Þrír kostir

Fréttablaðið Fastir pennar 08. mars 2010 06:00
Ólafur Þ. Stephensen
Ólafur Þ. Stephensen
Ólafur Þ. Stephensen skrifar:

Úrslit þjóðaratkvæðagreiðslunnar um Icesave-lögin á laugardag koma ekki á óvart. Miðað við að í raun var kosturinn já ekki lengur í boði og betri niðurstaða var í boði en sú, sem Alþingi samþykkti í desember, blasti við að langflestir hlytu að segja nei.

Menn verða að forðast að oftúlka niðurstöðuna, bæði hér heima og erlendis. Hún þýðir ekki að Ísland ætli ekki að standa undir innstæðutryggingunum vegna Icesave-reikninganna. Hún þýðir eingöngu að Ísland sættir sig ekki við kjörin og um þau þarf að ná nýju samkomulagi við Bretland og Holland, eins og reynt hefur verið á undanförnum vikum.

Það er hins vegar fráleitt af forystumönnum ríkisstjórnarinnar að gera lítið úr kjörsókninni í atkvæðagreiðslunni og gefa í skyn að hún þýði að almenningur hafi lítinn áhuga á málinu. Þvert á móti var kjörsóknin ágæt, bæði miðað við þjóðaratkvæðagreiðslur í öðrum löndum og miðað við þær atkvæðagreiðslur, sem fóru fram hér á landi á fyrri hluta síðustu aldar. Það sýnir að þjóðin lætur sig Icesave-málið miklu skipta.

Margir höfðu á orði í gær að niðurstaðan væri áfall fyrir ríkisstjórnina og hún væri rúin trausti. Erfiðleikar ríkisstjórnarinnar blöstu við fyrir löngu og þurfti ekki atkvæðagreiðsluna til að sýna fram á þá. Stjórnin getur ekki komið sér saman um ýmis mikilvægustu málin í endurreisninni. Stóriðjumál, önnur atvinnuuppbygging á vegum einkaframtaksins og Evrópumálin eru þar efst á baugi, fyrir utan Icesave-málið sjálft, sem hefur reynzt stjórninni þungt í skauti.

Þrátt fyrir getuleysi ríkisstjórnarinnar á mörgum sviðum nýtur hún enn stuðnings um helmings kjósenda, samkvæmt könnunum. Það bendir til að stjórnarandstaðan hafi enn ekki náð vopnum sínum þrátt fyrir vandræðaganginn á stjórnarheimilinu. Innan stjórnarandstöðunnar er heldur ekki samstaða um kröfu um að boða til kosninga, eins og kemur fram í umfjöllun Fréttablaðsins í dag. Forysta Sjálfstæðisflokksins, sem nú er stærsti flokkurinn samkvæmt könnunum, vill sennilega fá ráðrúm til að bregðast við niðurstöðum rannsóknarskýrslu Alþingis áður en flokkurinn telur sig tilbúinn í kosningaslag.

Ríkisstjórnin á þrjá kosti í stöðunni. Hún getur í fyrsta lagi byrjað að haga sér eins og starfhæf ríkisstjórn og komið í gegn málum, sem órólega deildin innan Vinstri grænna hefur til þessa haldið í gíslingu.

Hún á líka þann kost að gefast upp á verkefninu og boða til kosninga, en óvíst er að þær breyti valdahlutföllum flokkanna nógu mikið til að nýr, starfhæfur stjórnarmeirihluti verði til.

Þriðji kosturinn er að ríkisstjórnin bjóði stjórnarandstöðunni upp á samstarf um lausn á ýmsum brýnum hagsmunamálum þjóðarinnar.

Góð byrjun væri að klára Icesave-málið sem allra fyrst og láta ekki samstöðuna bresta sem tekizt hefur með flokkunum undanfarnar vikur. Allur dráttur á lausn í málinu hefur gífurlegan kostnað í för með sér fyrir land og þjóð. Flokkarnir þurfa allir að sýna þá ábyrgð sem þarf til að koma því farsællega í höfn. Þá verða önnur mál vonandi líka auðveldari viðfangs.





Fleiri fréttir - Fastir pennar

Fastir pennar 11. feb. 2012 06:00

Panikk í pólitík

Niðurstöður skoðanakönnunar Fréttablaðsins og Stöðvar 2 um fylgi flokkanna, sem birtust í ...  

Meira
Fastir pennar 11. feb. 2012 06:00

Ríkisvæðing er mesta hættan

Ögmundi Jónassyni tókst með haldbærum rökum í Kastljóssþætti í vikunni að sýna fram á yfir...  

Meira
Fastir pennar 10. feb. 2012 06:00

Fleiri kostir í samgöngum

Fáar þjóðir eiga fleiri eða aflmeiri bíla miðað við fólksfjölda en Íslendingar. Það á sér ...  

Meira
Fastir pennar 10. feb. 2012 06:00

Ást á stórum byggingum

Einhverjum gæti þótt mikil eftirsjá að öllu fénu sem fer í sundlaugar hér og þar um landið...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 19:00

Tvíkynhneigð kærasta vill tilbreytingu

Öll erum við með okkar hugmyndir um kynlíf. Hugmyndunum fylgja oft vandamál sem kynfræðing...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 06:00

Samstaða um gamlar hugmyndir

Nýja stjórnmálaaflið Samstaða, undir forystu Lilju Mósesdóttur alþingismanns, gefur sig út...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 06:00

Frá trú til skynsemi

Það er undur stutt síðan málið sýndist afgreitt. Þetta með markaðina og ríkið. Markaðir vi...  

Meira
Fastir pennar 08. feb. 2012 06:00

Sameiginleg skylda

Algjör breyting hefur orðið í forsjármálum barna á 20 árum. Árið 1992 varð fyrst möguleiki...  

Meira
Fastir pennar 08. feb. 2012 14:00

Lífeyrissjóðirnir plataðir

Forsvarsmenn lífeyrissjóða keppast nú um að túlka niðurstöðu nefndar sem gerði úttekt á st...  

Meira
Fastir pennar 07. feb. 2012 06:00

Um börnin og refsilöggjöfina – dómur Hæstaréttar

Lög eiga að tryggja sanngjarna málsmeðferð, réttlæti í samskiptum fólks og velferð. Börn s...  

Meira
Fastir pennar 07. feb. 2012 06:00

Hinar orkulindirnar

Þriðjungur þingheims, þingmenn úr öllum flokkum undir forystu Skúla Helgasonar, hefur lagt...  

Meira
Fastir pennar 06. feb. 2012 08:00

Tapað af fagmennsku

Ný skýrsla um lífeyrissjóðina hefur leitt í ljós að á tveimur árum kringum bankahrunið tók...  

Meira
Fastir pennar 06. feb. 2012 06:00

Huga þarf að færum leiðum

Skuldavandi heimila á að stórum hluta rót sína í því furðulega kerfi sem landsmenn hafa hé...  

Meira
Fastir pennar 04. feb. 2012 06:00

Peningar annarra

Skýrsla sjálfstæðrar úttektarnefndar um starfsemi lífeyrissjóðanna inniheldur harða gagnrý...  

Meira
Fastir pennar 04. feb. 2012 06:00

Fóstbræðralag

Kópavogur hefur dregið að sér nokkra athygli vegna viðræðna um myndun nýs meirihluta í bæj...  

Meira
Fastir pennar 03. feb. 2012 06:00

Viðbúin nýjum hættum

Sprengjan sem sprakk fyrir framan skrifstofur ríkissaksóknara, í næsta nágrenni við Stjórn...  

Meira
Fastir pennar 03. feb. 2012 06:00

Ætlað samþykki

Nokkrir þingmenn vilja breyta lögum á þann hátt að líffæri verði tekin úr látnum mönnum ne...  

Meira
Fastir pennar 02. feb. 2012 06:00

Tómir kofar

Stutt en áhugaverð umræða fór fram um EES-samninginn á Alþingi fyrr í vikunni. Tilefnið va...  

Meira
Fastir pennar 02. feb. 2012 06:00

Vöggugjöf

Kynjamunur á námsárangri í Reykjavík er fyrst og fremst í íslensku. Munurinn kemur afdrátt...  

Meira
Fastir pennar 01. feb. 2012 06:00

Greiðari leið til lífgjafar eftir andlát

Allmörg nýru úr lifandi gjöfum eru grædd í Íslendinga ár hvert. Vegna þessarar gjafmildi á...  

Meira
Fastir pennar 31. jan. 2012 06:00

Óklárað uppgjör

Þingmenn úr að minnsta kosti þremur flokkum, auk óháðra, munu í vikunni leggja fram á Alþi...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Atvinna
  • Serblad
  • Serblad
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Fastir pennar / Hafliði Helgason / Þrír kostir