Slysavarnafélagið Landsbjörg fékk Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins

Vísir Innlent 11. mars 2010 18:07
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, veitti Samfélagsverðlaunin. Mynd/ GVA.
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, veitti Samfélagsverðlaunin. Mynd/ GVA.
Slysavarnafélagið Landsbjörg hlaut Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins í ár. Þau voru afhent við hátíðlega athöfn í Þjóðmenningarhúsinu í dag. Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, afhenti verðlaunin. Þetta er í fimmta sinn sem Fréttablaðið veitir Samfélagsverðlaunin en þau eru veitt í fjórum flokkum auk heiðursverðlauna.



Slysavarnafélagið Landsbjörg eru landssamtök björgunarsveita og slysavarnadeilda á Íslandi. Starfsemin miðar að því að koma í veg fyrir slys og bjarga mannslífum og verðmætum. Í þeim tilgangi er öflugur hópur sjálfboðaliða til taks ef út af bregður, á nóttu sem degi, allt árið um kring. Slysavarnafélagið Landsbjörg hlýtur verðlaunin fyrir óeigingjarnt björgunarstarf sem byggir á framlagi sjálfboðaliða og fer fram bæði hér heima og erlendis.

Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, afhenti fulltrúum Slysavarnafélagsins Landsbjargar verðlaunin. Ari Edwald, forstjóri 365, afhenti þeim síðan verðlaunafé að upphæð ein milljón króna.

Aðrir sem voru útnefndir til Samfélagsverðlaunanna:

Bergmál

Hjálparstarf kirkjunnar

Kvenfélagasamband Íslands

Vímulaus æska

Til Samfélagsverðlaunanna koma til greina félagasamtök sem hafa unnið framúrskarandi mannúðar- eða náttúruverndarstarf; samtök sem hafa með starfi sínu lagt sitt af mörkum til að gera samfélagið betra fyrir okkur öll.








Hvunndagshetja

Hvunndagshetja ársins 2008 er André Bachmann. André er mikill gleðigjafi og hefur gengist fyrir jólaskemmtunum fyrir fatlaða og fær verðlaun fyrir þá þrautseigju að viðhalda verkefninu í hátt á þriðja áratug.

Aðrir sem voru tilnefndir í þessum flokki:

Embla Ágústsdóttir

Jakob Einar Jakobsson

Jóna Berta Jónsdóttir

Lovísa Christiansen

Verðlaunin eru veitt einstaklingi sem hefur sýnt einstaka óeigingirni eða hugrekki annaðhvort við vinnu að ákveðnum málaflokki eða í tengslum við einn atburð.






Frá kynslóð til kynslóðar

Verðlaun í þessum flokki fær Gauraflokkurinn í Vatnaskógi fyrir frumkvæði og óeigingjarnt starf við að bjóða drengjum með ADHD upp á sumarbúðadvöl.

Aðrir tilnefndir í þessum flokki:

Hallfríður Ólafsdóttir

Laila Margrét Arnþórsdóttir

Rauði kross Íslands og Öldrunarráð

Tónstofa Valgerðar

Í þessum flokki koma allir þeir til greina sem hafa unnið eftirtektarvert starf í þágu menntunar, uppfræðslu eða umönnunar þeirrar kynslóðar sem er að vaxa úr grasi, jafnt einstaklingar sem samtök eða stofnanir.





Til atlögu gegn fordómum
Hugarafl hlýtur verðlaunin í þessum flokki fyrir fyrir að vinna að bótum á geðheilbrigðiskerfinu með fræðslustarfi og notendasýn að leiðarljósi.

Aðrir tilnefndir:

Adrenalín gegn rasisma

Kristín Vilhjálmsdóttir/Borgarbókasafn

Páll Óskar Hjálmtýsson

Þórdís Elva Þorvaldsdóttir

Verðlaun í þessum flokki eru veitt einstaklingi eða félagasamtökum sem hafa unnið ötullega að því að eyða fordómum í samfélaginu.





Heiðursverðlaun

Heiðursverðlaun Samfélagsverðlauna Fréttablaðsins hlýtur Jón Böðvarsson fyrir að miðla Íslendingasögunum til þúsunda Íslendinga, bæði sem framhaldsskólakennari og síðar á fjölsóttum námskeiðum í Endurmenntun Háskólans. Hæfileiki Jóns til að miðla er einstakur og óhætt er að segja að sagnaheimurinn spretti lifandi fram í meðförum Jóns.


Fleiri fréttir - Innlent

Innlent 12. feb. 2012 10:45

Huglausa ljónið féll niður hlera í miðri sýningu

"Samkvæmt öllum myndum og rannsóknum ætti hann að sleppa ótrúlega vel,“ segir leikar...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 10:53

Beit lögregluþjón

Karlmaður beit lögregluþjón til blóðs í morgun. Maðurinn var stöðaður á Laugaveginum rétt ...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 09:44

Lýst eftir Birnu Dögg

Lögreglan lýsir eftir Birnu Dögg Gunnarsdóttur til heimilis að Heiðarhvammi 7, Reykjanesbæ...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 09:32

Settist upp í lögreglubíl og braut bílrúðu

Ölvaður og æstur maður var handtekinn við krá í Hafnarfirði eftir að hann braut rúðu í lög...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 10:19

Opið í Böggvistaðafjalli og í Oddsskarði

Lokað er í Bláfjöllum í dag vegna veðurs en þar er bæði hvasst og Blautt. Sömu sögu er að ...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 22:32

Mundu eftir mér sigraði í Evróvisjón

Það var lagið Mundu eftir mér sem sigraði í Evróvisjón í kvöld. Það var Greta Salóme Stefá...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 20:00

Rokkarar heimtuðu hættulegt rauðvín

Nokkrir aðdáendur hljómsveitarinnar Motörhead mótmæltu ákvörðun vínbúðarinnar um að leyfa ...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 19:30

Fórnarlambið á Þórshöfn með mikla höfuðáverka

Rúmlega sjötugur karlmaður liggur þungt haldinn á gjörgæsludeild sjúkrahússins á Akureyri ...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 18:30

Óvíst hvaða lög sprengjumaðurinn braut

Karlmaður á áttræðisaldri hefur játað að hafa komið sprengjunni fyrir skammt frá Stjórnarr...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 17:35

Búist við hríðarveðri seint í kvöld

Það hvessir af suðri seint í köld og hlýnar heldur. Á hæstu fjallvegum um landið vestanve...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 15:39

Fimm sagt sig af lista Kópavogsbúa vegna óánægju

Fimm hafa sagt sig úr Y-lista Kópavogsbúa eftir að Rannveig Ásgeirsdóttir myndaði meirihlu...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 16:13

Útigangsmenn hrelldu börn á Klambratúni

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk tilkynningu um að útigangsmenn hefði verið ofstopafull...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 16:06

Ætlaði að slökkva á brunaboðanum en ræsti innbrotsboðann í staðinn

Hann var óheppinn iðnaðarmaðurinn sem var að störfum á Kleppsspítala í morgun. Lögreglu bá...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 15:02

Skyndihjálparmaður Íslands bjargaði dóttur sinni

Rauði kross Íslands hefur valið Gísla Örn Gíslason sem skyndihjálparmann ársins 2011 fyrir...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 12:28

Játning í sprengjumálinu

Karlmaður á áttræðisaldri hefur játað að hafa komið sprengju fyrir skammt frá Stjórnarráði...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 10:45

Braust inn til manns á áttræðisaldri og misþyrmdi hrottalega

Rúmlega sjötugur karlmaður liggur þungt haldinn á sjúkrahúsinu á Akureyri eftir alvarlega ...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 13:30

Aukin þyngd sjúklinga hækkar kostnað vegna lyfja

Aukin þyngd sjúklinga hefur hækkað kostnað Landspítalans vegna lyfja síðustu misseri. Muna...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 09:29

Karlmaður stunginn og svo færður í fangageymslu

Karlmaður var stunginn í nótt í Hafnarfirði og handtók lögreglan fjóra menn vegna málsins....  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 12:09

Ákvörðun um gæsluvarðhald tekin í dag

Lögreglan tekur ákvörðun um það síðar í dag hvort að krafist verði gæsluvarðahalds yfir ka...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 11:47

112-dagurinn haldinn í dag - vélmenni og sprengjubíll í Smáralindinni

112-dagurinn verður haldinn um allt land í dag. Markmið dagsins er að kynna neyðarnúmerið ...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 09:56

Færð og aðstæður: Hálka víða á Suðurlandi

Hálkublettir eru á Hellisheiði og Þrengslum en snjóþekja á Lyngdalsheiði, en hálkublettir ...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 09:45

Fíkniefnasali á Menntavegi og grillaðir unglingar í Gvendargeisla

Lögreglan hafði afskipti af fjórum unglingum við Gvendargeisla um klukkan hálf tólf í gærk...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 09:00

Bíða Alþingis og fresta innheimtu

Kristbjörg Stephensen borgarlögmaður segir í minnisblaði til borgarráðs að borgin verði að...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 08:30

Óttast að verðmætar minjar endi í bræðslu

Safnaráð tók skeiðar og skart úr silfri af breskum kaupmanni sem hugðist fara með góssið ú...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 08:00

Eftirlitsstofnun vill kröfur í lög fyrir marslok

Íslensk stjórnvöld telja að nýtt frumvarp um starfsemi Ríkisútvarpsins ohf. (RÚV) muni inn...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 07:00

Frumvarp um barnalög gamaldags

Anja Cordes, lögfræðingur á sviði fjölskylduréttar í Danmörku, segir í viðtali við Fréttab...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Fréttir eftir mánuði

Þú ert hér: Forsíða / Fréttir / Innlent / Slysavarnafélagið Landsbjörg fékk Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins