringum bankahrunið tók...  

Meira
Fastir pennar 06. feb. 2012 06:00

Huga þarf að færum leiðum

Skuldavandi heimila á að stórum hluta rót sína í því furðulega kerfi sem landsmenn hafa hé...  

Meira
Fastir pennar 04. feb. 2012 06:00

Peningar annarra

Skýrsla sjálfstæðrar úttektarnefndar um starfsemi lífeyrissjóðanna inniheldur harða gagnrý...  

Meira
Fastir pennar 04. feb. 2012 06:00

Fóstbræðralag

Kópavogur hefur dregið að sér nokkra athygli vegna viðræðna um myndun nýs meirihluta í bæj...  

Meira
Fastir pennar 03. feb. 2012 06:00

Viðbúin nýjum hættum

Sprengjan sem sprakk fyrir framan skrifstofur ríkissaksóknara, í næsta nágrenni við Stjórn...  

Meira
Fastir pennar 03. feb. 2012 06:00

Ætlað samþykki

Nokkrir þingmenn vilja breyta lögum á þann hátt að líffæri verði tekin úr látnum mönnum ne...  

Meira
Fastir pennar 02. feb. 2012 06:00

Tómir kofar

Stutt en áhugaverð umræða fór fram um EES-samninginn á Alþingi fyrr í vikunni. Tilefnið va...  

Meira
Fastir pennar 02. feb. 2012 06:00

Vöggugjöf

Kynjamunur á námsárangri í Reykjavík er fyrst og fremst í íslensku. Munurinn kemur afdrátt...  

Meira
Fastir pennar 01. feb. 2012 06:00

Greiðari leið til lífgjafar eftir andlát

Allmörg nýru úr lifandi gjöfum eru grædd í Íslendinga ár hvert. Vegna þessarar gjafmildi á...  

Meira
Fastir pennar 31. jan. 2012 06:00

Óklárað uppgjör

Þingmenn úr að minnsta kosti þremur flokkum, auk óháðra, munu í vikunni leggja fram á Alþi...  

Meira
Fastir pennar 30. jan. 2012 08:00

Ögmundur og íhaldið

Sagnfræðingar tala um að stéttastjórnmál hafi leyst sjálfstæðisstjórnmál af hólmi árið 191...  

Meira
Fastir pennar 30. jan. 2012 06:00

Kostnaður krónu

Samkeppniseftirlitið birti í síðustu viku skýrslu sína um verðþróun og samkeppni á dagvöru...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Atvinna
  • Serblad
  • Serblad
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Fastir pennar / Óvissuferð