Síður undir "umraedan"

Kosið um kvóta?

Fréttablaðið Fastir pennar 09. mars 2010 06:00
Ólafur Þ. Stephensen
Ólafur Þ. Stephensen
Ólafur Þ. Stephensen skrifar:
Ummæli Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra í Fréttablaðinu í gær, um að næsta þjóðaratkvæðagreiðsla geti farið fram um fiskveiðistjórnunarkerfið, eru allrar athygli verð. Forsætisráðherrann bendir réttilega á að deilan um stjórnun fiskveiða hafi klofið þjóðina áratugum saman. Talsmenn þjóðaratkvæðagreiðslna hafa oft nefnt fiskveiðistjórnunina sem mál sem hægt væri að gera út um í þjóðaratkvæðagreiðslu.

Málið er hins vegar flókið. Ríkisstjórnin hefur fyrningarleiðina svokölluðu á stefnuskrá sinni; að taka aflaheimildirnar af útgerðinni á tuttugu ára tímabili og endurúthluta þeim. Talsmenn sjávarútvegsins segja að slík aðgerð myndi stofna afkomu greinarinnar í voða - og hafa mikið til síns máls.

Í þessu máli vegast á réttlætissjónarmið og hagkvæmnis-sjónarmið. Réttlætissjónarmiðið er að útvegsmenn geti ekki farið með auðlindina, sem lögum samkvæmt er almenningseign, eins og sína einkaeign. Hagkvæmnissjónarmiðið vegur hins vegar líka þungt. Kvótakerfið er skilvirkt og hagkvæmt, hefur reynzt betur en flest önnur kerfi við skynsamlega stjórnun auðlindarinnar og hefur skilað gríðarlegri hagræðingu í sjávarútveginum.

Hvaða kosti ætti að leggja fyrir þjóðina þegar kosið yrði um fiskveiðistjórnunina? Yrði það óbreytt ástand eða hreinræktuð fyrningarleið, sem segja má að séu ýtrustu kostirnir? Forsætisráðherra segir að vel færi á því að niðurstaða sáttanefndarinnar svokölluðu yrði lögð fyrir þjóðina. Þá væri þjóðin að kjósa á milli óbreytts ástands og einhvers konar málamiðlunar. Enn veit enginn hver sú málamiðlun gæti orðið. Kannski yrði hún að halda óbreyttu kvótakerfi, en leggja hærra veiðileyfagjald á útgerðina. Einu sinni leit út fyrir að sátt gæti náðst um slíka leið og ástæða væri til að láta reyna á hvort þjóðin væri henni sammála.

Vandi sáttanefndarinnar virðist hins vegar sá, að ríkisstjórnin er ekki í miklum sáttahug þegar sjávarútvegurinn er annars vegar. Fulltrúar bæði útgerðar og fiskvinnslu hyggjast hætta störfum í nefndinni, verði skötuselsfrumvarp Jóns Bjarnasonar sjávarútvegsráðherra að lögum á Alþingi.

Sjálfsagt gefst nægur tími til að ræða sjávarútvegsmálin áður en til atkvæðagreiðslu kemur, því að fyrst þarf að setja almennar reglur um þjóðaratkvæðagreiðslur. Ummæli Jóhönnu um þær reglur benda til að afstaða Samfylkingarinnar hafi breytzt: „Fólkið á að hafa þennan rétt [að knýja fram þjóðaratkvæðagreiðslu] en ekki bara forsetinn. Það má hugleiða að ef fólkið fær þennan rétt í lögum, að forsetinn hefði hann þá ekki."

Síðasta stjórnarskrárnefnd náði ekki saman um nýjar reglur um þjóðaratkvæðagreiðslur einmitt vegna ágreinings um þetta atriði. Sjálfstæðismenn, sem kunnu forsetanum litlar þakkir fyrir að virkja 26. grein stjórnarskrárinnar sumarið 2004, vildu þá taka málskotsréttinn af forsetanum og færa hann þjóðinni. Samfylkingin var hins vegar alveg á móti því og vildi að forsetinn hefði réttinn áfram.

Kannski verður ákvörðun forsetans um að synja Icesave-lögunum staðfestingar til þess að þverpólitísk samstaða næst um að setja skynsamlegar reglur um þjóðaratkvæðagreiðslur.


Fleiri fréttir - Fastir pennar

Fastir pennar 11. feb. 2012 06:00

Panikk í pólitík

Niðurstöður skoðanakönnunar Fréttablaðsins og Stöðvar 2 um fylgi flokkanna, sem birtust í ...  

Meira
Fastir pennar 11. feb. 2012 06:00

Ríkisvæðing er mesta hættan

Ögmundi Jónassyni tókst með haldbærum rökum í Kastljóssþætti í vikunni að sýna fram á yfir...  

Meira
Fastir pennar 10. feb. 2012 06:00

Fleiri kostir í samgöngum

Fáar þjóðir eiga fleiri eða aflmeiri bíla miðað við fólksfjölda en Íslendingar. Það á sér ...  

Meira
Fastir pennar 10. feb. 2012 06:00

Ást á stórum byggingum

Einhverjum gæti þótt mikil eftirsjá að öllu fénu sem fer í sundlaugar hér og þar um landið...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 19:00

Tvíkynhneigð kærasta vill tilbreytingu

Öll erum við með okkar hugmyndir um kynlíf. Hugmyndunum fylgja oft vandamál sem kynfræðing...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 06:00

Samstaða um gamlar hugmyndir

Nýja stjórnmálaaflið Samstaða, undir forystu Lilju Mósesdóttur alþingismanns, gefur sig út...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 06:00

Frá trú til skynsemi

Það er undur stutt síðan málið sýndist afgreitt. Þetta með markaðina og ríkið. Markaðir vi...  

Meira
Fastir pennar 08. feb. 2012 06:00

Sameiginleg skylda

Algjör breyting hefur orðið í forsjármálum barna á 20 árum. Árið 1992 varð fyrst möguleiki...  

Meira
Fastir pennar 08. feb. 2012 14:00

Lífeyrissjóðirnir plataðir

Forsvarsmenn lífeyrissjóða keppast nú um að túlka niðurstöðu nefndar sem gerði úttekt á st...  

Meira
Fastir pennar 07. feb. 2012 06:00

Um börnin og refsilöggjöfina – dómur Hæstaréttar

Lög eiga að tryggja sanngjarna málsmeðferð, réttlæti í samskiptum fólks og velferð. Börn s...  

Meira
Fastir pennar 07. feb. 2012 06:00

Hinar orkulindirnar

Þriðjungur þingheims, þingmenn úr öllum flokkum undir forystu Skúla Helgasonar, hefur lagt...  

Meira
Fastir pennar 06. feb. 2012 08:00

Tapað af fagmennsku

Ný skýrsla um lífeyrissjóðina hefur leitt í ljós að á tveimur árum kringum bankahrunið tók...  

Meira
Fastir pennar 06. feb. 2012 06:00

Huga þarf að færum leiðum

Skuldavandi heimila á að stórum hluta rót sína í því furðulega kerfi sem landsmenn hafa hé...  

Meira
Fastir pennar 04. feb. 2012 06:00

Peningar annarra

Skýrsla sjálfstæðrar úttektarnefndar um starfsemi lífeyrissjóðanna inniheldur harða gagnrý...  

Meira
Fastir pennar 04. feb. 2012 06:00

Fóstbræðralag

Kópavogur hefur dregið að sér nokkra athygli vegna viðræðna um myndun nýs meirihluta í bæj...  

Meira
Fastir pennar 03. feb. 2012 06:00

Viðbúin nýjum hættum

Sprengjan sem sprakk fyrir framan skrifstofur ríkissaksóknara, í næsta nágrenni við Stjórn...  

Meira
Fastir pennar 03. feb. 2012 06:00

Ætlað samþykki

Nokkrir þingmenn vilja breyta lögum á þann hátt að líffæri verði tekin úr látnum mönnum ne...  

Meira
Fastir pennar 02. feb. 2012 06:00

Tómir kofar

Stutt en áhugaverð umræða fór fram um EES-samninginn á Alþingi fyrr í vikunni. Tilefnið va...  

Meira
Fastir pennar 02. feb. 2012 06:00

Vöggugjöf

Kynjamunur á námsárangri í Reykjavík er fyrst og fremst í íslensku. Munurinn kemur afdrátt...  

Meira
Fastir pennar 01. feb. 2012 06:00

Greiðari leið til lífgjafar eftir andlát

Allmörg nýru úr lifandi gjöfum eru grædd í Íslendinga ár hvert. Vegna þessarar gjafmildi á...  

Meira
Fastir pennar 31. jan. 2012 06:00

Óklárað uppgjör

Þingmenn úr að minnsta kosti þremur flokkum, auk óháðra, munu í vikunni leggja fram á Alþi...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Atvinna
  • Serblad
  • Serblad
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Fastir pennar / Forréttir / Kosið um kvóta?