Christian Horner, framkvæmdarstjóri Red Bull segir að hörkuslagur verði ummeistaratitilinn í Formúlu 1.
Red Bull er meðal fjögurra liða sem spáð er meistaratititli í Formúlu 1 á
þessu ári. Hin eru Ferrari, McLaren og Mercedes.
"Okkar rannsóknir sýna að það eru þrjú lið nærri hvort öðru og spurning
hvaða lið hittir á góðan dag hverju sinni. En það hafa ekki allir sýnt
sitt besta enn sem komið er", sagði Horner.
"Mér sýnist Mercedes rokka meira en önnur lið, og því er erfiðara að meta
þeirra stöðu, en Schumacher virðist á réttri leið. Hann hefur ekkert gefið
eftir og við munum sjá hann berjast um stöðu. Hann mun keppa við Alonso,
Button, Vettel, Hamilton og Vettel. Það verður risaslagur á árinu", sagði
Horner.