Síður undir "umraedan"

Alvöru Ríkisútvarp

Fréttablaðið Fastir pennar 04. mars 2010 06:00
Ólafur Þ. Stephensen
Ólafur Þ. Stephensen
Ólafur Þ. Stephensen skrifar:

Víðar en á Íslandi er deilt um hvernig eigi að verja takmörkuðum peningum, sem skattgreiðendur leggja til reksturs ríkisútvarps. Þessa dagana blæs um móður alls almannaútvarps, BBC á Bretlandi, vegna tillagna stjórnar fyrirtækisins um róttækar breytingar á starfseminni.

Sá munur er reyndar á deilunni um RÚV og BBC að hér á landi blasir við að skera verður verulega niður í rekstrinum, rétt eins og öðrum rekstri bæði hjá ríkinu og einkaaðilum. Í Bretlandi er fremur verið að færa til peninga og breyta áherzlum.

Engu að síður geta stjórnvöld, sem skilgreina hlutverk Ríkisútvarpsins, og þeir sem ráða fyrir rekstri þess ýmislegt lært af breytingunum hjá BBC.
Þar á bæ hafa menn ákveðið að horfast í augu við þá staðreynd að mörgu af því sem BBC gerir geta einkareknir fjölmiðlar sinnt álíka vel eða betur. Þannig hyggst BBC fækka vefsíðum sínum um helming, draga úr þjónustu á sviði dægurmenningar og minnka stórlega kaup á amerísku afþreyingarefni fyrir sjónvarp. Mark Thompson, forstjóri BBC, segir einfaldlega að áhugafólk um popptónlist og táningamenningu eigi frekar að snúa sér til Channel 4 og einkarekinna útvarpsstöðva.

BBC hyggst hins vegar sinna „færri verkefnum betur". Þar á að efla fréttaumfjöllunina og setja meiri peninga í innlenda dagskrárgerð, fræðslu-, tónlistar- og menningarefni, barnaefni og viðburði sem efla samstöðu þjóðarinnar.

Hér á landi hefur það lengi verið vandi Ríkissjónvarpsins að í viðleitni sinni til að ná í auglýsingapeninga hefur það orðið æ líkara einkareknu stöðvunum sem það keppir við. Sama má að mörgu leyti segja um Rás 2; dægurtónlist og -umfjöllun er ágætlega sinnt á vegum einkaframtaksins. Þessi þróun hefur ekki orðið til að styrkja Ríkisútvarpið. Til lengri tíma litið gerir hún þvert á móti torveldara að réttlæta tilveru þess og þær háu fjárhæðir, sem reksturinn kostar skattgreiðendur.

Nú er tækifærið til að taka rekstur RÚV í gegn með það fyrir augum að það einbeiti sér að því að sinna almannaþjónustuhlutverkinu, fylli í götin sem einkastöðvar á samkeppnismarkaði skilja eftir. Ekki er víst að það takist að gera RÚV óháð auglýsingapeningum en full ástæða er til að afmarka betur hlutverk fyrirtækisins á auglýsingamarkaðnum.

Endurskoðun af þessu tagi getur jafnvel stuðlað að aukinni pólitískri sátt um RÚV. Sumir vilja ekkert ríkisrekið útvarp, aðrir telja það gegna mikilvægri þjónustu við almenning. Málamiðlunin gæti orðið umsvifaminna Ríkisútvarp, sem sinnti engu að síður betur almannaþjónustunni.
Það væri alvöru Ríkisútvarp, ekki fyrirtæki sem grefur stöðugt undan eigin tilverurétti.





Fleiri fréttir - Fastir pennar

Fastir pennar 11. feb. 2012 06:00

Panikk í pólitík

Niðurstöður skoðanakönnunar Fréttablaðsins og Stöðvar 2 um fylgi flokkanna, sem birtust í ...  

Meira
Fastir pennar 11. feb. 2012 06:00

Ríkisvæðing er mesta hættan

Ögmundi Jónassyni tókst með haldbærum rökum í Kastljóssþætti í vikunni að sýna fram á yfir...  

Meira
Fastir pennar 10. feb. 2012 06:00

Fleiri kostir í samgöngum

Fáar þjóðir eiga fleiri eða aflmeiri bíla miðað við fólksfjölda en Íslendingar. Það á sér ...  

Meira
Fastir pennar 10. feb. 2012 06:00

Ást á stórum byggingum

Einhverjum gæti þótt mikil eftirsjá að öllu fénu sem fer í sundlaugar hér og þar um landið...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 19:00

Tvíkynhneigð kærasta vill tilbreytingu

Öll erum við með okkar hugmyndir um kynlíf. Hugmyndunum fylgja oft vandamál sem kynfræðing...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 06:00

Samstaða um gamlar hugmyndir

Nýja stjórnmálaaflið Samstaða, undir forystu Lilju Mósesdóttur alþingismanns, gefur sig út...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 06:00

Frá trú til skynsemi

Það er undur stutt síðan málið sýndist afgreitt. Þetta með markaðina og ríkið. Markaðir vi...  

Meira
Fastir pennar 08. feb. 2012 06:00

Sameiginleg skylda

Algjör breyting hefur orðið í forsjármálum barna á 20 árum. Árið 1992 varð fyrst möguleiki...  

Meira
Fastir pennar 08. feb. 2012 14:00

Lífeyrissjóðirnir plataðir

Forsvarsmenn lífeyrissjóða keppast nú um að túlka niðurstöðu nefndar sem gerði úttekt á st...  

Meira
Fastir pennar 07. feb. 2012 06:00

Um börnin og refsilöggjöfina – dómur Hæstaréttar

Lög eiga að tryggja sanngjarna málsmeðferð, réttlæti í samskiptum fólks og velferð. Börn s...  

Meira
Fastir pennar 07. feb. 2012 06:00

Hinar orkulindirnar

Þriðjungur þingheims, þingmenn úr öllum flokkum undir forystu Skúla Helgasonar, hefur lagt...  

Meira
Fastir pennar 06. feb. 2012 08:00

Tapað af fagmennsku

Ný skýrsla um lífeyrissjóðina hefur leitt í ljós að á tveimur árum kringum bankahrunið tók...  

Meira
Fastir pennar 06. feb. 2012 06:00

Huga þarf að færum leiðum

Skuldavandi heimila á að stórum hluta rót sína í því furðulega kerfi sem landsmenn hafa hé...  

Meira
Fastir pennar 04. feb. 2012 06:00

Peningar annarra

Skýrsla sjálfstæðrar úttektarnefndar um starfsemi lífeyrissjóðanna inniheldur harða gagnrý...  

Meira
Fastir pennar 04. feb. 2012 06:00

Fóstbræðralag

Kópavogur hefur dregið að sér nokkra athygli vegna viðræðna um myndun nýs meirihluta í bæj...  

Meira
Fastir pennar 03. feb. 2012 06:00

Viðbúin nýjum hættum

Sprengjan sem sprakk fyrir framan skrifstofur ríkissaksóknara, í næsta nágrenni við Stjórn...  

Meira
Fastir pennar 03. feb. 2012 06:00

Ætlað samþykki

Nokkrir þingmenn vilja breyta lögum á þann hátt að líffæri verði tekin úr látnum mönnum ne...  

Meira
Fastir pennar 02. feb. 2012 06:00

Tómir kofar

Stutt en áhugaverð umræða fór fram um EES-samninginn á Alþingi fyrr í vikunni. Tilefnið va...  

Meira
Fastir pennar 02. feb. 2012 06:00

Vöggugjöf

Kynjamunur á námsárangri í Reykjavík er fyrst og fremst í íslensku. Munurinn kemur afdrátt...  

Meira
Fastir pennar 01. feb. 2012 06:00

Greiðari leið til lífgjafar eftir andlát

Allmörg nýru úr lifandi gjöfum eru grædd í Íslendinga ár hvert. Vegna þessarar gjafmildi á...  

Meira
Fastir pennar 31. jan. 2012 06:00

Óklárað uppgjör

Þingmenn úr að minnsta kosti þremur flokkum, auk óháðra, munu í vikunni leggja fram á Alþi...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Atvinna
  • Serblad
  • Serblad
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Fastir pennar / Forréttir / Alvöru Ríkisútvarp