Brá þegar ferlíkið birtist úr djúpinu

Fréttablaðið Innlent 10. mars 2010 05:00
Stemning myndaðist niðri við höfn þegar hákarlinum var landað, eða honum slefað á land, enda hafði ekki verið nokkur leið að koma honum um borð í bátinn vegna stærðarinnar. Mynd/Róbert Schmidt
Stemning myndaðist niðri við höfn þegar hákarlinum var landað, eða honum slefað á land, enda hafði ekki verið nokkur leið að koma honum um borð í bátinn vegna stærðarinnar. Mynd/Róbert Schmidt
Línubáturinn Lukka ÍS 357 frá Suðureyri kom með heldur óvenjulegan afla að landi á mánudag, 680 kílóa þungan hákarl sem var tæpir fimm metrar á lengd og rúmir tveir metrar að ummáli. Stærstir verða hákarlar sjö metra langir og um tonn að þyngd. Báturinn er 60 tonna, ellefu metrar að lengd. Hákarlinn slagaði því vel upp í hálfa bátslengdina.

Hákarlinn hafði flækt sig í línuna hjá Sigurði Oddssyni sem gerir út Lukku ÍS í Nesdýpi og var með lífsmarki þegar að var komið. Sigurður, sem er einn í áhöfn, segist hafa brugðið á það ráð að koma tóg í sporðinn á hákarlinum og kveður hann hafa drepist fljótt þegar hann var dreginn aftur á bak.

„En jú, manni bregður aðeins við að sjá þetta koma upp úr djúpinu," viðurkennir Sigurður. Hann segist hins vegar hafa áttað sig á því um leið hvers kyns var því í janúar kom það líka fyrir að hákarl flækti sig í línunni hjá honum. „Sá var reyndar helmingi minni, en núna vissi maður að minnsta kosti hvernig best var að bera sig að."

Þótt Sigurður hafi nú í annað sinn á tiltölulega skömmum tíma veitt hákarl á línu segir hann fenginn óvenjulegan. „Í það minnsta eru þetta fyrstu tveir hákarlarnir sem ég fæ."

Sigurður segir búbót að fengnum þótt misjafnt sé hvað greitt sé fyrir hákarl. „Maður er að fá einhvern sextíukall fyrir kílóið, bara svona eins og hann kemur fyrir," segir hann ánægður með túrinn, en fyrir vestan gantast menn með að annar eins afli hafi þar tæpast fengist á einn línubala. „Ég var kominn með um 300 kíló á balann og þá kom hann í restina á balann, þannig að það er gott tonn á balann og ekkert oft sem það er."

Fyrstu fregnir af hákarlinum birtust á vefnum www.sudureyri.blog.is en þar kemur fram að hákarlinn verði skorinn og verkaður á næstu dögum og verði tilbúinn fyrir næsta þorrablót að ári. olikr@frettabladid.is

með fenginn Sigurður Oddsson skipstjóri stillir sér upp við hákarlinn. Mynd/Róbert Schmidt
með fenginn Sigurður Oddsson skipstjóri stillir sér upp við hákarlinn. Mynd/Róbert Schmidt

Fleiri fréttir - Innlent

Innlent 12. feb. 2012 17:26

Hundur fastur í neti - tækjabíll frá slökkviliðinu kallaður til

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var tilkynnt um hund sem væri fastur í netadræsum við Ægisg...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 13:51

Tæplega 80 þúsund atkvæði greidd í Eurovison

Alls voru greidd 79 þúsund atkvæði í Eurovision keppninni sem var sýnd á RÚV í gærkvöldi. ...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 10:53

Beit lögregluþjón

Karlmaður beit lögregluþjón til blóðs í morgun. Maðurinn var stöðaður á Laugaveginum rétt ...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 10:45

Huglausa ljónið féll niður hlera í miðri sýningu

"Samkvæmt öllum myndum og rannsóknum ætti hann að sleppa ótrúlega vel,“ segir leikar...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 10:19

Opið í Böggvistaðafjalli og í Oddsskarði

Lokað er í Bláfjöllum í dag vegna veðurs en þar er bæði hvasst og Blautt. Sömu sögu er að ...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 09:32

Settist upp í lögreglubíl og braut bílrúðu

Ölvaður og æstur maður var handtekinn við krá í Hafnarfirði eftir að hann braut rúðu í lög...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 22:32

Mundu eftir mér sigraði í Evróvisjón

Það var lagið Mundu eftir mér sem sigraði í Evróvisjón í kvöld. Það var Greta Salóme Stefá...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 20:00

Rokkarar heimtuðu hættulegt rauðvín

Nokkrir aðdáendur hljómsveitarinnar Motörhead mótmæltu ákvörðun vínbúðarinnar um að leyfa ...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 19:30

Fórnarlambið á Þórshöfn með mikla höfuðáverka

Rúmlega sjötugur karlmaður liggur þungt haldinn á gjörgæsludeild sjúkrahússins á Akureyri ...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 18:30

Óvíst hvaða lög sprengjumaðurinn braut

Karlmaður á áttræðisaldri hefur játað að hafa komið sprengjunni fyrir skammt frá Stjórnarr...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 17:35

Búist við hríðarveðri seint í kvöld

Það hvessir af suðri seint í köld og hlýnar heldur. Á hæstu fjallvegum um landið vestanve...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 15:39

Fimm sagt sig af lista Kópavogsbúa vegna óánægju

Fimm hafa sagt sig úr Y-lista Kópavogsbúa eftir að Rannveig Ásgeirsdóttir myndaði meirihlu...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 16:13

Útigangsmenn hrelldu börn á Klambratúni

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk tilkynningu um að útigangsmenn hefði verið ofstopafull...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 16:06

Ætlaði að slökkva á brunaboðanum en ræsti innbrotsboðann í staðinn

Hann var óheppinn iðnaðarmaðurinn sem var að störfum á Kleppsspítala í morgun. Lögreglu bá...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 15:02

Skyndihjálparmaður Íslands bjargaði dóttur sinni

Rauði kross Íslands hefur valið Gísla Örn Gíslason sem skyndihjálparmann ársins 2011 fyrir...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 12:28

Játning í sprengjumálinu

Karlmaður á áttræðisaldri hefur játað að hafa komið sprengju fyrir skammt frá Stjórnarráði...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 10:45

Braust inn til manns á áttræðisaldri og misþyrmdi hrottalega

Rúmlega sjötugur karlmaður liggur þungt haldinn á sjúkrahúsinu á Akureyri eftir alvarlega ...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 13:30

Aukin þyngd sjúklinga hækkar kostnað vegna lyfja

Aukin þyngd sjúklinga hefur hækkað kostnað Landspítalans vegna lyfja síðustu misseri. Muna...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 09:29

Karlmaður stunginn og svo færður í fangageymslu

Karlmaður var stunginn í nótt í Hafnarfirði og handtók lögreglan fjóra menn vegna málsins....  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 12:09

Ákvörðun um gæsluvarðhald tekin í dag

Lögreglan tekur ákvörðun um það síðar í dag hvort að krafist verði gæsluvarðahalds yfir ka...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 11:47

112-dagurinn haldinn í dag - vélmenni og sprengjubíll í Smáralindinni

112-dagurinn verður haldinn um allt land í dag. Markmið dagsins er að kynna neyðarnúmerið ...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 09:56

Færð og aðstæður: Hálka víða á Suðurlandi

Hálkublettir eru á Hellisheiði og Þrengslum en snjóþekja á Lyngdalsheiði, en hálkublettir ...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 09:45

Fíkniefnasali á Menntavegi og grillaðir unglingar í Gvendargeisla

Lögreglan hafði afskipti af fjórum unglingum við Gvendargeisla um klukkan hálf tólf í gærk...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 09:00

Bíða Alþingis og fresta innheimtu

Kristbjörg Stephensen borgarlögmaður segir í minnisblaði til borgarráðs að borgin verði að...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 08:30

Óttast að verðmætar minjar endi í bræðslu

Safnaráð tók skeiðar og skart úr silfri af breskum kaupmanni sem hugðist fara með góssið ú...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 08:00

Eftirlitsstofnun vill kröfur í lög fyrir marslok

Íslensk stjórnvöld telja að nýtt frumvarp um starfsemi Ríkisútvarpsins ohf. (RÚV) muni inn...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 07:00

Frumvarp um barnalög gamaldags

Anja Cordes, lögfræðingur á sviði fjölskylduréttar í Danmörku, segir í viðtali við Fréttab...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Fréttir eftir mánuði

Þú ert hér: Forsíða / Fréttir / Innlent / / Brá þegar ferlíkið birtist úr djúpinu