Síđur undir "umraedan"

Réttarríkiđ í prófi

Fréttablađiđ Fastir pennar 04. mars 2010 06:00
Ţorvaldur Gylfason
Ţorvaldur Gylfason
Ţorvaldur Gylfason skrifar:
Eftir hrun fyrir hálfu öðru ári taldi Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (AGS), að Ísland hefði skilyrði til að rífa sig upp úr öldudalnum á tveim til þrem árum. Vegna hrunsins þurftu erlendir kröfuhafar að afskrifa skuldir gömlu bankanna um fjárhæð, sem nam fimmföldu umfangi hagkerfisins, auk mikils fjártjóns Íslendinga sjálfra, sem var talið nema um tvöföldu umfangi hagkerfisins til viðbótar.




Keyptu sér friđ

Þetta er einsdæmi í fjármálasögu heimsins, að bankakerfi lands leggi svo þungar byrðar - jafnvirði sjöfaldra þjóðartekna - á viðskiptamenn sína nær og fjær. Það bætir ekki úr skák, að bankarnir vöfðu stjórnmálaflokkunum um fingur sér, dældu í þá fé og röðuðu flokksmönnum á garðann, einkum Landsbankinn, bersýnilega til að kaupa sér frið frá lögboðnu eftirliti og aðhaldi. Við skulum nefna hlutina réttum nöfnum, svo sem ætla má, að rannsóknarnefnd Alþingis muni einnig gera í skýrslu sinni, þegar hún verður loksins birt: Flokkarnir þágu í reyndinni mútur, og það gerðu einnig einstakir frambjóðendur á þeirra vegum.

Þessi skoðun AGS eftir hrun, að endurreisnin tæki tvö til þrjú ár, með IceSave og öllu saman, virtist þá vera í vonbjartara lagi. Ég taldi í ljósi reynslunnar, að batinn myndi líklega taka lengri tíma, jafnvel þótt ríkisstjórnin stæði í stykkinu. Ég lýsti reynslu Færeyinga af kreppunni þar fyrir tuttugu árum til viðmiðunar. Kreppan í Færeyjum var náskyld kreppunni hér. Undirrót beggja var rótgróin spilling.

Nú eru horfurnar hér heima mun þyngri en þær voru strax eftir hrun. Ríkisstjórnin hefur brugðizt, enda styðst hún ekki við starfhæfan meiri hluta á Alþingi. Endurreisnin hefur vikið fyrir endalausu þjarki um IceSave. Ríkisstjórnin stendur hjá eins og skelfdur áhorfandi, sem fær ekki rönd við reist. Nýju bankarnir njóta að því er virðist lítils trausts meðal þjóðarinnar, enda er margt enn á huldu um starfsemi þeirra, meðal annars um eignarhald og afskriftir ógoldinna skulda auðmanna. Nýjasta dæmið er Finnur Ingólfsson, fyrrum ráðherra og seðlabankastjóri.






Sporin hrćđa

Vanræksla ríkisstjórnarinnar er ekki bundin við ráðleysi í endurreisnarstarfinu og efnahagsmálum. Ríkisstjórnin þurfti að verða við áskorunum okkar, sem mæltum frá byrjun með erlendri rannsókn á tildrögum hrunsins, en hún færðist undan. Undir stjórn óháðra erlendra manna hefði rannsóknin verið hafin yfir sanngjarnan vafa um hlutdrægni.

Skömmu fyrir hrun komust gömul hlerunarmál í hámæli. Ég er ekki að skipta um umræðuefni. Dómsmálaráðuneytið fól sýslumanninum á Akranesi að rannsaka málið, en rannsóknin reyndist marklaus. Niðurstaða hennar, að engin ástæða væri til frekari rannsóknar, var ráðin fyrir fram, þar eð ríkisstjórn Sjálfstæðisflokksins og Samfylkingarinnar kaus ekki að leysa vitni undan lögboðinni þagnarskyldu. Við yfirheyrslurnar sögðu vitnin því lög standa í vegi fyrir, að þau greindu frá vitneskju sinni, og var þá ekki aðhafzt frekar. Í hópi vitnanna var reyndur lögreglumaður, sem gerþekkir hlerunarmálin marga áratugi aftur í tímann. Þetta dæmi frá 2006-7 segir í rauninni allt, sem segja þarf um ástæðuna til þess, að fólkið í landinu vantreystir réttarkerfinu.






Réttarvarzla í sjálftökusamfélagi

Dómsmálaráðherra Sjálfstæðisflokksins skipaði sýslumanninn á Akranesi nokkru síðar sérstakan saksóknara vegna hrunsins. Á sérstökum saksóknara og ríkissaksóknara hvílir nú sú skylda að leggja fram skotheldar kærur á hendur þeim tugum manna, sem virðast hafa gert sig seka um refsivert athæfi í aðdraganda einkavæðingar bankanna og síðan hrunsins. Að öðrum kosti hlýtur traust þjóðarinnar á dómskerfinu að þverra enn frekar en orðið er. Fari svo, mun þeim fjölga, sem líta svo á, að Ísland sé í reyndinni ekki réttarríki, ef vel tengdir sakamenn virðast hafnir yfir lög og rétt svo sem algengt er í spilltum þriðjaheimsríkjum, til dæmis í Keníu. Þar er engin hefð fyrir því, að armur laganna nái til spilltra stjórnmálamanna og bandamanna þeirra í viðskiptalífinu. Þeir eru ósnertanlegir. Verði niðurstaðan hin sama hér heima, mun liggja við sjálft, að samfélagið liðist í sundur. En þá mun erlend réttarvarzla - lögregla, ákæruvald og dómstólar - taka við keflinu. Erlend fórnarlömb bankaþrjótanna munu ekki láta bjóða sér annað. Lögin ná yfir landamæri.


Fleiri fréttir - Fastir pennar

Fastir pennar 11. feb. 2012 06:00

Panikk í pólitík

Niđurstöđur skođanakönnunar Fréttablađsins og Stöđvar 2 um fylgi flokkanna, sem birtust í ...  

Meira
Fastir pennar 11. feb. 2012 06:00

Ríkisvćđing er mesta hćttan

Ögmundi Jónassyni tókst međ haldbćrum rökum í Kastljóssţćtti í vikunni ađ sýna fram á yfir...  

Meira
Fastir pennar 10. feb. 2012 06:00

Fleiri kostir í samgöngum

Fáar ţjóđir eiga fleiri eđa aflmeiri bíla miđađ viđ fólksfjölda en Íslendingar. Ţađ á sér ...  

Meira
Fastir pennar 10. feb. 2012 06:00

Ást á stórum byggingum

Einhverjum gćti ţótt mikil eftirsjá ađ öllu fénu sem fer í sundlaugar hér og ţar um landiđ...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 19:00

Tvíkynhneigđ kćrasta vill tilbreytingu

Öll erum viđ međ okkar hugmyndir um kynlíf. Hugmyndunum fylgja oft vandamál sem kynfrćđing...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 06:00

Samstađa um gamlar hugmyndir

Nýja stjórnmálaafliđ Samstađa, undir forystu Lilju Mósesdóttur alţingismanns, gefur sig út...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 06:00

Frá trú til skynsemi

Ţađ er undur stutt síđan máliđ sýndist afgreitt. Ţetta međ markađina og ríkiđ. Markađir vi...  

Meira
Fastir pennar 08. feb. 2012 06:00

Sameiginleg skylda

Algjör breyting hefur orđiđ í forsjármálum barna á 20 árum. Áriđ 1992 varđ fyrst möguleiki...  

Meira
Fastir pennar 08. feb. 2012 14:00

Lífeyrissjóđirnir platađir

Forsvarsmenn lífeyrissjóđa keppast nú um ađ túlka niđurstöđu nefndar sem gerđi úttekt á st...  

Meira
Fastir pennar 07. feb. 2012 06:00

Um börnin og refsilöggjöfina – dómur Hćstaréttar

Lög eiga ađ tryggja sanngjarna málsmeđferđ, réttlćti í samskiptum fólks og velferđ. Börn s...  

Meira
Fastir pennar 07. feb. 2012 06:00

Hinar orkulindirnar

Ţriđjungur ţingheims, ţingmenn úr öllum flokkum undir forystu Skúla Helgasonar, hefur lagt...  

Meira
Fastir pennar 06. feb. 2012 08:00

Tapađ af fagmennsku

Ný skýrsla um lífeyrissjóđina hefur leitt í ljós ađ á tveimur árum kringum bankahruniđ tók...  

Meira
Fastir pennar 06. feb. 2012 06:00

Huga ţarf ađ fćrum leiđum

Skuldavandi heimila á ađ stórum hluta rót sína í ţví furđulega kerfi sem landsmenn hafa hé...  

Meira
Fastir pennar 04. feb. 2012 06:00

Peningar annarra

Skýrsla sjálfstćđrar úttektarnefndar um starfsemi lífeyrissjóđanna inniheldur harđa gagnrý...  

Meira
Fastir pennar 04. feb. 2012 06:00

Fóstbrćđralag

Kópavogur hefur dregiđ ađ sér nokkra athygli vegna viđrćđna um myndun nýs meirihluta í bćj...  

Meira
Fastir pennar 03. feb. 2012 06:00

Viđbúin nýjum hćttum

Sprengjan sem sprakk fyrir framan skrifstofur ríkissaksóknara, í nćsta nágrenni viđ Stjórn...  

Meira
Fastir pennar 03. feb. 2012 06:00

Ćtlađ samţykki

Nokkrir ţingmenn vilja breyta lögum á ţann hátt ađ líffćri verđi tekin úr látnum mönnum ne...  

Meira
Fastir pennar 02. feb. 2012 06:00

Tómir kofar

Stutt en áhugaverđ umrćđa fór fram um EES-samninginn á Alţingi fyrr í vikunni. Tilefniđ va...  

Meira
Fastir pennar 02. feb. 2012 06:00

Vöggugjöf

Kynjamunur á námsárangri í Reykjavík er fyrst og fremst í íslensku. Munurinn kemur afdrátt...  

Meira
Fastir pennar 01. feb. 2012 06:00

Greiđari leiđ til lífgjafar eftir andlát

Allmörg nýru úr lifandi gjöfum eru grćdd í Íslendinga ár hvert. Vegna ţessarar gjafmildi á...  

Meira
Fastir pennar 31. jan. 2012 06:00

Óklárađ uppgjör

Ţingmenn úr ađ minnsta kosti ţremur flokkum, auk óháđra, munu í vikunni leggja fram á Alţi...  

Meira

Mest lesiđ: Umrćđan

Nýjast á Vísi

Fréttablađiđ

  • Forsíđa Fréttablađsins
  • Atvinna
  • Serblad
  • Serblad
  • Allt

Stöđ2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veđurfréttir
Ţú ert hér: Forsíđa / Umrćđan / Fastir pennar / Forréttir / Réttarríkiđ í prófi