Tímamót í jafnréttismálum

Fréttablaðið Fastir pennar 06. mars 2010 06:00
Steinunn Stefánsdóttir
Steinunn Stefánsdóttir
Steinunn Stefánsdóttir skrifar:

Hlutfall kynja í stjórnum hlutafélaga og einkahlutafélaga var bundið í lög nú í vikunni. Samkvæmt lögunum nýju verður einnig skylt að gæta að kynjahlutföllum við ráðningu framkvæmdastjóra fyrirtækja, og tilkynna um hvort tveggja, kynjahlutfall stjórnarmanna og framkvæmdastjóra, til Hlutafélagaskrár.

Umræðan um kynjakvóta í stjórnum fyrirtækja hefur fengið vaxandi þunga eftir að Norðmenn, fyrstir þjóða, settu slík lög fyrir fáeinum árum.
Andstæðingar kynjakvótans halda því fram að konur þurfi ekki þessa meðgjöf og að hún sé jafnvel lítillækkandi fyrir þær vegna þess að ef konur eru valdar í stjórn vegna kynjakvóta þá séu þær ekki valdar vegna verðleika sinna.

Fylgjendur kynjakvóta segja á hinn bóginn að reynslan sýni að lög þurfi til að rétta hlut kvenna í stjórnum fyrirtækja. Lítill áhugi sé í þeim stóra meirihlutahópi karla sem ferðinni ráða í atvinnulífinu til að venda skútunni; samfélagið hafi ekki efni á að bíða eftir því að sá áhugi vakni, ekki síst í ljósi þess að rannsóknir sýni að yfirleitt vegnar þeim fyrirtækjum betur þar sem bæði kyn koma við sögu í stjórnun.

Fyrir tæpu ári skrifuðu Samtök atvinnulífsins, Félag kvenna í atvinnurekstri og Verslunarráð Íslands undir viljayfirlýsingu þess efnis að fjölga konum í forystusveit íslensks atvinnulífs. Markmiðið var einmitt að hlutur hvors kyns yrði ekki minni en 40 prósent í stjórnum fyrirtækja, eins og kveður á um í lögunum nýsamþykktu.

Í mánuðinum sem leið var haldin geysifjölmenn ráðstefna undir yfirskriftinni Virkjum karla og konur. Þar stigu á stokk fulltrúar tveggja fyrirtækja, Eddu útgáfu og Mannvits, og skrifuðu undir samstarfssamning um að auka fjölbreytni í forystusveit sinni, eða með öðrum orðum að uppfylla markmiðið um 40 prósent kvenna að lágmarki í stjórn. Síðan hafa tvö fyrirtæki til viðbótar undirritað samstarfssamninginn: Landsbankinn og Saltkaup.

Fjögur fyrirtæki í landinu hafa því, enn sem komið er, treyst sér til þess að strengja þess heit að jafna hlutfall kynja í stjórnum sínum, til viðbótar við þau liðlega 4.300 fyrirtæki sem þegar hafa á að skipa jöfnu kynjahlutfalli í stjórn. Í landinu starfa nú rúmlega 32.000 fyrirtæki svo hlutfall fyrirtækja sem hafa á að skipa stjórn þar sem kynjajafnvægis gætir er liðlega 13 prósent.

Það er því langt í land og algerlega ljóst að ekki veitir af lagasetningunni til þess að styðja við fjölgun kvenna í stjórnum fyrirtækja. Lögin sem samþykkt voru í vikunni marka tímamót og eru mikið fagnaðarefni.
Vel hefur gengið í Noregi að framfylgja lögum um jafnan hlut kynja í stjórnum fyrirtækja. Hér tekur lagaákvæðið um kynjahlutföll ekki gildi fyrr en seinni hluta ársins 2013. Íslensk fyrirtæki hafa því rúmlega þrjú ár til að rétta hjá sér kúrsinn og er þeim óskað velfarnaðar við það verkefni.





Fleiri fréttir - Fastir pennar

Fastir pennar 11. feb. 2012 06:00

Panikk í pólitík

Niðurstöður skoðanakönnunar Fréttablaðsins og Stöðvar 2 um fylgi flokkanna, sem birtust í ...  

Meira
Fastir pennar 11. feb. 2012 06:00

Ríkisvæðing er mesta hættan

Ögmundi Jónassyni tókst með haldbærum rökum í Kastljóssþætti í vikunni að sýna fram á yfir...  

Meira
Fastir pennar 10. feb. 2012 06:00

Fleiri kostir í samgöngum

Fáar þjóðir eiga fleiri eða aflmeiri bíla miðað við fólksfjölda en Íslendingar. Það á sér ...  

Meira
Fastir pennar 10. feb. 2012 06:00

Ást á stórum byggingum

Einhverjum gæti þótt mikil eftirsjá að öllu fénu sem fer í sundlaugar hér og þar um landið...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 19:00

Tvíkynhneigð kærasta vill tilbreytingu

Öll erum við með okkar hugmyndir um kynlíf. Hugmyndunum fylgja oft vandamál sem kynfræðing...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 06:00

Samstaða um gamlar hugmyndir

Nýja stjórnmálaaflið Samstaða, undir forystu Lilju Mósesdóttur alþingismanns, gefur sig út...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 06:00

Frá trú til skynsemi

Það er undur stutt síðan málið sýndist afgreitt. Þetta með markaðina og ríkið. Markaðir vi...  

Meira
Fastir pennar 08. feb. 2012 06:00

Sameiginleg skylda

Algjör breyting hefur orðið í forsjármálum barna á 20 árum. Árið 1992 varð fyrst möguleiki...  

Meira
Fastir pennar 08. feb. 2012 14:00

Lífeyrissjóðirnir plataðir

Forsvarsmenn lífeyrissjóða keppast nú um að túlka niðurstöðu nefndar sem gerði úttekt á st...  

Meira
Fastir pennar 07. feb. 2012 06:00

Um börnin og refsilöggjöfina – dómur Hæstaréttar

Lög eiga að tryggja sanngjarna málsmeðferð, réttlæti í samskiptum fólks og velferð. Börn s...  

Meira
Fastir pennar 07. feb. 2012 06:00

Hinar orkulindirnar

Þriðjungur þingheims, þingmenn úr öllum flokkum undir forystu Skúla Helgasonar, hefur lagt...  

Meira
Fastir pennar 06. feb. 2012 08:00

Tapað af fagmennsku

Ný skýrsla um lífeyrissjóðina hefur leitt í ljós að á tveimur árum kringum bankahrunið tók...  

Meira
Fastir pennar 06. feb. 2012 06:00

Huga þarf að færum leiðum

Skuldavandi heimila á að stórum hluta rót sína í því furðulega kerfi sem landsmenn hafa hé...  

Meira
Fastir pennar 04. feb. 2012 06:00

Peningar annarra

Skýrsla sjálfstæðrar úttektarnefndar um starfsemi lífeyrissjóðanna inniheldur harða gagnrý...  

Meira
Fastir pennar 04. feb. 2012 06:00

Fóstbræðralag

Kópavogur hefur dregið að sér nokkra athygli vegna viðræðna um myndun nýs meirihluta í bæj...  

Meira
Fastir pennar 03. feb. 2012 06:00

Viðbúin nýjum hættum

Sprengjan sem sprakk fyrir framan skrifstofur ríkissaksóknara, í næsta nágrenni við Stjórn...  

Meira
Fastir pennar 03. feb. 2012 06:00

Ætlað samþykki

Nokkrir þingmenn vilja breyta lögum á þann hátt að líffæri verði tekin úr látnum mönnum ne...  

Meira
Fastir pennar 02. feb. 2012 06:00

Tómir kofar

Stutt en áhugaverð umræða fór fram um EES-samninginn á Alþingi fyrr í vikunni. Tilefnið va...  

Meira
Fastir pennar 02. feb. 2012 06:00

Vöggugjöf

Kynjamunur á námsárangri í Reykjavík er fyrst og fremst í íslensku. Munurinn kemur afdrátt...  

Meira
Fastir pennar 01. feb. 2012 06:00

Greiðari leið til lífgjafar eftir andlát

Allmörg nýru úr lifandi gjöfum eru grædd í Íslendinga ár hvert. Vegna þessarar gjafmildi á...  

Meira
Fastir pennar 31. jan. 2012 06:00

Óklárað uppgjör

Þingmenn úr að minnsta kosti þremur flokkum, auk óháðra, munu í vikunni leggja fram á Alþi...  

Meira
Fastir pennar 30. jan. 2012 08:00

Ögmundur og íhaldið

Sagnfræðingar tala um að stéttastjórnmál hafi leyst sjálfstæðisstjórnmál af hólmi árið 191...  

Meira
Fastir pennar 30. jan. 2012 06:00

Kostnaður krónu

Samkeppniseftirlitið birti í síðustu viku skýrslu sína um verðþróun og samkeppni á dagvöru...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Atvinna
  • Serblad
  • Serblad
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Fastir pennar / Jónína Michaelsdóttir / Tímamót í jafnréttismálum