Cristiano Ronaldo: Ætlum að sýna þeim að við erum Real Madrid

Vísir Meistaradeildin 10. mars 2010 09:30
Portúgalinn Cristiano Ronaldo.
Portúgalinn Cristiano Ronaldo. Mynd/AFP
Óskar Ófeigur Jónsson skrifar:
Portúgalinn Cristiano Ronaldo er sigurviss fyrir seinni leik Real Madrid og franska liðsins Lyon í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar en leikurinn fer fram á heimavelli Real Madrid í kvöld. Lyon vann fyrri leikinn 1-0 í Frakklandi.

„Real Madrid ræður ríkjum á Bernabéu. Það væri gríðarleg vonbrigði ef við dettum úr keppni en ég er viss um aðvið komumst áfram. Við ætlum að sýna þeim að við erum Real Madrid," sagði Ronaldo.

„Við verðum að fara út á völl með það að markmiði að skora fullt af mörkum og sækja eins mikið og við getum. Pellegrini þjálfari ræður síðan hversu sókndjarfir við verðum," sagði Ronaldo sem hefur komist alla leið í úrslitaleikinn síðustu tvö ár en þá var hann með Manchester United.

Það er mikil pressa á Real madrid því liðið hefur dottið út úr sextán liða úrslitunum fimm ár í röð en nú er enn meira undir því sjálfur úrslitaleikurinn verður spilaður á Bernabéu í maí.



Fleiri fréttir - Meistaradeildin

Meistaradeildin 03. feb. 2012 23:45

Slasaðist við tannburstun og missir af leik gegn Barcelona

Knattspyrnumenn missa stundum af mikilvægum leikjum eða heilum stórmótum í knattspyrnu af ...  

Meira
Meistaradeildin 03. feb. 2012 20:30

Ancelotti: Real og Barca eru langsigurstranglegust í Meistaradeildinni

Carlo Ancelotti, stjóri Paris Saint-Germain, er sannfærður um að Meistaradeildarbikarinn s...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Nýjast á Vísi

Fréttir eftir mánuði

Þú ert hér: Forsíða / Sport / Fótbolti / Meistaradeildin / / Cristiano Ronaldo: Ætlum að sýna þeim að við erum Real Madrid