Krefjast meiri samhljóms í stjórninni

Fréttablađiđ Innlent 10. mars 2010 05:00
Vel fór á međ leiđtogum flokkanna eftir ađ ljóst var ađ minnihlutastjórnin hafđi hlotiđ meirihluta í kosningunum í vor. Ný ríkisstjórn var mynduđ, en síđan hefur gefiđ nokkuđ á bátinn. fréttablađiđ/stefán
Vel fór á međ leiđtogum flokkanna eftir ađ ljóst var ađ minnihlutastjórnin hafđi hlotiđ meirihluta í kosningunum í vor. Ný ríkisstjórn var mynduđ, en síđan hefur gefiđ nokkuđ á bátinn. fréttablađiđ/stefán
Það hrikti í stoðum stjórnarsamstarfsins í aðdraganda og eftirmála þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Stjórnarliðar eru þó sammála um að stjórnin hafi staðið hvellinn af sér. Samstaða gagnvart Icesave sé meiri og klárist það verði nýju lífi hleypt í ríkisstjórnina með nýju fólki og málum.

Óhætt er að segja að Icesave hafi verið ríkisstjórninni erfitt mál. Þegar stjórnin tók við í febrúar í fyrra erfði hún það mál, líkt og mörg fleiri. Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra leitaði til gamals félaga úr Alþýðubandalaginu, Svavars Gestssonar, til að fara fyrir nýrri samninganefnd. Í byrjun júní fóru að berast fregnir af því að samningar væru að nást og bjartsýni gætti í stjórnarliðinu. Erfitt mál yrði brátt leyst og hægt að snúa sér að öðru.

Sú bjartsýni breyttist fljótt þegar ljóst varð að ekki aðeins stjórnarandstaðan var hörð á móti samningnum, heldur einnig ýmsir stjórnarliðar.

ég er á leiđinni Allt bendir nú til ţess ađ Ögmundur Jónasson sé á leiđinni í ríkisstjórnina á ný.fréttablađiđ/arnţór
ég er á leiđinni Allt bendir nú til ţess ađ Ögmundur Jónasson sé á leiđinni í ríkisstjórnina á ný.fréttablađiđ/arnţór
Órólega deildin
Menn hafa keppst hver um annan þveran við að túlka niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar og þá staðreynd að hún yfirhöfuð var haldin á þann hátt sem fellur best að þeirra sjónarmiðum. Morgunljóst er hins vegar að hún reyndi á ríkisstjórnina.
Jóhanna Sigurðardóttir forsætis-ráðherra tilkynnti, í viðtali við Fréttablaðið, að hún ætlaði að sitja heima og Steingrímur upplýsti að það hefði hann einnig gert. Enda væri atkvæðagreiðslan marklaus.
Á meðan kepptist „órólega deildin" í Vinstri grænum við að útmála atkvæðagreiðsluna sem mikilvægan áfangasigur í lýðræðismálum. Það er ekki í fyrsta sinn sem sá þingmannahópur talar þvert ofan í það sem formaðurinn segir.
Órólega deildin er hugtak sem notað hefur verið á þá þingmenn flokksins sem síst hafa gengið í takt við formanninn. Þingmenn sem hafa verið tengdir við þann hóp eru Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, Ásmundur Einar Daðason, Atli Gíslason, Lilja Mósesdóttir og Ögmundur Jónasson. Þá hefur Jón Bjarnason á tíðum, sérstaklega þegar kemur að Evrópusambandsmálum, skipað sér í þennan flokk.
Raunar er villandi að tala um hópinn eins og um skipulegan flokk sé að ræða. Jón hefur til að mynda ekki fylgt hópnum þegar kemur að Icesave og Lilja Mósesdóttir þykir vera sér á báti innan þingflokksins. Þó hún standi þessum þingmönnum nærri sé hún jafnoft einangruð í afstöðu sinni.

Sćtta forna vini
Mikið hefur verið rætt um klofning innan Vinstri grænna og ýmsar kenningar eru á lofti um arma innan þess flokks. Slíkar kenningar eru oft á tíðum orðum auknar, en engum blöðum þarf um það að fletta að kastast hefur í kekki með þeim Steingrími og Ögmundi.
Þeir hafa verið óskoraðir leiðtogar flokksins og samhljóma í baráttu sinni. Það hefur nú breyst. Þegar Ögmundur gekk út úr ríkis-stjórninni sagði hann það vera vegna þess að hann væri ósáttur við málsmeðferðina hvað varðaði Icesave. Það var lítt dulin gagnrýni á leiðtoga ríkisstjórnarinnar, Steingrím og Jóhönnu. Fleiri hafa tekið undir þá gagnrýni, en við brotthvarf Ögmundar fjarlægðust þeir enn frekar.
Átökin innan flokksins líkamnast í raun í þeim tveimur. Þingmenn sem Fréttablaðið ræddi við sögðu að ef þeir sættust væru þau vandamál úr sögunni. Ögmundur og Steingrímur hafa átt fundi saman og hefur farið vel á með þeim, samkvæmt heimildum blaðsins. Það ríkir því nokkur bjartsýni innan flokksins um að sætta megi ólík sjónarmið.

Icesave og ráđherradómur
Til þess þarf hins vegar að leysa Icesave-deiluna. Tekið var eftir því hve Ögmundur var afdráttarlaus í yfirlýsingum í umræðum á þingi á mánudag; hann tók af allan vafa um það að hann styður ríkisstjórnina.
Svo einkennilega sem það hljómar virðist þjóðaratkvæðagreiðslan hafa hreinsað loftið að einhverju leyti. Viðbrögð stjórnarandstæðinga, sem segja stjórnina rúna trausti og kalla eftir kosningum í vor, hafa þjappað stjórnarliðum saman. Á þingflokksfundi Vinstri grænna á mánudag ríkti góður andi. Svo virðist sem samstaða sé að nást um að ganga frá málinu á þeim nótum sem samninganefndin hefur unnið eftir í síðustu lotu. Verði stjórnarandstaðan ekki með sé það hennar mál.
Þá segja menn, bæði í gamni og alvöru, að sýning Draumalands þeirra Þorfinns Guðnasonar og Andra Snæs Magnasonar, hafi glætt glóðir ríkisstjórnarsamstarfsins. Þingmenn hafi sammælst um að hleypa ekki þeim flokkum að sem stóðu að þeim framkvæmdum sem myndin lýsir.
Innan Samfylkingarinnar gætir vaxandi óróa vegna deilnanna í samstarfsflokknum. Krafan um samhljóm í stjórnarsamstarfinu verður sífellt háværari. Þar á bæ gera menn sér grein fyrir því að möguleg leið að því gæti verið að Ögmundur komi aftur inn í ríkis-stjórn. Raunar herma heimildir blaðsins að unnið sé að því. Það verði þó samhliða öðrum breytingum á stjórnarliðinu.

Ráđherrakapall
Í stjórnarsáttmálanum er kveðið á um sameiningu ráðuneyta og fækkun um leið. Raunin varð sú að ráðherrum fjölgaði þegar minnihlutastjórnin fékk meirihluta. Unnið hefur verið að breytingum ráðuneyta, en þeirri vinnu er ekki lokið.
Viðleitni til að ná samstöðu stjórnarliðsins gæti hins vegar orðið til að flýta þessum breytingum. Þannig er nú rætt um að Ögmundur taki sæti í ríkisstjórninni á ný. Samkvæmt heimildum blaðsins er ólíklegt að einungis sú breyting verði gerð.
Ögmundur hefur augastað á heilbrigðisráðuneytinu á ný, samkvæmt heimildum blaðsins, en þar situr fyrir Álfheiður Ingadóttir. Hún þykir hafa staðið sig vel í erfiðu ráðuneyti eftir að hún kom inn með engum fyrirvara við brotthvarf Ögmundar.
Leiðin gæti því verið sú að af stað færi ráðherrakapall, hrókeringar yrðu á milli ráðuneyta. Þá er ein leið sem nefnd hefur verið; sú að óflokksbundnu ráðherrarnir víki. Í stjórnina komi Ögmundur og einhver frá Samfylkingunni. Óvíst er hver það yrði, en líklega yrði það kona. Nafn nýliðans Sigríðar Ingibjargar Ingadóttur hefur verið nefnt í því samhengi, þó án allrar ábyrgðar.

Hleypa lífi í stjórnina
Ekki er aðeins rætt um að hrók-era ráðuneytum innan stjórnarliðsins. Málefnastaða stjórnarinnar þykir ekki allt of sterk og leiða til að styrkja hana er leitað.
Meðal þess sem rætt er í þeim efnum er að endurnýja verkefnalistann, en þegar stjórnin tók við kynnti hún 100 daga verkefnalista. Lítið hefur farið fyrir átaki stjórnarinnar sem kennt er við sóknar-áætlun, þó fundir hafi verið haldnir víða um land. Varaformaður Samfylkingarinnar, Dagur B. Eggertsson, hefur haft veg og vanda af þeirri vinnu. Dags og Katrínar Jakobsdóttur, varaformanns Vinstri grænna, verður að styrkja málefnastöðuna með nýjum verkefnalista.

Erfiđ mál fram undan
Stjórnarliðar eru bjartsýnni eftir fundi síðustu daga og umræðu á Alþingi. Almennt virðist viðhorfið vera; ef við klárum Icesave stendur stjórnin. Það er þó ljóst að ýmis erfið mál bíða stjórnarinnar sem reyna munu á samstöðuna.
Nægir í því samhengi að nefna að tekin verður fyrir á þingi tillaga þingmanna Hreyfingarinnar, með stuðningi Framsóknarmanna, um að slíta samstarfi við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. Þar fer mál sem er vinstri grænum viðkvæmt og einhverjir þingmanna flokksins gætu stutt hana.
Þá eru virkjanamál ónefnd, en ljóst er að flokkarnir ganga ekki í takt þar. Raunar má greina ósamhljóm innan Samfylkingarinnar þar, en fjölmargir áhrifamenn í flokknum hafa gagnrýnt fyrirhuguð stóriðjuáform á suðvesturhorninu og framkvæmdir þeim tengdar. Tekist verður á um virkjanakosti þegar rammaáætlun um nýtingu vatnsafls og jarðvarma kemur inn á þingið og lög um hana eru föst í þingflokki vinstri grænna. Þar er óánægja með tillöguna.
Þá eru Evrópumálin ónefnd, en ólíkar áherslur flokkanna í þeim efnum eru öllum kunnar. Að auki má búast við átökum varðandi fjárlagagerð, hvar verði skorið niður, hvaða skattar hækki.
Erfið mál bíða því stjórnarinnar og þolinmæðin er ekki ótæmandi. Sýni stjórnin ekki á næstunni að hún hafi þingstyrk til að koma málum sínum í gegn er henni feigð búin. Leiðin að þeirri samstöðu virðist þó hafa opnast.

Fleiri fréttir - Innlent

Innlent 12. feb. 2012 17:26

Hundur fastur í neti - tćkjabíll frá slökkviliđinu kallađur til

Lögreglan á höfuđborgarsvćđinu var tilkynnt um hund sem vćri fastur í netadrćsum viđ Ćgisg...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 13:51

Tćplega 80 ţúsund atkvćđi greidd í Eurovison

Alls voru greidd 79 ţúsund atkvćđi í Eurovision keppninni sem var sýnd á RÚV í gćrkvöldi. ...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 10:53

Beit lögregluţjón

Karlmađur beit lögregluţjón til blóđs í morgun. Mađurinn var stöđađur á Laugaveginum rétt ...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 10:45

Huglausa ljóniđ féll niđur hlera í miđri sýningu

"Samkvćmt öllum myndum og rannsóknum ćtti hann ađ sleppa ótrúlega vel,“ segir leikar...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 10:19

Opiđ í Böggvistađafjalli og í Oddsskarđi

Lokađ er í Bláfjöllum í dag vegna veđurs en ţar er bćđi hvasst og Blautt. Sömu sögu er ađ ...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 09:32

Settist upp í lögreglubíl og braut bílrúđu

Ölvađur og ćstur mađur var handtekinn viđ krá í Hafnarfirđi eftir ađ hann braut rúđu í lög...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 22:32

Mundu eftir mér sigrađi í Evróvisjón

Ţađ var lagiđ Mundu eftir mér sem sigrađi í Evróvisjón í kvöld. Ţađ var Greta Salóme Stefá...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 20:00

Rokkarar heimtuđu hćttulegt rauđvín

Nokkrir ađdáendur hljómsveitarinnar Motörhead mótmćltu ákvörđun vínbúđarinnar um ađ leyfa ...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 19:30

Fórnarlambiđ á Ţórshöfn međ mikla höfuđáverka

Rúmlega sjötugur karlmađur liggur ţungt haldinn á gjörgćsludeild sjúkrahússins á Akureyri ...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 18:30

Óvíst hvađa lög sprengjumađurinn braut

Karlmađur á áttrćđisaldri hefur játađ ađ hafa komiđ sprengjunni fyrir skammt frá Stjórnarr...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 17:35

Búist viđ hríđarveđri seint í kvöld

Ţađ hvessir af suđri seint í köld og hlýnar heldur. Á hćstu fjallvegum um landiđ vestanve...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 15:39

Fimm sagt sig af lista Kópavogsbúa vegna óánćgju

Fimm hafa sagt sig úr Y-lista Kópavogsbúa eftir ađ Rannveig Ásgeirsdóttir myndađi meirihlu...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 16:13

Útigangsmenn hrelldu börn á Klambratúni

Lögreglan á höfuđborgarsvćđinu fékk tilkynningu um ađ útigangsmenn hefđi veriđ ofstopafull...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 16:06

Ćtlađi ađ slökkva á brunabođanum en rćsti innbrotsbođann í stađinn

Hann var óheppinn iđnađarmađurinn sem var ađ störfum á Kleppsspítala í morgun. Lögreglu bá...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 15:02

Skyndihjálparmađur Íslands bjargađi dóttur sinni

Rauđi kross Íslands hefur valiđ Gísla Örn Gíslason sem skyndihjálparmann ársins 2011 fyrir...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 12:28

Játning í sprengjumálinu

Karlmađur á áttrćđisaldri hefur játađ ađ hafa komiđ sprengju fyrir skammt frá Stjórnarráđi...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 10:45

Braust inn til manns á áttrćđisaldri og misţyrmdi hrottalega

Rúmlega sjötugur karlmađur liggur ţungt haldinn á sjúkrahúsinu á Akureyri eftir alvarlega ...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 13:30

Aukin ţyngd sjúklinga hćkkar kostnađ vegna lyfja

Aukin ţyngd sjúklinga hefur hćkkađ kostnađ Landspítalans vegna lyfja síđustu misseri. Muna...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 09:29

Karlmađur stunginn og svo fćrđur í fangageymslu

Karlmađur var stunginn í nótt í Hafnarfirđi og handtók lögreglan fjóra menn vegna málsins....  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 12:09

Ákvörđun um gćsluvarđhald tekin í dag

Lögreglan tekur ákvörđun um ţađ síđar í dag hvort ađ krafist verđi gćsluvarđahalds yfir ka...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 11:47

112-dagurinn haldinn í dag - vélmenni og sprengjubíll í Smáralindinni

112-dagurinn verđur haldinn um allt land í dag. Markmiđ dagsins er ađ kynna neyđarnúmeriđ ...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 09:56

Fćrđ og ađstćđur: Hálka víđa á Suđurlandi

Hálkublettir eru á Hellisheiđi og Ţrengslum en snjóţekja á Lyngdalsheiđi, en hálkublettir ...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 09:45

Fíkniefnasali á Menntavegi og grillađir unglingar í Gvendargeisla

Lögreglan hafđi afskipti af fjórum unglingum viđ Gvendargeisla um klukkan hálf tólf í gćrk...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 09:00

Bíđa Alţingis og fresta innheimtu

Kristbjörg Stephensen borgarlögmađur segir í minnisblađi til borgarráđs ađ borgin verđi ađ...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 08:30

Óttast ađ verđmćtar minjar endi í brćđslu

Safnaráđ tók skeiđar og skart úr silfri af breskum kaupmanni sem hugđist fara međ góssiđ ú...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 08:00

Eftirlitsstofnun vill kröfur í lög fyrir marslok

Íslensk stjórnvöld telja ađ nýtt frumvarp um starfsemi Ríkisútvarpsins ohf. (RÚV) muni inn...  

Meira
Innlent 11. feb. 2012 07:00

Frumvarp um barnalög gamaldags

Anja Cordes, lögfrćđingur á sviđi fjölskylduréttar í Danmörku, segir í viđtali viđ Fréttab...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viđskipti
  • Lífiđ

Fréttir eftir mánuđi

Ţú ert hér: Forsíđa / Fréttir / Innlent / / Krefjast meiri samhljóms í stjórninni