Bendtner: Hugsaði ekkert um laugardaginn

Vísir Meistaradeildin 09. mars 2010 22:41
„Við viljum vinna Meistaradeildina, við höfum ekki fengið að upplifa það,
„Við viljum vinna Meistaradeildina, við höfum ekki fengið að upplifa það," segir Bendtner.
Elvar Geir Magnússon skrifar:

Nicklas Bendtner skoraði sína fyrstu þrennu þegar Arsenal slátraði Porto 5-0 í Meistaradeildinni. Bendtner klúðraði fjölmörgum dauðafærum síðasta laugardag þegar Arsenal mætti Burnley í úrvalsdeildinni.

Honum brást þó ekki bogalistin þegar Arsenal komst áfram í átta liða úrslit Meistaradeildarinnar með 6-2 samanlögðum sigri á Porto.

Spurður hvort leikurinn á laugardag hafi ekkert setið í honum svaraði Bendtner: „Alls ekki. Alltaf þegar ég spila leiki þá hætti ég að hugsa um þá um leið og þeim er lokið," sagði Bendtner.

„Þetta var bara einn af þessum dögum en núna fann ég leiðina í markið. Ég er hæstánægður með þessa þrennu en á morgun verðum við að horfa fram veginn."

Arsenal sýndi sínar bestu hliðar í sóknarleiknum. „Þetta gefur okkur mikið sjálfstraust. Við viljum vinna Meistaradeildina, við höfum ekki fengið að upplifa það. Við nýttum færin okkar vel og það er gott," sagði Bendtner.



Fleiri fréttir - Meistaradeildin

Meistaradeildin 03. feb. 2012 23:45

Slasaðist við tannburstun og missir af leik gegn Barcelona

Knattspyrnumenn missa stundum af mikilvægum leikjum eða heilum stórmótum í knattspyrnu af ...  

Meira
Meistaradeildin 03. feb. 2012 20:30

Ancelotti: Real og Barca eru langsigurstranglegust í Meistaradeildinni

Carlo Ancelotti, stjóri Paris Saint-Germain, er sannfærður um að Meistaradeildarbikarinn s...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Nýjast á Vísi

Fréttir eftir mánuði

Þú ert hér: Forsíða / Sport / Fótbolti / Meistaradeildin / Meistaradeildin / Bendtner: Hugsaði ekkert um laugardaginn