Í minningu Valtýs

Fréttablađiđ Fastir pennar 11. mars 2010 06:00
Í minningu Valtýs
Ţorvaldur Gylfason skrifar:
Tveir stjórnmálamenn áttu mestan þátt í að ryðja Íslandi braut inn í nútímann, og fór þó hvorugur þeirra með framkvæmdarvald. Báðir sátu þeir lengi á Alþingi, en þingið var samt ekki helzti vettvangur þeirra, heldur tímaritin, sem þeir ritstýrðu, enda bjuggu þeir báðir í Kaupmannahöfn. Annar brýndi Íslendinga til dáða í Nýjum félagsritum, það var Jón Sigurðsson. Hinn beitti fyrir sig Eimreiðinni í sama skyni og fjallaði þar einnig um bókmenntir, listir, tækni og vísindi. Það var dr. Valtýr Guðmundsson, sem fæddist á þessum degi fyrir 150 árum og andaðist 1928.

Segja má, að Valtý hafi að ýmsu leyti orðið betur ágengt en Jóni forseta, en Jón hafði undirbúið jarðveginn. Jóni tókst að leggja grunninn að frjálsum viðskiptum við útlönd 1855 með því að sannfæra hikandi fylgismenn sína um kosti frjálsra viðskipta, en hann gat þó ekki hróflað við þrúgandi viðskiptahömlum innan lands og vistarbandinu. Árangurinn af þrotlausu starfi Jóns birtist smám saman í upplýstara viðhorfi lesenda hans og fylgismanna til ýmissa framfaramála, sem komust í höfn eftir daga Jóns. Framlag hans fólst í að stappa stálinu í landsmenn og plægja og sá í jarðveginn fyrir framtíðina. Þetta hlutverk rækti Jón forseti með glæstum brag.


Upphafsmađur heimastjórnarinnar
Valtýr tók við kyndlinum af Jóni og náði skjótum árangri. Þegar Valtýr tók sæti á Alþingi 1894 og hóf síðan útgáfu Eimreiðarinnar, hafði sjálfstæðisbaráttan hjakkað árum saman í hjólförum ófrjós og innantóms þrefs um stjórnskipuleg formsatriði. Valtýr einsetti sér að finna nýjan flöt á sjálfstæðismálinu með því að móta raunhæfar kröfur á hendur dönsku stjórninni í stað þeirra einstrengingslegu ályktana og frumvarpa, sem Alþingi hafði sent frá sér árin á undan og danska stjórnin hafði jafnharðan hafnað. Málamiðlun Valtýs fólst í að slá af ströngustu kröfum um stjórnskipuleg formsatriði til að rjúfa kyrrstöðuna í efnahagslífi landsins. Þetta var kjarni Valtýskunnar, sem meiri hluti Alþingis gerði að sinni stefnu 1901 eftir sex ára þóf.

Eimreiðin seldist í 1500 eintökum á móti 400 eintökum Nýrra félagsrita á tímum Jóns forseta. Valtýr fylkti um sig frjálslyndum menntamönnum innan þings og utan. Barátta hans hratt af stað þeirri atburðarás, sem endaði með heimastjórn 1904. Hannes Hafstein átti lítinn hlut að því máli, þótt hann veldist til ráðherradóms, þegar til átti að taka. Valtý grunaði, að Magnús Stephensen landshöfðingi og menn hans hefðu tekið Hannes fram yfir sig meðal annars vegna þess, að þeir töldu Hannes mundu verða þeim auðsveipan á ráðherrastóli.

Hannes Hafstein rækti ráðherradóminn vel. Þó var það Valtýr, sem lagði grunninn að báðum höfuðmálum Hannesar í fyrri stjórnartíð hans 1904-1909, símamálinu og bankamálinu. Símamálið snerist um að leggja síma til landsins frekar en að taka upp loftskeytasamband við útlönd og láta símann nema land á Austfjörðum og teygja sig þaðan til Reykjavíkur frekar en að taka símann á land í Reykjavík og láta þá landsbyggðina ef til vill þurfa að bíða. Valtýr lagði samningana um símann upp í hendur Hannesar og einnig bankamálið, sem snerist um að laða hingað heim erlent starfsfé til að stofna Íslandsbanka til að keppa við Landsbankann, en honum stýrði Tryggvi Gunnarsson, móðurbróður Hannesar og náinn samherji landshöfðingja, og þótti íhaldssamur og hlutdrægur í lánveitingum. Tryggvi, Magnús og Hannes voru ,,afturhaldslið" í augum Valtýinga. Hannes skipaði sér í sveit með andstæðingum Valtýs á Alþingi, þar á meðal voru konungkjörnir þingmenn, sem drógu taum dönsku stjórnarinnar í sjálfstæðisdeilunni. Íhaldið, sem Valtýr barðist gegn, minnir um sumt á þá, sem mestum skaða hafa valdið að undanförnu með því að hjakka í sömu hjólförum eftir hrun í von um eigin ábata.


Sundrung og siđferđi

Valtýr var sískrifandi líkt og Jón forseti. Hann skrifaði móður sinni 1896: "Þeir sem nú um undanfarin ár (síðan Jón Sigurðsson dó) hafa verið foringjar í íslenzkri pólitík hafa anað áfram í blindni, jafnt út í fen og foræði sem annað, og þá er ekki von að vel fari." Hann skrifaði stjúpa sínum 1910 og 1911: "Sundrungin og eigingirni einstaklinganna er svo mikil, að þjóðinni er stórhætta af búin. … Hið andlega siðferði þjóðarinnar er spillt og lamað, þjóðarsálin sjúk. … Og einmitt þess vegna blöskrar mér svo barnaskapurinn í pólitíkinni heima, auk allrar spillingarinnar, varmennskunnar og fjárgræðginnar."

Ævisaga Valtýs eftir Jón Þ. Þór sagnfræðing er nú aftur komin út, í kilju, fín bók, mæli með henni.


Fleiri fréttir - Fastir pennar

Fastir pennar 11. feb. 2012 06:00

Panikk í pólitík

Niđurstöđur skođanakönnunar Fréttablađsins og Stöđvar 2 um fylgi flokkanna, sem birtust í ...  

Meira
Fastir pennar 11. feb. 2012 06:00

Ríkisvćđing er mesta hćttan

Ögmundi Jónassyni tókst međ haldbćrum rökum í Kastljóssţćtti í vikunni ađ sýna fram á yfir...  

Meira
Fastir pennar 10. feb. 2012 06:00

Fleiri kostir í samgöngum

Fáar ţjóđir eiga fleiri eđa aflmeiri bíla miđađ viđ fólksfjölda en Íslendingar. Ţađ á sér ...  

Meira
Fastir pennar 10. feb. 2012 06:00

Ást á stórum byggingum

Einhverjum gćti ţótt mikil eftirsjá ađ öllu fénu sem fer í sundlaugar hér og ţar um landiđ...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 19:00

Tvíkynhneigđ kćrasta vill tilbreytingu

Öll erum viđ međ okkar hugmyndir um kynlíf. Hugmyndunum fylgja oft vandamál sem kynfrćđing...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 06:00

Samstađa um gamlar hugmyndir

Nýja stjórnmálaafliđ Samstađa, undir forystu Lilju Mósesdóttur alţingismanns, gefur sig út...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 06:00

Frá trú til skynsemi

Ţađ er undur stutt síđan máliđ sýndist afgreitt. Ţetta međ markađina og ríkiđ. Markađir vi...  

Meira
Fastir pennar 08. feb. 2012 06:00

Sameiginleg skylda

Algjör breyting hefur orđiđ í forsjármálum barna á 20 árum. Áriđ 1992 varđ fyrst möguleiki...  

Meira
Fastir pennar 08. feb. 2012 14:00

Lífeyrissjóđirnir platađir

Forsvarsmenn lífeyrissjóđa keppast nú um ađ túlka niđurstöđu nefndar sem gerđi úttekt á st...  

Meira
Fastir pennar 07. feb. 2012 06:00

Um börnin og refsilöggjöfina – dómur Hćstaréttar

Lög eiga ađ tryggja sanngjarna málsmeđferđ, réttlćti í samskiptum fólks og velferđ. Börn s...  

Meira
Fastir pennar 07. feb. 2012 06:00

Hinar orkulindirnar

Ţriđjungur ţingheims, ţingmenn úr öllum flokkum undir forystu Skúla Helgasonar, hefur lagt...  

Meira
Fastir pennar 06. feb. 2012 08:00

Tapađ af fagmennsku

Ný skýrsla um lífeyrissjóđina hefur leitt í ljós ađ á tveimur árum kringum bankahruniđ tók...  

Meira
Fastir pennar 06. feb. 2012 06:00

Huga ţarf ađ fćrum leiđum

Skuldavandi heimila á ađ stórum hluta rót sína í ţví furđulega kerfi sem landsmenn hafa hé...  

Meira
Fastir pennar 04. feb. 2012 06:00

Peningar annarra

Skýrsla sjálfstćđrar úttektarnefndar um starfsemi lífeyrissjóđanna inniheldur harđa gagnrý...  

Meira
Fastir pennar 04. feb. 2012 06:00

Fóstbrćđralag

Kópavogur hefur dregiđ ađ sér nokkra athygli vegna viđrćđna um myndun nýs meirihluta í bćj...  

Meira
Fastir pennar 03. feb. 2012 06:00

Viđbúin nýjum hćttum

Sprengjan sem sprakk fyrir framan skrifstofur ríkissaksóknara, í nćsta nágrenni viđ Stjórn...  

Meira
Fastir pennar 03. feb. 2012 06:00

Ćtlađ samţykki

Nokkrir ţingmenn vilja breyta lögum á ţann hátt ađ líffćri verđi tekin úr látnum mönnum ne...  

Meira
Fastir pennar 02. feb. 2012 06:00

Tómir kofar

Stutt en áhugaverđ umrćđa fór fram um EES-samninginn á Alţingi fyrr í vikunni. Tilefniđ va...  

Meira
Fastir pennar 02. feb. 2012 06:00

Vöggugjöf

Kynjamunur á námsárangri í Reykjavík er fyrst og fremst í íslensku. Munurinn kemur afdrátt...  

Meira
Fastir pennar 01. feb. 2012 06:00

Greiđari leiđ til lífgjafar eftir andlát

Allmörg nýru úr lifandi gjöfum eru grćdd í Íslendinga ár hvert. Vegna ţessarar gjafmildi á...  

Meira
Fastir pennar 31. jan. 2012 06:00

Óklárađ uppgjör

Ţingmenn úr ađ minnsta kosti ţremur flokkum, auk óháđra, munu í vikunni leggja fram á Alţi...  

Meira

Mest lesiđ: Umrćđan

Nýjast á Vísi

Fréttablađiđ

  • Forsíđa Fréttablađsins
  • Atvinna
  • Serblad
  • Serblad
  • Allt

Stöđ2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veđurfréttir
Ţú ert hér: Forsíđa / Umrćđan / Fastir pennar / Hafliđi Helgason / Í minningu Valtýs