Dæmt fyrir mansal í fyrsta sinn

Fréttablaðið Fastir pennar 10. mars 2010 06:00
Steinunn Stefánsdóttir
Steinunn Stefánsdóttir
Steinunn Stefánsdóttir skrifar:
Daginn sem konur tileinkuðu 8. mars baráttu sinni fyrir jafnrétti kynjanna í hundraðasta sinn féll tímamótadómur í Héraðsdómi Reykjaness.
Í fyrsta sinn hér á landi hlutu menn dóma fyrir mansal þegar fimm Litháar fengu hver fimm ára dóm fyrir mansal. Þar með hefur verið staðfest í fyrsta sinn fyrir dómi á Íslandi að hér eigi sér stað mansal, tæpu ári eftir að ríkisstjórn Íslands samþykkti aðgerðaáætlun sína gegn mansali.

Mál stúlkunnar frá Litháen, sem var fórnarlamb hinna dæmdu, hefur vakið mikla athygli enda mátti í því sjá sterka samsvörun við kvikmynd sem margir hafa séð og hefur raunar einnig verið flutt á sviði hér á landi, Lilya4Ever. Birtingarmyndir mansals eru þó alls ekki allar á þennan veg.
Mansal er talið vera þriðja umfangsmesta glæpastarfsemi í heimi á eftir vopna- og fíkniefnasölu. Fórnarlömb mansals koma úr ýmsum áttum en algengast er að ánauðin felist í vændi eða annarri kynlífsþjónustu. Talið er að 70 til 80 prósent þolenda mansals séu í kynlífsiðnaðinum.

Ekki eru liðin nema átta ár frá því að íslensk stjórnvöld fjölluðu fyrst um mansal. Á þeim tíma hefur þungi mansals-umræðunnar aukist stöðugt um leið og vísbendingum hefur fjölgað um mansal á Íslandi. Þrátt fyrir það hefur sá hópur verið fyrirferðarmikill sem hefur viljað skella skollaeyrum við því að mansal sér hér fyrir hendi. Dómurinn í Héraðsdómi Reykjaness tekur vonandi af allan vafa um það þannig að ekki þurfi að eyða meiri tíma í að komast á sömu blaðsíðu um það hvort mansal sé fyrir hendi á Íslandi eða ekki.

Síðastliðið haust var kynnt skýrsla um umfang og eðli mansals á Íslandi. Fríða Rós Valdimarsdóttir vann skýrsluna fyrir Rauða kross Íslands í samstarfi við Rannsóknarstofu í kvenna- og kynjafræði. Í skýrslunni kom fram að mansalsmál á Íslandi á því þriggja ára tímabili sem rannsóknin tók til væru að lágmarki 59 talsins en gætu verið allt upp í 128.

Í skýrslunni voru líkur leiddar að því að sú staðreynd að ekki hafi verið komið upp vernd og öryggi fyrir fórnarlömb mansals hér á landi sé líkleg ástæða þess hversu fá slík mál hafi komið upp hér á landi. Dómurinn sem féll á mánudaginn, ásamt máli Catalinu Mikue Ncogo, sem nú er fyrir dómi, leiða vonandi til þess að skýra línur varðandi meðferð mála þar sem grunur leikur á að um mansal sé að ræða.

Þrátt fyrir að Hæstiréttur eigi enn eftir að fjalla um mansalsdóminn sem féll á mánudag ber að fagna honum sem umtalsverðum áfanga í baráttunni gegn mansali. Líklegt verður að teljast að dómurinn gefi konum sem hér eru ánauðugar í kynlífsþjónustu von um frelsi. Það eru tímamót.


Fleiri fréttir - Fastir pennar

Fastir pennar 11. feb. 2012 06:00

Panikk í pólitík

Niðurstöður skoðanakönnunar Fréttablaðsins og Stöðvar 2 um fylgi flokkanna, sem birtust í ...  

Meira
Fastir pennar 11. feb. 2012 06:00

Ríkisvæðing er mesta hættan

Ögmundi Jónassyni tókst með haldbærum rökum í Kastljóssþætti í vikunni að sýna fram á yfir...  

Meira
Fastir pennar 10. feb. 2012 06:00

Fleiri kostir í samgöngum

Fáar þjóðir eiga fleiri eða aflmeiri bíla miðað við fólksfjölda en Íslendingar. Það á sér ...  

Meira
Fastir pennar 10. feb. 2012 06:00

Ást á stórum byggingum

Einhverjum gæti þótt mikil eftirsjá að öllu fénu sem fer í sundlaugar hér og þar um landið...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 19:00

Tvíkynhneigð kærasta vill tilbreytingu

Öll erum við með okkar hugmyndir um kynlíf. Hugmyndunum fylgja oft vandamál sem kynfræðing...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 06:00

Samstaða um gamlar hugmyndir

Nýja stjórnmálaaflið Samstaða, undir forystu Lilju Mósesdóttur alþingismanns, gefur sig út...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 06:00

Frá trú til skynsemi

Það er undur stutt síðan málið sýndist afgreitt. Þetta með markaðina og ríkið. Markaðir vi...  

Meira
Fastir pennar 08. feb. 2012 06:00

Sameiginleg skylda

Algjör breyting hefur orðið í forsjármálum barna á 20 árum. Árið 1992 varð fyrst möguleiki...  

Meira
Fastir pennar 08. feb. 2012 14:00

Lífeyrissjóðirnir plataðir

Forsvarsmenn lífeyrissjóða keppast nú um að túlka niðurstöðu nefndar sem gerði úttekt á st...  

Meira
Fastir pennar 07. feb. 2012 06:00

Um börnin og refsilöggjöfina – dómur Hæstaréttar

Lög eiga að tryggja sanngjarna málsmeðferð, réttlæti í samskiptum fólks og velferð. Börn s...  

Meira
Fastir pennar 07. feb. 2012 06:00

Hinar orkulindirnar

Þriðjungur þingheims, þingmenn úr öllum flokkum undir forystu Skúla Helgasonar, hefur lagt...  

Meira
Fastir pennar 06. feb. 2012 08:00

Tapað af fagmennsku

Ný skýrsla um lífeyrissjóðina hefur leitt í ljós að á tveimur árum kringum bankahrunið tók...  

Meira
Fastir pennar 06. feb. 2012 06:00

Huga þarf að færum leiðum

Skuldavandi heimila á að stórum hluta rót sína í því furðulega kerfi sem landsmenn hafa hé...  

Meira
Fastir pennar 04. feb. 2012 06:00

Peningar annarra

Skýrsla sjálfstæðrar úttektarnefndar um starfsemi lífeyrissjóðanna inniheldur harða gagnrý...  

Meira
Fastir pennar 04. feb. 2012 06:00

Fóstbræðralag

Kópavogur hefur dregið að sér nokkra athygli vegna viðræðna um myndun nýs meirihluta í bæj...  

Meira
Fastir pennar 03. feb. 2012 06:00

Viðbúin nýjum hættum

Sprengjan sem sprakk fyrir framan skrifstofur ríkissaksóknara, í næsta nágrenni við Stjórn...  

Meira
Fastir pennar 03. feb. 2012 06:00

Ætlað samþykki

Nokkrir þingmenn vilja breyta lögum á þann hátt að líffæri verði tekin úr látnum mönnum ne...  

Meira
Fastir pennar 02. feb. 2012 06:00

Tómir kofar

Stutt en áhugaverð umræða fór fram um EES-samninginn á Alþingi fyrr í vikunni. Tilefnið va...  

Meira
Fastir pennar 02. feb. 2012 06:00

Vöggugjöf

Kynjamunur á námsárangri í Reykjavík er fyrst og fremst í íslensku. Munurinn kemur afdrátt...  

Meira
Fastir pennar 01. feb. 2012 06:00

Greiðari leið til lífgjafar eftir andlát

Allmörg nýru úr lifandi gjöfum eru grædd í Íslendinga ár hvert. Vegna þessarar gjafmildi á...  

Meira
Fastir pennar 31. jan. 2012 06:00

Óklárað uppgjör

Þingmenn úr að minnsta kosti þremur flokkum, auk óháðra, munu í vikunni leggja fram á Alþi...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Atvinna
  • Serblad
  • Serblad
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Fastir pennar / Dæmt fyrir mansal í fyrsta sinn