Síður undir "umraedan"

Þjóðaratkvæði um óskýra kosti

Fréttablaðið Fastir pennar 05. mars 2010 06:15
Ólafur Þ. Stephensen
Ólafur Þ. Stephensen
Ólafur Þ. Stephensen skrifar:

Enginn vafi leikur lengur á að Íslendingar ganga á morgun til þjóðaratkvæðagreiðslu um Icesave-lögin. Undanfarin ár hefur því sjónarmiði vaxið mjög fylgi, að ástæða sé til að nota beint og milliliðalaust lýðræði í auknum mæli á Íslandi. Þjóðin ætti að fagna því að vera spurð álits á mikilvægu máli, en líklega þykir mörgum dapurlegt að fyrsta þjóðaratkvæðagreiðslan í sögu lýðveldisins skuli vera haldin á jafneinkennilegum forsendum og raun ber vitni.

Í fyrsta lagi var ákvörðun forseta Íslands um að vísa Icesave-lögunum til þjóðarinnar stjórnskipulega hæpin. Það er afar ólíklegt að höfundar stjórnarskrárinnar hafi ætlazt til þess að í valdi eins manns lægi að taka hvað eftir annað fram fyrir hendurnar á Alþingi og vísa málum til þjóðaratkvæðagreiðslu. Engar almennar reglur hafa enn verið settar um hvernig almenningur geti krafizt þjóðaratkvæðagreiðslu eða hvers konar mál eigi að fara í dóm þjóðarinnar.

Í öðru lagi uppfyllir þjóðaratkvæðagreiðslan á morgun ekki þau sjálfsögðu skilyrði að þjóðin standi frammi fyrir skýrum kostum, sem eiga sér stoð í raunveruleikanum.

Fáum dettur væntanlega í hug að segja já og samþykkja Icesave-lögin, því að fyrir liggur að viðsemjendur Íslendinga eru reiðubúnir að gera nýjan samning, sem er hagstæðari en sá sem átti að staðfesta. Nei þýðir ekki annað en það að fólk ætlar ekki að samþykkja samning, sem er hvort sem er ekki lengur á borðinu. Viðsemjendurnir gera varla ráð fyrir öðru lengur en að meirihluti þjóðarinnar segi nei, sérstaklega þegar þeir hafa sjálfir lagt fram betra tilboð.

Það er útbreiddur misskilningur, bæði innan lands og utan, að með því að segja nei í þjóðaratkvæðagreiðslunni samþykki Íslendingar að borga ekki Icesave-skuldbindingarnar. Samninganefnd, sem nýtur stuðnings allra flokka, hefur þvert á móti verið í viðræðum undanfarna daga um að Ísland greiði innlánstryggingarnar en njóti betri kjara en samkvæmt fyrri samningi.

Þegar þjóðin hefur sagt nei á laugardaginn, liggur áfram á að leysa úr Icesave-deilunni. Biðin eftir niðurstöðu er þegar orðin Íslandi gífurlega dýr.

Erlendir fjárfestar og lánveitendur halda að sér höndum. Efnahagsáætlun stjórnvalda og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, sem átti að mýkja höggið af bankahruninu, hefur frestazt æ ofan í æ, sama á við um lánin frá Norðurlöndunum.

Eins og Gylfi Zoëga hagfræðiprófessor bendir á í Fréttablaðinu í gær verður önnur efnahagsáætlun að koma til, gangi áætlun AGS ekki eftir. Þá gæti þurft að grípa til enn meiri lífskjaraskerðingar með gengisfellingu, skattahækkunum og niðurskurði ríkisútgjalda.

Að enn hafi ekki samizt um Icesave er ekki fyrst og fremst áhyggjuefni vegna þess að við þurfum að ganga til tilgangslítillar þjóðaratkvæðagreiðslu. Það er áhyggjuefni vegna þess að allur frestur á málinu stendur endurreisn efnahagslífsins fyrir þrifum.




Fleiri fréttir - Fastir pennar

Fastir pennar 11. feb. 2012 06:00

Panikk í pólitík

Niðurstöður skoðanakönnunar Fréttablaðsins og Stöðvar 2 um fylgi flokkanna, sem birtust í ...  

Meira
Fastir pennar 11. feb. 2012 06:00

Ríkisvæðing er mesta hættan

Ögmundi Jónassyni tókst með haldbærum rökum í Kastljóssþætti í vikunni að sýna fram á yfir...  

Meira
Fastir pennar 10. feb. 2012 06:00

Fleiri kostir í samgöngum

Fáar þjóðir eiga fleiri eða aflmeiri bíla miðað við fólksfjölda en Íslendingar. Það á sér ...  

Meira
Fastir pennar 10. feb. 2012 06:00

Ást á stórum byggingum

Einhverjum gæti þótt mikil eftirsjá að öllu fénu sem fer í sundlaugar hér og þar um landið...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 19:00

Tvíkynhneigð kærasta vill tilbreytingu

Öll erum við með okkar hugmyndir um kynlíf. Hugmyndunum fylgja oft vandamál sem kynfræðing...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 06:00

Samstaða um gamlar hugmyndir

Nýja stjórnmálaaflið Samstaða, undir forystu Lilju Mósesdóttur alþingismanns, gefur sig út...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 06:00

Frá trú til skynsemi

Það er undur stutt síðan málið sýndist afgreitt. Þetta með markaðina og ríkið. Markaðir vi...  

Meira
Fastir pennar 08. feb. 2012 06:00

Sameiginleg skylda

Algjör breyting hefur orðið í forsjármálum barna á 20 árum. Árið 1992 varð fyrst möguleiki...  

Meira
Fastir pennar 08. feb. 2012 14:00

Lífeyrissjóðirnir plataðir

Forsvarsmenn lífeyrissjóða keppast nú um að túlka niðurstöðu nefndar sem gerði úttekt á st...  

Meira
Fastir pennar 07. feb. 2012 06:00

Um börnin og refsilöggjöfina – dómur Hæstaréttar

Lög eiga að tryggja sanngjarna málsmeðferð, réttlæti í samskiptum fólks og velferð. Börn s...  

Meira
Fastir pennar 07. feb. 2012 06:00

Hinar orkulindirnar

Þriðjungur þingheims, þingmenn úr öllum flokkum undir forystu Skúla Helgasonar, hefur lagt...  

Meira
Fastir pennar 06. feb. 2012 08:00

Tapað af fagmennsku

Ný skýrsla um lífeyrissjóðina hefur leitt í ljós að á tveimur árum kringum bankahrunið tók...  

Meira
Fastir pennar 06. feb. 2012 06:00

Huga þarf að færum leiðum

Skuldavandi heimila á að stórum hluta rót sína í því furðulega kerfi sem landsmenn hafa hé...  

Meira
Fastir pennar 04. feb. 2012 06:00

Peningar annarra

Skýrsla sjálfstæðrar úttektarnefndar um starfsemi lífeyrissjóðanna inniheldur harða gagnrý...  

Meira
Fastir pennar 04. feb. 2012 06:00

Fóstbræðralag

Kópavogur hefur dregið að sér nokkra athygli vegna viðræðna um myndun nýs meirihluta í bæj...  

Meira
Fastir pennar 03. feb. 2012 06:00

Viðbúin nýjum hættum

Sprengjan sem sprakk fyrir framan skrifstofur ríkissaksóknara, í næsta nágrenni við Stjórn...  

Meira
Fastir pennar 03. feb. 2012 06:00

Ætlað samþykki

Nokkrir þingmenn vilja breyta lögum á þann hátt að líffæri verði tekin úr látnum mönnum ne...  

Meira
Fastir pennar 02. feb. 2012 06:00

Tómir kofar

Stutt en áhugaverð umræða fór fram um EES-samninginn á Alþingi fyrr í vikunni. Tilefnið va...  

Meira
Fastir pennar 02. feb. 2012 06:00

Vöggugjöf

Kynjamunur á námsárangri í Reykjavík er fyrst og fremst í íslensku. Munurinn kemur afdrátt...  

Meira
Fastir pennar 01. feb. 2012 06:00

Greiðari leið til lífgjafar eftir andlát

Allmörg nýru úr lifandi gjöfum eru grædd í Íslendinga ár hvert. Vegna þessarar gjafmildi á...  

Meira
Fastir pennar 31. jan. 2012 06:00

Óklárað uppgjör

Þingmenn úr að minnsta kosti þremur flokkum, auk óháðra, munu í vikunni leggja fram á Alþi...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Atvinna
  • Serblad
  • Serblad
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Fastir pennar / Forréttir / Þjóðaratkvæði um óskýra kosti