Wenger: Vill enskt lið í næstu umferð

Vísir Meistaradeildin 09. mars 2010 23:30
Wenger og lærisveinar eru komnir í átta liða úrslit Meistaradeildarinnar.
Wenger og lærisveinar eru komnir í átta liða úrslit Meistaradeildarinnar.
Elvar Geir Magnússon skrifar:

„Þetta var ekki fullkomið en mjög góð frammistaða, sterk frammistaða," sagði Arsene Wenger, stjóri Arsenal, eftir að hans menn slátruðu Porto 5-0 í Meistaradeildinni.

Nicklas Bendtner skoraði þrennu í leiknum en Wenger sparaði hrós til danska sóknarmannsins. „Þetta var gott fyrir hann. Hann lék vel á laugardaginn en fór illa með færin. Hann fékk færri færi í kvöld en skoraði mörk," sagði Wenger.

„Við áttum mjög góðan fyrri hálfleik en vorum ekki nægilega öflugir í upphafi þess síðari. En eftir að Nasri skoraði komumst við aftur á flug og eftirleikurinn var auðveldur."

Wenger segist vera sama þó Arsenal dragist gegn ensku liði í næstu umferð. „Ég er með furðulega tilfinningu, kannski er það bara gott fyrir okkur að mæta ensku liði," sagði Wenger.



Fleiri fréttir - Meistaradeildin

Meistaradeildin 03. feb. 2012 23:45

Slasaðist við tannburstun og missir af leik gegn Barcelona

Knattspyrnumenn missa stundum af mikilvægum leikjum eða heilum stórmótum í knattspyrnu af ...  

Meira
Meistaradeildin 03. feb. 2012 20:30

Ancelotti: Real og Barca eru langsigurstranglegust í Meistaradeildinni

Carlo Ancelotti, stjóri Paris Saint-Germain, er sannfærður um að Meistaradeildarbikarinn s...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Nýjast á Vísi

Fréttir eftir mánuði

Þú ert hér: Forsíða / Sport / Fótbolti / Meistaradeildin / England / Wenger: Vill enskt lið í næstu umferð