Fleygurinn

Fréttablađiđ Fastir pennar 06. mars 2010 06:00
Ţorsteinn Pálsson
Ţorsteinn Pálsson
Ţorsteinn Pálsson skrifar:

Stærsta pólitíska málið sem komið hefur til kasta Alþingis í ár var rætt í vikunni. Umræðan tók eina klukkustund. Enginn ráðherra og engir þingmenn stjórnarflokkanna tóku þátt í henni. Þetta segir sína sögu um þá pólitísku kreppu sem er eins og Þrándur í Götu fyrir endurreisn efnahagslífsins.

Málið snýst um tillögu Hreyfingarinnar og Framsóknarflokksins um að hætta efnahagssamstarfinu við Alþjóða gjaldeyrissjóðinn og semja nýja efnahagsáætlun án þátttöku hans. Tvær spurningar hljóta óhjákvæmilega að vakna þegar staðhæft er að þetta mál sé stærra í sniðum en önnur.
Sú fyrri lýtur að forminu. Hvenær hafa tillögur frá stjórnarandstöðuflokkum skipt máli? Sú seinni víkur að efni tillögunnar. Eru nógu skynsamleg rök fyrir þeirri kúvendingu sem hún mælir fyrir um til þess að telja megi hana pólitískt stórmál?

Þegar lagt er mat á þessar spurningar verður að hafa þetta í huga: Fyrrverandi ríkisstjórn ákvað að grundvalla endurreisnaraðgerðirnar á sameiginlegri áætlun með Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Það kom nokkuð á óvart að núverandi ríkisstjórn ákvað að halda áfram á sama grundvelli, en það gerðist. Efnahagsáætlunin er þungamiðja stjórnarstefnunnar.

Verkurinn er hins vegar sá að hluti af þingflokki VG hefur frá upphafi verið ósáttur við þetta samstarf. Sú andstaða hefur farið vaxandi. Fyrir þá sök hefur leikið verulegur vafi á að ríkisstjórnin hefði starfhæfan meirihluta til að halda endurreisnarstarfinu áfram. Það sem var vafi er nú staðreynd. Fyrir vikið dýpkar pólitíska lægðin með hverjum degi.

Það er í þessu ljósi sem tillaga, sem að öðru jöfnu væri léttvæg fundin, fær pólitískt gildi. Hún er stórt pólitískt mál af því að hún rekur málefnalegan fleyg inn í raðir stjórnarflokkanna.

Leiðirnar

Ríkisstjórnin gat komist hjá umræðum um þessa tillögu. Hún getur líka sneitt hjá atkvæðagreislu um hana. Það stangast ekki á við hefðir um meðferð þingmála frá stjórnarandstöðu. Frá hinu á ríkisstjórnin hins vegar enga hjáleið að við borgurum landsins blasir að þetta mál er of heit kartafla til þess að ríkisstjórnin geti tekið á henni í umræðum og atkvæðagreiðslu.

Segja má að ríkisstjórnin hafi meirihluta til setu en ekki athafna. Við það ástand verður ekki búið nema skamma hríð. Eins og sakir standa sýnast tvær leiðir líklegastar út úr þessari pólitísku málefna kreppu. Þær fela í sér val á milli endurreisnar á grundvelli samstarfs við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn eða án hans.

Nú liggur fyrir að tveir stjórnarandstöðuflokkar með tólf þingmenn vilja snúa við blaðinu og hætta samstarfinu við sjóðinn. Líklegt er að hugur að minnsta kosti sex þingmanna VG standi til þess sama. Þetta útilokar þjóðstjórn.

Við Samfylkingunni og meirihluta þingmanna VG blasir sá kostur að snúa hesti sínum við í miðju straumvatninu og freista þess með Hreyfingunni og Framsóknarflokknum að ná til lands á þeim bakka sem haldið var frá. Hinn kosturinn er að leita eftir samstarfi við Sjálfstæðisflokkinn sem stofnaði til samstarfsins við sjóðinn og freista þess að ná til lands þar sem að var stefnt í upphafi þess. Sjálfstæðisflokkurinn hefur að vísu sagt að hann vilji endurmeta umfang samstarfsins. Í því felst þó tæplega grundvallar ágreiningur.

Vegna þessarar stöðu verða forystumenn stjórnarflokkanna að gera upp við sig eftir hvaða striki á að sigla. Þeir þurfa að velja milli þessara tveggja leiða vilji þeir málefnalegan meirihluta. Lítist þeim á hvoruga þeirra er fátt annað til bragðs að taka en efna til Alþingiskosninga samhliða sveitastjórnakosningum í vor.

Ábyrgðin

Í þessari skilgreiningu hefur sá kostur ekki verið gefinn að ríkisstjórnin geti setið án þess að hafa málefnalegan stuðning til að framfylgja kjarna efnahagsstefnunnar. Vitaskuld er þó ekki unnt að útiloka þá stöðu. Af yfirlýsingum forystumanna stjórnarflokkanna má ef til vill ráða að þeir kjósi hana helst.

Það hefur oft gerst áður að ríkisstjórnir hafa setið þó að skort hafi á málefnalega samstöðu, jafnvel um mikilvægustu mál. Hvers vegna ekki nú? Tvö sjónarmið valda því einkum að þessi kostur er ekki tekinn með í reikninginn. Bæði helgast af því hvernig nú árar.

Fyrra sjónarmiðið er algjörlega pólitískt. Ólíklegt er að þjóðin sætti sig við að forsætisráðherra hafi ekki annað fram að færa en að vera furðu lostinn yfir því sem er að gerast. Þjóðin er einfaldlega of nærri nýju hruni til að umbera þá stöðu til lengdar.

Seinna sjónarmiðið er meira lögfræðilegt. Verði nýtt hrun vegna athafnaleysis ríkisstjórnarinnar gæti svo verið komið að byrjað sé að renna úr stundaglasi ráðherraábyrgðarlaganna. Telja verður fremur ólíklegt að forystumenn ríkisstjórnarinnar vilji taka þá áhættu. Mestu skiptir þó að frá sjónarmiði þjóðarhagsmuna er óskynsamlegt að sú áhætta sé tekin.








Fleiri fréttir - Fastir pennar

Fastir pennar 11. feb. 2012 06:00

Panikk í pólitík

Niđurstöđur skođanakönnunar Fréttablađsins og Stöđvar 2 um fylgi flokkanna, sem birtust í ...  

Meira
Fastir pennar 11. feb. 2012 06:00

Ríkisvćđing er mesta hćttan

Ögmundi Jónassyni tókst međ haldbćrum rökum í Kastljóssţćtti í vikunni ađ sýna fram á yfir...  

Meira
Fastir pennar 10. feb. 2012 06:00

Fleiri kostir í samgöngum

Fáar ţjóđir eiga fleiri eđa aflmeiri bíla miđađ viđ fólksfjölda en Íslendingar. Ţađ á sér ...  

Meira
Fastir pennar 10. feb. 2012 06:00

Ást á stórum byggingum

Einhverjum gćti ţótt mikil eftirsjá ađ öllu fénu sem fer í sundlaugar hér og ţar um landiđ...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 19:00

Tvíkynhneigđ kćrasta vill tilbreytingu

Öll erum viđ međ okkar hugmyndir um kynlíf. Hugmyndunum fylgja oft vandamál sem kynfrćđing...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 06:00

Samstađa um gamlar hugmyndir

Nýja stjórnmálaafliđ Samstađa, undir forystu Lilju Mósesdóttur alţingismanns, gefur sig út...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 06:00

Frá trú til skynsemi

Ţađ er undur stutt síđan máliđ sýndist afgreitt. Ţetta međ markađina og ríkiđ. Markađir vi...  

Meira
Fastir pennar 08. feb. 2012 06:00

Sameiginleg skylda

Algjör breyting hefur orđiđ í forsjármálum barna á 20 árum. Áriđ 1992 varđ fyrst möguleiki...  

Meira
Fastir pennar 08. feb. 2012 14:00

Lífeyrissjóđirnir platađir

Forsvarsmenn lífeyrissjóđa keppast nú um ađ túlka niđurstöđu nefndar sem gerđi úttekt á st...  

Meira
Fastir pennar 07. feb. 2012 06:00

Um börnin og refsilöggjöfina – dómur Hćstaréttar

Lög eiga ađ tryggja sanngjarna málsmeđferđ, réttlćti í samskiptum fólks og velferđ. Börn s...  

Meira
Fastir pennar 07. feb. 2012 06:00

Hinar orkulindirnar

Ţriđjungur ţingheims, ţingmenn úr öllum flokkum undir forystu Skúla Helgasonar, hefur lagt...  

Meira
Fastir pennar 06. feb. 2012 08:00

Tapađ af fagmennsku

Ný skýrsla um lífeyrissjóđina hefur leitt í ljós ađ á tveimur árum kringum bankahruniđ tók...  

Meira
Fastir pennar 06. feb. 2012 06:00

Huga ţarf ađ fćrum leiđum

Skuldavandi heimila á ađ stórum hluta rót sína í ţví furđulega kerfi sem landsmenn hafa hé...  

Meira
Fastir pennar 04. feb. 2012 06:00

Peningar annarra

Skýrsla sjálfstćđrar úttektarnefndar um starfsemi lífeyrissjóđanna inniheldur harđa gagnrý...  

Meira
Fastir pennar 04. feb. 2012 06:00

Fóstbrćđralag

Kópavogur hefur dregiđ ađ sér nokkra athygli vegna viđrćđna um myndun nýs meirihluta í bćj...  

Meira
Fastir pennar 03. feb. 2012 06:00

Viđbúin nýjum hćttum

Sprengjan sem sprakk fyrir framan skrifstofur ríkissaksóknara, í nćsta nágrenni viđ Stjórn...  

Meira
Fastir pennar 03. feb. 2012 06:00

Ćtlađ samţykki

Nokkrir ţingmenn vilja breyta lögum á ţann hátt ađ líffćri verđi tekin úr látnum mönnum ne...  

Meira
Fastir pennar 02. feb. 2012 06:00

Tómir kofar

Stutt en áhugaverđ umrćđa fór fram um EES-samninginn á Alţingi fyrr í vikunni. Tilefniđ va...  

Meira
Fastir pennar 02. feb. 2012 06:00

Vöggugjöf

Kynjamunur á námsárangri í Reykjavík er fyrst og fremst í íslensku. Munurinn kemur afdrátt...  

Meira
Fastir pennar 01. feb. 2012 06:00

Greiđari leiđ til lífgjafar eftir andlát

Allmörg nýru úr lifandi gjöfum eru grćdd í Íslendinga ár hvert. Vegna ţessarar gjafmildi á...  

Meira
Fastir pennar 31. jan. 2012 06:00

Óklárađ uppgjör

Ţingmenn úr ađ minnsta kosti ţremur flokkum, auk óháđra, munu í vikunni leggja fram á Alţi...  

Meira

Mest lesiđ: Umrćđan

Nýjast á Vísi

Fréttablađiđ

  • Forsíđa Fréttablađsins
  • Atvinna
  • Serblad
  • Serblad
  • Allt

Stöđ2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veđurfréttir
Ţú ert hér: Forsíđa / Umrćđan / Fastir pennar / Í brennidepli / Fleygurinn