Þarfur og óþarfur iðnaður

Fréttablaðið Fastir pennar 09. mars 2010 06:00
Sverrir Jakobsson
Sverrir Jakobsson
Sverrir Jakobsson skrifar:
Það er skiljanlegt að á krepputímum sé uppi rík krafa um sparnað og hagræðingu í rekstri ríkisins. Þó má vitaskuld ekki spara brýnustu nauðsynjar eins og t.d. að halda 300 milljóna króna atkvæðagreiðslu þar sem búið er að draga annan valmöguleikann tilbaka.

Sparnaðurinn snýst frekar um að draga úr óþarfa og þar hafa listamannalaun verið nefnd sérstaklega. Ríkið veitir sem sagt um 350 milljónir á ári í samkeppnisstyrki sem listamenn af ýmsu tagi sækja um; rithöfundar, tónlistarmenn og myndlistarmenn. Ekki er öfundsvert að sitja í úthlutunarnefndum um þessa styrki þar sem sótt er um margfalt fleira fé en hægt er að úthluta. Á hverju ári furðar maður sig líka á því að góðir rithöfundar og listamenn fá ekki styrki þótt að þeir séu svo sannarlega vel að þeim komnir. Fyrir þessi laun, sem eru svo sannarlega ekki þungur baggi á skattgreiðendum, hafa verið framleiddar ótal afurðir sem eflt hafa þjóðarstoltið gegnum tíðina. Þau valda því að menningarleg staða Íslands er sterk miðað við höfðatölu, en það væri hún svo sannarlega ekki ef listamenn þyrftu að lifa „á markaði" eins og það er stundum orðað. Á Íslandi lifa nefnilega einungis 300 þúsund hræður og markaðurinn því ansi lítill til að standa í menningarlegri samkeppni við margfalt fjölmennari þjóðir - sem hafa einnig kosið að efla eigin menningu með ríkisstyrkjum til lista.

Listamannalaun eru því dæmi um afar skynsamlega ráðstöfun almannafjár. Peningarnir renna beint til þeirra sem framleiða menningarverðmætin og gera það raunar fyrir laun sem eru vel undir meðaltekjum. Allir sem einhvern tíma fara í bókabúð eða listasafn geta borið vitni um gróskuna sem þetta veldur. Fyrir þessa lágu peningaupphæð eykst orðstír Íslands á alþjóðavettvangi margfalt. Öðru máli gegndi hins vegar um hina gríðarlegu fjárfestingu landsmanna í því að hasla sér völl sem viðskiptastórveldi. Þeir sem þar véluðu um voru ekki á neinum listamannalaunum; á því sviði var hvergi til sparað enda var haft á orði að slíkt afreksfólkið myndi hrekjast úr landi ef það fengi ekki margföld laun á við alla aðra. Það þótti til marks um gríðarlega öfund að gera athugasemdir við þau kjör en hvernig á þá að lýsa þeim sem sjá ofsjónum yfir því að afreksfólk á sviði lista fái að gerast láglaunaðir ríkisstarfsmenn hluta ársins? Sannleikurinn í málinu er hins vegar sú að listiðnin er einstaklega arðbær; sérhver peningur sem í hana fer skilar ríkulegri uppskeru.

Þegar litið er á fjárlög ársins 2010 eru raunar margir liðir á þeim sem ættu mun frekar að kalla á alvarlega umræðu heldur en listamannalaun. Þar nægir að nefna 400 milljón króna styrk sem ríkið greiðir hagsmunasamtökum sem kallast Samtök iðnaðarins. Þessi styrkur er innheimtur af fyrirtækjum í iðnaði óháð því hvort þau hafa kosið að gerast aðili að þessum samtökum eða ekki. Raunar ekki af öllum iðnfyrirtækjum því að álverin eru undanþegin þessum skatti, eins og svo ótalmörgum öðrum opinberum gjöldum. Og hvernig verja svo þessi samtök ríkisstyrknum? Það kom í ljós á dögunum þegar formaður þeirra kallaði eftir breytingum á ríkisstjórn. Í þeim fólst annars vegar að Sjálfstæðisflokkurinn ætti að setjast í ríkisstjórn og hins vegar að sú ríkisstjórn (sem hann kallaði „þjóðstjórn") ætti að taka upp stefnu Sjálfstæðisflokksins.

Höfum í huga að Sjálfstæðisflokkurinn nýtur nú þegar umtalsverðra ríkisstyrkja - svo ekki sé minnst á alla styrkina sem hann hefur þegið frá fyrirtækjum útrásarvíkinga. Þarf virkilega að styrkja þennan eina stjórnmálaflokk enn frekar í gegnum hagsmunasamtök sem hafa tekið að sér að reka áróður fyrir stjórnmálastefnu hans? Af hverju gildir þá ekki sama reglan fyrir önnur hagsmunasamtök? Jafnvel samtök sem hafa verðugri málstað en styðja við bakið á stjórnmálaflokki sem er þegar búinn að koma Íslandi í þrot einu sinni.

Til eru mörg samtök sem stunda lobbýisma og hagsmunagæslu. Langflest slík samtök njóta lítilla sem engra ríkisstyrkja. Í þessu samhengi er rétt að nefna sérstaklega samtök rithöfunda og listmanna - sem hafa af þeim sökum lítið bolmagn til að útrýma ranghugmyndum um listamannalaun. Væri ekki heillavænlegra verkefni fyrir þjóðarbúið að styrkja þau heldur en enn eitt áróðursprósjekt Sjálfstæðisflokksins?



Fleiri fréttir - Fastir pennar

Fastir pennar 11. feb. 2012 06:00

Panikk í pólitík

Niðurstöður skoðanakönnunar Fréttablaðsins og Stöðvar 2 um fylgi flokkanna, sem birtust í ...  

Meira
Fastir pennar 11. feb. 2012 06:00

Ríkisvæðing er mesta hættan

Ögmundi Jónassyni tókst með haldbærum rökum í Kastljóssþætti í vikunni að sýna fram á yfir...  

Meira
Fastir pennar 10. feb. 2012 06:00

Fleiri kostir í samgöngum

Fáar þjóðir eiga fleiri eða aflmeiri bíla miðað við fólksfjölda en Íslendingar. Það á sér ...  

Meira
Fastir pennar 10. feb. 2012 06:00

Ást á stórum byggingum

Einhverjum gæti þótt mikil eftirsjá að öllu fénu sem fer í sundlaugar hér og þar um landið...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 19:00

Tvíkynhneigð kærasta vill tilbreytingu

Öll erum við með okkar hugmyndir um kynlíf. Hugmyndunum fylgja oft vandamál sem kynfræðing...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 06:00

Samstaða um gamlar hugmyndir

Nýja stjórnmálaaflið Samstaða, undir forystu Lilju Mósesdóttur alþingismanns, gefur sig út...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 06:00

Frá trú til skynsemi

Það er undur stutt síðan málið sýndist afgreitt. Þetta með markaðina og ríkið. Markaðir vi...  

Meira
Fastir pennar 08. feb. 2012 06:00

Sameiginleg skylda

Algjör breyting hefur orðið í forsjármálum barna á 20 árum. Árið 1992 varð fyrst möguleiki...  

Meira
Fastir pennar 08. feb. 2012 14:00

Lífeyrissjóðirnir plataðir

Forsvarsmenn lífeyrissjóða keppast nú um að túlka niðurstöðu nefndar sem gerði úttekt á st...  

Meira
Fastir pennar 07. feb. 2012 06:00

Um börnin og refsilöggjöfina – dómur Hæstaréttar

Lög eiga að tryggja sanngjarna málsmeðferð, réttlæti í samskiptum fólks og velferð. Börn s...  

Meira
Fastir pennar 07. feb. 2012 06:00

Hinar orkulindirnar

Þriðjungur þingheims, þingmenn úr öllum flokkum undir forystu Skúla Helgasonar, hefur lagt...  

Meira
Fastir pennar 06. feb. 2012 08:00

Tapað af fagmennsku

Ný skýrsla um lífeyrissjóðina hefur leitt í ljós að á tveimur árum kringum bankahrunið tók...  

Meira
Fastir pennar 06. feb. 2012 06:00

Huga þarf að færum leiðum

Skuldavandi heimila á að stórum hluta rót sína í því furðulega kerfi sem landsmenn hafa hé...  

Meira
Fastir pennar 04. feb. 2012 06:00

Peningar annarra

Skýrsla sjálfstæðrar úttektarnefndar um starfsemi lífeyrissjóðanna inniheldur harða gagnrý...  

Meira
Fastir pennar 04. feb. 2012 06:00

Fóstbræðralag

Kópavogur hefur dregið að sér nokkra athygli vegna viðræðna um myndun nýs meirihluta í bæj...  

Meira
Fastir pennar 03. feb. 2012 06:00

Viðbúin nýjum hættum

Sprengjan sem sprakk fyrir framan skrifstofur ríkissaksóknara, í næsta nágrenni við Stjórn...  

Meira
Fastir pennar 03. feb. 2012 06:00

Ætlað samþykki

Nokkrir þingmenn vilja breyta lögum á þann hátt að líffæri verði tekin úr látnum mönnum ne...  

Meira
Fastir pennar 02. feb. 2012 06:00

Tómir kofar

Stutt en áhugaverð umræða fór fram um EES-samninginn á Alþingi fyrr í vikunni. Tilefnið va...  

Meira
Fastir pennar 02. feb. 2012 06:00

Vöggugjöf

Kynjamunur á námsárangri í Reykjavík er fyrst og fremst í íslensku. Munurinn kemur afdrátt...  

Meira
Fastir pennar 01. feb. 2012 06:00

Greiðari leið til lífgjafar eftir andlát

Allmörg nýru úr lifandi gjöfum eru grædd í Íslendinga ár hvert. Vegna þessarar gjafmildi á...  

Meira
Fastir pennar 31. jan. 2012 06:00

Óklárað uppgjör

Þingmenn úr að minnsta kosti þremur flokkum, auk óháðra, munu í vikunni leggja fram á Alþi...  

Meira
Fastir pennar 30. jan. 2012 08:00

Ögmundur og íhaldið

Sagnfræðingar tala um að stéttastjórnmál hafi leyst sjálfstæðisstjórnmál af hólmi árið 191...  

Meira
Fastir pennar 30. jan. 2012 06:00

Kostnaður krónu

Samkeppniseftirlitið birti í síðustu viku skýrslu sína um verðþróun og samkeppni á dagvöru...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Atvinna
  • Serblad
  • Serblad
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Fastir pennar / Þarfur og óþarfur iðnaður